Skessuhorn


Skessuhorn - 27.05.2015, Blaðsíða 28

Skessuhorn - 27.05.2015, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015 Vörur og þjónusta R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 Hilmir B ehf Alhliða pípulagningaþjónusta hilmirb@simnet.is facebook.com/hilmirbehf Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is Í síðasta tölublaði Skessuhorns voru birtar ljósmynd- ir sem teknar voru af grunnskólanem- um á Akranesi sem sótt höfðu nám- skeið í ljósmyndun hjá Vitanum, félagi áhugal jósmynd- ara á Akranesi. Því miður urðu þau mistök við um- brot blaðsins að myndatextar undir þremur myndum víxluðust en þeir greindu frá nafni ljósmyndaranna. Við biðjumst vel- virðingar á þessum mistökum og birt- um hér myndirnar aftur með réttum myndatextum. Það er gríðarlega gestkvæmt á mínu heimili. Yfir kaffi- bolla eru málin rædd og hinum og þess- um „fávitum“ blótað í sand og ösku. Ég, aftur á móti, þyki hundleiðinleg í þessum umræðum því ég reyni allt- af að finna það jákvæða í fari þessa fólks og eyðilegg ósjaldan góða róg- burði og sakfellingar. Mér datt því í hug að setja á blað þá hluti sem fara ógeðslega í taug- arnar á mér, svona til að sýna að ég fyrirgef nú ekki allt. Mér finnst það t.d. óþolandi þeg- ar fólk segir rasista-brandara, blótar í návist barna, þegar það talar svaka- lega hátt í farsímann, hvar sem er, og innan um fólk sem er að reyna að ræða saman. Það er skelfilegt að heyra fólk tala niður til þjónustu- fólks, svo sem eins og í verslunum og á veitingastöðum. Mér finnst það óþolandi þegar foreldrar leyfa börn- um sínum að hlaupa um verslanir eða stofnanir. Hafið hemil á þessum gríslingum ykkar! Svo er það ferlega pirrandi þegar ég er að leita að ein- hverju í hillu í matvöruversluninni og fólk fer fyrir framan mig án þess að biðjast forláts. Hvað er svona erf- itt við að biðjast afsökunar á að fara framhjá mér, ég get alveg fært mig ef þarf. Nú, þegar ungt fólk sýn- ir því eldra enga tillitssemi svo sem með því að standa ekki upp fyrir því í Strætó. Óþolandi. En það er fátt sem toppar það að vera í enda- lausri röð við verslunarkassann, vera orðin næst-næstur í röðinni þeg- ar annar kassi er opnaður og fólk- ið sem er aftast hleypur til og fer á þann kassa. Djöv.. frekjur. En er það ekki líka starfsfólkinu að kenna, gæti það ekki tilkynnt: „Hér er opið fyrir þann næsta í röðinni.“ Frekar en að kalla bara „Opið hérna“ (fyrir þann frekasta). Og síðast en ekki síst, mér finnst fólk sem hendir rusli út úr bíl- um sínum algerir fávitar. Hvað held- ur það að verði um ruslið? Það bara gufi upp? Fávitar. Sko, mér finnst sumir vera fávitar. Kannski er ég bara gjaldgeng í kaffi- spjallið eftir allt. Sigrún Hjartardóttir. Kæru stjórnendur HB Granda! Þessar línur eru sendar fyr- ir hönd hóps kvenna á Akranesi, sem kvíða því mjög að á næstu dög- um verði tekin óafturkræf ákvörð- un vegna beiðni ykkar um að reisa á Akranesi eina allra stærstu, jafnvel stærstu verksmiðju sinnar tegundar í heiminum. Við fögnum því að HB Grandi hyggst fara í mikilvæga uppbygg- ingu á hafnarsvæðinu. Það er gleði- efni, nema að einu undanskildu: Í pakkanum er ætlunin að reisa þurrkunaraðstöðu í um 4500 fer- metra húsnæði fyrir fiskhausa og jafnvel þurrkun