Skessuhorn


Skessuhorn - 27.05.2015, Qupperneq 2

Skessuhorn - 27.05.2015, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015 Ýmsir huga að vorverkunum um þessar mundir. Lauslegt drasl hefur komið víða í ljós á göngustígum og í blómabeðum eftir veturinn og því minnum við lesendur á að nota tækifærið og hreinsa til í sínu nánasta umhverfi. Því hreint land er fagurt land og þar líður okkur best. Norðlægar áttir eru í kortunum næstu daga og kólnandi veður. Á fimmtudag spáir norð- an 8 - 15 m/s, hvassast norðvestanlands. Rigning með köflum, jafnvel slydda fyrir norðan en stöku skúrir syðra. Hiti 2 til 10 stig, mildast á Suðurlandi. Á föstudag spáir norð- austlægri átt, 5 - 10 m/s. Skúrir eða slydduél verða en víða bjart á Suður- og Vesturlandi. Hiti breytist lítið. Á laugardag verður vax- andi suðaustanátt og þykknar upp, allhvasst og rigning við suðurströndinni um kvöldið en annars hægara og þurrt að kalla. Hiti 3 til 10 stig, hlýjast vestanlands. Á sunnudag er útlit fyrir ákveðna austan- og norðaustanátt með rigningu, einkum suðaustan- og aust- an til. Áfram er spáð svölu veðri. Á mánudag spáir norðanátt og dálitlum skúrum eða slydduéljum norðan- og austanlands með svölu veðri en annars bjart og hiti upp í 12 stig sunnan til. Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns: „Fylgist þú með Eurovision?“ 37,83% svör- uðu „Já, bæði undan- og aðalkeppnum“ og 17,83% sögðu: „Já, úrslitakvöldinu.“ 23,04% fylgist með Eurovision sum árin en 21,3% segjast aldrei fylgjast með keppninni. Í þessari viku er spurt: „Ertu byrjuð/aður á vorverkunum?“ Tvær ungar stúlkur standa fyrir áhuverð- um tónleikum til styrktar Krabbameinsfé- laginu og vilja þannig láta gott af sér leiða. Þær syngja á Akranesi en skora jafnframt á nágranna sína í Borgarnesi að taka við kefli sem þær munu afhenda þangað og von- ast til að keflið gangi áfram. Hvunndags- hetjurnar Rakel Rún Eyjólfsdóttir og María Dís Einarsdóttir eru Vestlendingar vikunnar. Spjallað er við þær í Skessuhorni í dag. Til minnis Veðurhorfur Spurning vikunnar Vestlendingur vikunnar Klettaborg fékk styrk BORGARNES: Á vef Borgar- byggðar er sagt frá því að Leik- skólinn Klettaborg í Borgarnesi sé tilraunaleikskóli hjá Emb- ætti landlæknis fyrir verkefnið Heilsueflandi leikskóli. Í vor sótti leikskólinn um styrk til Lýðheilsusjóðs undir nafninu „Geðheilsa og vellíðan barna“ í tengslum við leiðtogaverkefn- ið „The leader in me“ sem nú er verið að innleiða í leikskól- anum. Leiðtogaverkefnið snýst í stuttu máli um að hjálpa hverj- um einstaklingi til að blómstra. Hver einstaklingur fær þannig tækifæri til að vinna út frá sín- um eigin styrkleikum og verða besta útgáfan af sjálfum sér. Lýðheilsusjóður veitti leikskól- anum 500.000 krónur í styrk og er þetta í þriðja sinn á jafn- mörgum árum sem leikskólinn fær styrk frá sjóðnum. –mm Vilja flýta frá- veitufram- kvæmdum AKRANES: Eins og komið fram í Skessuhorni þá er fyrir- tækið Grenjar ehf á Akranesi undir stjórn Ingólfs Árnason- ar afar ósátt við að útrás frá- veiturörs Orkuveitu Reykjavík- ur (OR) sé staðsett á eign fyrir- tækisins í fjörunni í Krókalóni. Heilbrigðisnefnd Vesturlands hefur tekið málið til umfjöllun- ar. Hún telur að umrædd útrás í Krókalóni brjóti í bága við lög og reglur. Hún sé þannig hvorki í samræmi við ákvæði laga nr. 9/2009 um uppbyggingu og rekstur fráveitna, né reglugerð- ar nr. 798/2009 um fráveitur og skólp. Nefndin leggur til við OR að flýta framkvæmdum við varanlega lausn á fráveitumál- um við Krókalón og að fund- in verði önnur lausn í samráði við lóðareiganda þar til fullnað- ar framkvæmdum verði lokið. Bæjarstjóra Akraness hefur ver- ið falið að boða til fundar með fulltrúum Orkuveitu Reykjavík- ur, Heilbrigðisnefndar Vestur- lands og bæjarstjórn Akraness. –mþh Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpi@stolpiehf.