Skessuhorn


Skessuhorn - 27.05.2015, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 27.05.2015, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015 SVONA GERUM VIÐ EKKI! Á þessum árstíma má sjá gras- ið grænka með hverjum degin- um, blómin rembast við að spretta úr jörðu og laufin eru að byrja að vaxa á trjánum. Á sama tíma vakna skordýr og áttfætlur af sínum vetr- ardvala, mörgum til ama. Háanna- tími hjá meindýraeyðum er því framundan. Einn af þeim sem hefur í nógu að snúast yfir sumartímann við að fjarlægja gesti sem ekki alls staðar eru velkomnir er Ólafur Þór Jónsson meindýraeyðir á Hríshóli í Hvalfjarðarsveit, skammt sunnan við Akranes. Geitungabúin fljót að stækka „Ég er byrjaður að eitra fyrir köngulóm og húsflugum. Geitung- arnir eru ekki farnir að láta sjá sig, það er enn svo kalt,“ segir Ólafur í samtali við Skessuhorn. Hann seg- ir þó að kuldinn hafi engin áhrif til langframa, geitungarnir komi þrátt fyrir kuldatíð að vori. „Rigning- in hafði til dæmis engin áhrif á þá í fyrra,“ segir hann. Aðspurður um hvort einhver forvörn sé til vegna geitunganna segir hann að svo sé ekki. „Sumir kaupa geitungagildr- ur í verslunum en það veiðist bara einn og einn í þær. Það eru mörg hundruð geitungar í einu búi þann- ig að þetta er bara sölutrix, þú losn- ar ekkert við geitungana með svona gildru,“ útskýrir Ólafur. Geitunga- bit geta reynst mörgum hættuleg og því er full ástæða fyrir þá sem telja að bú sé í nágrenninu að komast fyrir rót vandans. Ólafur ráðlegg- ur fólki þó frá því að fjarlægja geit- ungabú upp á eigin spýtur. „Það er kannski í lagi ef búin eru mjög lít- il, þá er bara ein drottning í þeim. En þau eru fljót að stækka og það er auðvelt að verða stunginn.“ Það kemur líklega engum á óvart að meindýraeyðirinn hefur oft ver- ið stunginn af geitungi. „Jú, það hefur gerst margoft og jafnvel oft á sama tíma. Ég hef stundum ver- ið með þrjár stungur á mismun- andi stöðum á höfðinu. Það getur verið ansi vont að fá þessar stung- ur, þessu fylgir mikill sviði,“ segir hann. Ólafur segir geitungana sí- fellt vera að en verstir séu þeir fólki í ágúst. „Svo er mismikið af þeim, maður hefur séð allt upp í þrjú bú í einum garði á sama tíma.“ Ólafur segir að auðveldara sé að eitra fyr- ir geitungunum nú en fyrir nokkr- um árum. „Það er komið betra eit- ur. Áður þurfti maður að gera þetta á nóttunni til að ná þeim öllum í búinu. En núna getur maður gert þetta um hábjartan dag, eitrinu er bara sprautað inn í og eftir nokkra klukkutíma er allt dautt.“ Köngulærnar fleiri og stærri En það eru ekki bara geitungarnir sem valda fólki óþægindum og ótta. Húsflugur geta orðið hvimleiðar þó engin hætta sé á stungum frá þeim. „Það getur orðið ansi mikið af þeim sumsstaðar, sérstaklega uppi í sveit. Til að losna við þær er eitri spraut- að inn í gluggana. Það eitur dug- ar í eitt ár en það virkar bara á þær flugur sem hanga í glugganum, hinar sleppa.“ Ólafur segir að mest sé hringt í hann út af köngulóm. „Þeim hefur fjölgað á undanförn- um árum og þær eru mikið stærri en þær voru áður. En þetta er ekki bara vandamál á Skaganum, þetta er svona líka í Reykjavík og víðar,“ segir Ólafur. Hann segir að ekki sé hægt að losna við köngulærnar öðruvísi en að láta eitra fyrir þeim. „Sumir eru að reyna að berjast við þetta sjálfir, kústa á morgnanna áður en farið er til vinnu en vef- irnir eru komnir aftur eftir nokkrar klukkustundir. Maður verður mest var við þetta þegar stelpurnar kom- ast ekki lengur í sólbað,“ segir hann og brosir. Margir sleppa því að láta eitra fyrir köngulónum, telja það verri kost en að leyfa þeim að vera. „Það er bara mýta að eitrið fari illa með gróðurinn eða að flugur verði vandamál þegar köngulærnar fara. Það er bara vitleysa,“ segir mein- dýraeyðirinn og mælir með því að þeir sem þreyttir eru á köngulóar- vef láti eitra hjá sér. grþ Þrátt fyrir að enn sé óvenju kalt í veðri á suðvesturhorni landsins má sjá ýmis merki um að sumarið sé rétt handan við hornið. Ilmur af nýslegnu grasi fannst til að mynda á Akranesi síðastliðinn fimmtu- dag, á fyrsta vinnudegi Vinnuskóla Akraness. Hér má sjá flokksstjórana Ólaf Val Valdimarsson og Heið- rúnu Láru Tómasdóttur munda sláttuvélarnar. grþ Sumarið minnir á sig Ólafur Þór Jónsson meindýraeyðir á Akranesi. Háannatími hjá meindýraeyðum framundan Sjómannadagsblað Skessuhorns kemur út miðvikudaginn 3. júní Auglýsingapantanir í blaðið þurfa að berast fyrir 28. maí í síma 433-5500 eða á netfangið emilia@skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.