Skessuhorn


Skessuhorn - 27.05.2015, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 27.05.2015, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015 Jósep Blöndal sjúkrahúslæknir og Lucia de Korte sjúkraþjálfari fögn- uðu bæði 25 ára starfsafmæli ný- lega. Þau hófu störf á St. Francis- kusspítalanum í Stykkishólmi vor- ið 1990, Lucia þann 1. apríl og Jós- ep 8. maí. Í tilefni af þessum tíma- mótum tók Skessuhorn Jósep og Luciu tali. Áður en Jósep og Lucia hófu störf á St. Franciskusspítalan- um höfðu þau bæði menntað sig í stoðkerfis- og verkjafræðum. Jósep, sem er skurðlæknir að mennt, segist hafa séð fram á að skurðlækningar á minni stöðum úti á landi myndu smám saman leggjast af. „Við vild- um einbeita okkur að því að bæta það sem hægt var að bæta án mikils tilkostnaðar. Eins og í rannsóknum, sjúkraþjálfun og endurhæfingu,“ segir Jósep. Hann segir frá því að um 1990 hafi verið birt merkileg rannsókn í Kaliforníu þar sem tek- ið var á bak- og hálsvandamálum með þverfaglegri nálgun margra mismunandi sérgreina. Hann hafði því samband við Dr. Jeffrey Saal við San Francisco Spine Institute. Í framhaldinu af því komu hann og Lucia að stofnun háls- og bakdeild- ar á St. Franciskusspítalanum, sem enn er starfrækt í dag. Snjóar tilvísunum „Þetta var eins og herdeild þarna úti, þeir voru með æfingapró- gramm, verkjameðferð, skurð- lækningar, næringarráðgjöf, hnykkingar og allt hitt. Þarna náðist mjög góður árangur með sjúklingana. Eftir svona meðferð þurfti ekki nema einn af hverjum tíu með brjósklos að fara í skurð- aðgerð, sem var óvenjulegt á þeim tíma, en er orðið að þumalfingurs- reglu í dag,“ útskýrir Jósep. Háls- og bakdeildin hefur síðan þá notið gríðarlegrar sérhæfingar og bygg- ir enn á sama grunni. „Þetta hefur verið í stanslausri þróun frá upp- hafi en það hafa ekki orðið nein- ar stórar breytingar,“ segir Lucia. „Við byggjum á sama grunni en það hefur bæst við þekkinguna og aðferðum hefur fjölgað aðeins,“ bætir hún við. Jósep segir að stuttu eftir stofnun deildarinnar hafi þau verið komin í 100% nýtingu, sem haldist hefur til dagsins í dag. „Nú orðið telur samanlagður biðlisti um 600 manns og er alltaf að lengj- ast. Það snjóar yfir okkur tilvísun- um, enda þjónar deildin öllu land- inu.“ Lucia segir að ekki alls fyrir löngu hafi Jósep helmingað mót- tökuna hjá sér. „Nú er það þannig að það sem kemur í gegnum hann er passlegur fjöldi fyrir deildina að taka á móti. Við náum betur að klára þá sem hann skoðar nokkurn veginn innan árs. Áður kom fólk til hans og svo tók kannski tvö ár að komast að á deildinni. Svo þeg- ar fólk loks komst að voru upplýs- ingarnar jafnvel úreltar. Með þess- ari breytingu eru upplýsingarnar alltaf nýjar. Biðlistinn hefur í raun bara færst til,“ segir hún. Byggir á góðri samvinnu Jósep segir að sjúklingarnir séu metnir af honum og fari í fram- haldinu beint í prógramm á deild- inni. „Við leggjum alla inn. Það er forsendan fyrir því að þetta gangi, enda er hér um mjög samanþjapp- að prógramm að ræða, sem er klæðskerasniðið að þörfum hvers og eins. Það hefur reynst einstak- lega vel en við höfum þurft að verja það með kjafti og klóm. Ef fólk er ekki lagt inn, þá getum við ekki veitt þá þjónustu sem skilar þessum árangri. Við gerum ekkert nema það stefni í að það beri varan- legan árangur,“ útskýrir hann. Þau segja að mikið sé lagt upp úr sam- vinnu á deildinni. Fimm sjúkra- þjálfarar starfi á deildinni ásamt Jósep, hjúkrunarfræðingi, geð- hjúkrunarfræðingi, starfsmanni á deild og aðstoðarfólki á skurð- og sprautustofu. „Það hafa verið smá skiptingar í gegnum árin en einn og einn varð kyrr og úr varð fastur kjarni sem er í dag. Ég er persónu- lega fegin að við erum enn til stað- ar og ekki að standa í stað held- ur enn að þróast. Starfsfólki hefur ekki fækkað mikið hér, þrátt fyr- ir mikinn niðurskurð annars stað- ar,“ segir Lucia. „Við erum einn- ig með mjög góða rannsóknastofu og höfum alltaf haft topp fólk þar. Við leggjum mikið upp úr teym- isvinnu. Þetta byggir allt á þeirri góðu samvinnu sem alltaf hef- ur verið hér. Það hefur ekki fall- ið eitt styggðaryrði meðal starfs- fólksins öll þau ár sem ég hef starf- að hérna,“ bætir Jósep við. Eina deild sinnar tegundar í Evrópu Sjúkrahúsið í Stykkishólmi er eina stofnunin á landinu og sú eina í Evrópu allri, þar sem boðið eru upp á meðferð sem þessa við bak- vandamálum. „Við erum þau einu sem erum með svona samanþjapp- að prógramm þar sem allt er á ein- um