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Búslóðageymsla � Ártíðabundinn lager � Lager � Sumar-/vetrarvörur Frystgeymsla � Kæligeymsla � Leiga til skemmri eða lengri tíma Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpiehf.is HAFÐU SAMBAND Þegar komið er fram á þennan árs- tíma eykst umferð fólks á allskyns farartækjum um þjóðvegina. Full ástæða er til að hvetja ökumenn bíla að fara gætilega því oft eru aðstæður með því móti að beinlínis er hættuspil á ferð. Til dæmis þegar vegir eru blautir, hvassviðri er og samhliða t.d. umferð stórra flutn- ingabíla sem mynda vindsveipi. Þessa mynd tók Sverrir Karlsson þegar hann var á ferð um Hval- fjörð um liðna helgi. Þrátt fyrir að aðstæður þá hafi verið góðar má þó lítið út af bregða þegar þessi umferð bætist við umferð bíla á þröngum þjóðvegum landsins. mm Rúta í akstri fyrir Strætó bs fauk út af veginum við norðanvert Akra- fjall um klukkan sjö síðastliðinn laugardagsmorgun. Þetta gerð- ist við nýbýlið Herdísarholt. Bí- stjórinn var einn í bílnum og slas- aðist hann ekki. Vindhviða mun hafa hrakið bílinn útaf veginum með þeim afleiðingum að hann fór að hluta yfir vegskurðinn eins og sést á meðfylgjandi mynd. Vindur hefur ítrekað vald- ið tjóni við norðanvert Akrafjall það sem af er þessu ári. Þetta er t.d. í annað sinn sem rúta fýkur þar útaf veginum. Í fyrra skipt- ið var það við Æðarodda í um- hleypingum nú eftir áramót. Þar var bílstjóri einnig einn á ferð og slapp með skrekkinn. Þá er stutt síðan útihús á bænum Hvítanesi splundruðust í einni af óveðurs- lægðunum sem gengu yfir vestan- vert landið í vetur. mþh/ Ljósm. mm Mannbjörg varð þegar lítill strand- veiðibátur, Herkúles SH-147, sökk norðvestur af Hellissandi laust fyrir klukkan 17 á þriðjudaginn í liðinni viku. Leki hafði komið komið að bátnum þar sem hann var á strand- veiðum. Björgunarútkall var sent út klukkan 16:59 en þegar fyrsta að- stoð barst var báturinn sokkinn og skipverjinn, sem hafði verið einn um borð, var kominn í sjóinn. Þar hafði hann verið í um tíu mínútur þegar liðsmenn björgunarsveitar- innar Lífsbjargar komu á vettvang og náðu skipverjanum úr sjónum, heilum á húfi en köldum. Ann- ar bátur, Ólafur Bjarnason SH frá Ólafsvík, var í grennd við Herkú- les og var skipverjinn tekinn um borð í Ólaf sem sigldi með hann til Ólafsvíkur. Athygli vakti að björg- unarbátur í Herkúles blés ekki út þegar á reyndi, en skipverjinn náði til hans og reyndi ítrekað að toga í spottann til að hann blési út, en án árangurs. Herkúles SH var fimm tonna furu- og eikarbátur smíðaður á Hofsósi 1973. Rannsóknanefnd samgönguslysa mun fara yfir hvað fór úrskeiðis, bæði hvað varðar bátslekann og að björgunarbáturinn opnaðist ekki. af Björgunarbáturinn sem var um borð í Herkúlesi virkaði ekki þegar á reyndi. Mannbjörg þegar bátur sökk á Breiðafirði Herkúles SH-147 Engin slys þegar strætisvagn fauk yfir skurð Allskonar hjólandi umferð

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.