á loðnu og er það nokkuð sem sannarlega á ekki að vera nálægt íbúabyggð. Að minnsta kosti dettur engum lengur í hug að bjóða Reykvíkingum, Seltirning- um eða íbúum Mosfellsbæjar upp á slíkar trakteringar. Þar myndi þetta, árið 2015, aldrei verða leyft. Eða hvað haldið þið? Fjárfesting ykkar vegna upp- byggingar hausaþurrkunarinnar er upp á mörg hundruð milljónir króna. Væri ekki skynsamlegra að þeim fjármunum yrði varið á þeim stað sem sátt ríkir um starfsemina, nóg er landrýmið? Akurnesingar hafa hörmulega reynslu af Laugarfiski hf. sem hef- ur verið hér síðan 2003 en í ykkar eigu síðastliðin tæp tvö ár. Starfs- leyfið rennur út í febrúar á næsta ári og var það von okkar að verk- smiðjan yrði flutt fjær íbúðabyggð. Í stað þessa á nú að stækka og auka framleiðsluna, og þar með meira en þrefalda hana, úr 170 tonnum í 600 tonn á viku. „Fyrr má nú rota en dauðrota“. Næstu íbúðahús eru innan við tvö hundruð metra frá verksmiðj- unni. Í skýrslu sem bæjaryfirvöld fengu VSÓ Ráðgjöf til að vinna varðandi starfsemina, kemur auð- vitað í ljós að verksmiðja af þessu tagi verður aldrei lyktarlaus, þótt allri núverandi tæknikunnáttu verði beitt. Skýrsluhöfundar eru greini- lega ekki tilbúnir að segja í skýrsl- unni hvað lyktin verður mikil, því þá þarf að standa við þau orð. Það sem verra er, að samkvæmt veðurfarsspám, svokölluðum vind- rósum sem skilmerkilega eru tíund- aðir í skýrslunni, sést að þefurinn mun færa sig á nýjar lendur og er þá kirkjan okkar, sjúkrahúsið og nýja torgið, að ógleymdum Jaðarsbökk- um útsett fyrir lyktinni á góðviðris- dögum í hægum sunnanáttum. Þurfum við í alvörunni að sætta okkur við það að húseignir í ákveðn- um bæjarhluta séu verðfelldar áfram, þótt ekki sé rætt um þá and- legu vansæld sem þessari skítalykt fylgir? Unga fólkið í dag vill ekki búa við þessi skilyrði; þetta er al- gjör tímaskekkja að okkar mati. Stjórnendur HB Granda! Við skorum á ykkur að finna aðra stað- setningu fyrir hausaþurrkun ykkar, í samráði við bæjaryfirvöld og í sátt og samlyndi við alla bæjarbúa, þar sem framleiðslan hvorki skaðar né angrar íbúa Akraness. Við trúum því og treystum að hentugri staður finnist fyrir þurrk- unina sem getur verið hvar sem er í hæfilegri fjarlægð frá íbúðabyggð, ef að er gáð, og við erum tilbúin í þá vinnu með ykkur. Í okkar hópi er bráðsnjallt fólk sem er vant að finna lausnir í erfiðum málum. Ver- um víðsýn og reynum að læra af reynslunni. Með metnaðarfullum óskum um að fyrirtækið stækki og blómstri á Akranesi. Valey Benediktsdóttir, Anna Guð- rún Ahlbrecht, Guðrún Bragadóttir, Gerður Jóhannsdóttir, Þura Hreins- dóttir, Árný Örnólfsdóttir, Ellen Ótt- arsdóttir, Ingibjörg Finnbogadóttir, Katla María Ketilsdóttir, Brynhild- ur Björnsdóttir, Lilja Guðmundsdótt- ir, Ragna Kristinsdóttir. Pennagrein Opið bréf til stjórnar HB Granda Á Akranesi. Ljósm. Ragna K. Jákvæðnin eyðileggur góðar gróusögur Pennagrein Gísli Laxdal Unnarsson. Myndatextar víxluðust Eyrún Ingþórsdóttir. Gyða Kolbrún Hallgrímsdóttir. Vélabær ehf. Bæ í Bæjarsveit Alhliða viðgerðarþjónusta á bílum, dráttarvélum og vélum tengdum landbúnaði Smur og hjólbarðaþjónusta velabaer@vesturland.is S K E S S U H O R N 2 01 3

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.