stað. Ég heyri það á bandarísk- um kollegum að þeir myndu til dæmis vilja hafa sambærilega stofn- un og við. Þetta sem var í gangi hjá þeim í San Francisco 1990 sprakk fljótlega, það var of dýrt fyrir heil- brigðiskerfið þeirra. Í dag er þetta allt sundurslitið hjá þeim,“ segir Jósep. Hann segir að haustið 2008 hafi hann farið á fund í heilbrigð- isráðuneytinu þar sem rætt var um að stofnunin yrði efld og stækkuð, bætt við sjúkraþjálfara og öðrum lækni. Ekkert hafi þó orðið af því, enda hefur heilbrigðiskerfið þurft að þola sífelldan niðurskurð síðan. Hokna kynslóðin að koma Jósep segir að á þessum aldarfjórð- ungi hafi samsetning sjúklinganna breyst aðeins. „Ég held að aldurinn sé að færast niður, það er tilfinning- in. Svo er sífellt fleira íþróttafólk að koma og við erum farin að sjá svolítið af stelpum úr fimleikum. En kannski er það partur af þessu að það er orð- ið betur samþykkt í samfélaginu að fólk sé með verki. Fólk lætur vita fyrr en áður, þegar enginn kvartaði fyrr en verkirnir voru orðnir mjög slæmir.“ Hann segist hafa áhyggj- ur af því hver þróunin verði, mið- að við aukna tölvu-, snjallsíma- og spjaldtölvunotkun þar sem allir sitja hoknir. „Ég held að það stefni í það að háls- og bakvandamálum fjölgi. Nú fáum við hoknu kynslóðina og við vitum það nú þegar að þeir sem vinna hoknir eru margir með háls- vandamál.“ Hann segir að háls- og bakvandamál séu dýrasta heilbrigð- isvandamál í heimi, sé allt tekið inn í myndina. „Þetta er algengasta orsök örorku á Íslandi hjá fólki 45 ára og yngri. Ef við umreiknum tölur frá Danmörku sjáum við að þetta kost- ar heilbrigðiskerfið um tíu milljarða á ári. Þetta eru stjarnfræðilegar töl- ur.“ Vilja að stofnunin verði sjálfstæð Lucia og Jósep segjast ekki hafa haldið upp á starfsafmælið. Jós- ep nefnir að kannski verði tón- leikar haldnir síðar og Lucia bæt- ir því við að hún hafi reyndar bak- að köku í tilefni dagsins. „Svo feng- um við mjög fullkomið sónartæki að gjöf. Við sjúkraþjálfarnir notum það til greiningar á vöðvastarfsemi, sem er einn kjarninn í því sem við gerum. Við skoðum vöðva og blóð- flæði með tækinu og Jósep getur notað það í sprautumeðferðum,“ segir Lucia. Framundan á deildinni eru áframhaldandi störf með háls- og bakveika og draumurinn er að stofnunin verði sjálfstæð. „Það væri gott að losna við þennan biðtíma. Biðtíminn er vondur, því leng- ur sem sjúklingurinn bíður er erf- iðara að laga meinið. Við reynum því að forgangsraða grimmt inn á deildina hjá okkur. En helst mynd- um við vilja vera sjálfstæð stofnun. Það myndi auðvelda margt.“ grþ Hafa starfað í aldarfjórðung á sama stað Lucia de Korte og Jósep Blöndal. Ljósm. Stykkishólmspósturinn. Um hvítasunnuhelgina var heim- ildakvikmyndahátíðin Skjaldborg haldin á Patreksfirði í níunda sinn. Þar eru slíkar kvikmyndir sýndar auk þess sem kvikmyndagerðarfólki gefst kostur á að koma saman. Þrjár kvikmyndir sem segja sögur af Vest- urlandi heimsstyrjaldar voru frum- sýndar að þessu sinni. Sú fyrri er Svartihnjúkur – stríðssaga úr Eyrar- sveit. Hún segir frá því er bresk her- flugvél fórst með allri áhöfn í Eyr- arsveit á Snæfellsnesi í nóvember 1941. Leikstjóri og framleiðandi er Hjálmtýr Heiðdal. Hin mynd- in sem var frumsýnd er Stúlkurnar frá Kleppjárnsreykjum í leikstjórn Ölmu Ómarsdóttur. Hún fjallar um „ástandið“ á tímun hernámsins á Ís- landi og segir sögu stúlkna sem áttu í sambandi við hermenn. Þær voru leiddar fyrir sérstakan Ungmenna- dómstól, sem sendi þær til vistar í sveit eða á sérstöku upptökuheimili fyrir vandræðastúlkur á Kleppjárns- reykjum í Borgarfirði. Loks er það myndin Latínbónd- inn. Þar er sagt frá Tómasi R. Ein- arssyni kontrabassaleikara og laga- höfundi. Hann er löngu landskunn- ur, ekki síst fyrir latín tónlist sína. Í kvikmyndinni er sagt frá mannin- um bak við bassann og lögin og því hvernig það vildi til að sveitastrákur úr Dölunum elti tónlistargyðjuna út í heim og alla leið til Havana á Kúbu og sneri loks til baka í heimahagana með heita og litríka latínveislu í far- angrinum. Leikstjóri myndarinnar er Jón Karl Helgason. mþh Svartihnjúkur – stríðssaga úr Eyrar- sveit.Stúlkurnar frá Kleppjárnsreykjum dvöldu í þessu húsi. Vegna gerðar heimildamyndarinnar um Tómas R Einarsson var boðið upp á tónleika í Dalabúð. Það voru menningarfélagið Þaulsetur sf og Bæjarútgerðin ehf sem skipulögðu viðburðinn. Heimildamyndir með vestlensk tengsl frumsýndar

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.