Skessuhorn


Skessuhorn - 27.05.2015, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 27.05.2015, Blaðsíða 9
9MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015 Til leigu Akraneskaupstaður auglýsir til leigu fasteignina Sólmundarhöfða 2 á Akranesi. Um er að ræða gamalt íbúðarhús og útihús sem þarfnast viðgerðar og er reiknað með að leigutaki komi að viðgerð eignanna upp í afnot. Húsin eru að hluta til friðuð og skilyrði að tekið sé tillit til þess í fyrirhuguðum viðgerðum. Tilboðum þarf að skila til þjónusturvers Akraneskaupstaðar Stillholti 16-18 á Akranesi, eigi síðar en 3. júní 2015. Nánari upplýsingar veitir Kristján Gunnarsson umsjónarmaður fasteigna á netfangið kristjan.gunnarsson@akranes.is eða í síma 433-1000. SK ES SU H O R N 2 01 5 Ertu menntaður kennari sem vantar starf á fallegum stað í Borgarfirði í góðum skóla? Ef svo er, þá er Varmaland staður fyrir þig. Grunnskóli Borgarfjarðar er þriggja starfsstöðva grunnskóli með rúmlega 200 nemendur. Starfsstöðvar hans eru á Kleppjárnsreykjum, Varmalandi og Hvanneyri. Mynd- og textíl- menntakennara vantar í Varmalandsdeild skólans frá og með 1. ágúst 2015 í 70% starfshlutfall. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og LS. Umsóknarfrestur er til 10.júní nk. Umsóknum skal skilað skriflega til skólastjóra með upplýsingum um menntun, réttindi og starfsreynslu ásamt meðmælendum. Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir skólastjóri í síma 847-9262/430-1502, netfang; ingibjorg.inga@gbf.is Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir eftir mynd- og textílmenntakennara til starfa næsta skólaár. SK ES SU H O R N 2 01 5 Íbúafundur um málefni HB Granda á Breiðinni verður haldinn þann 28. maí í Tónbergi kl. 20.00 Markmið fundarins er að kynna hugmyndir og óskir HB Granda um mögulega uppbyggingu á Akranesi og er fundurinn liður í upplýsingaöflun bæjaryfirvalda og til að gefa bæjarbúum tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Dagskrá: Einar Brandsson, formaður skipulag• s- og umhverfisráðs: Skipulag á Breiðinni Vilhjá• lmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda: Hugmyndir fyrirtækisins að uppbyggingu á Akranesi og stækkun Laugafisks G• uðjón Jónsson frá VSÓ: Greinargerð um áhrif fyrirhugaðrar stækkunar með tilliti til lyktarmengunar Hö• rður Helgason frá samtökunum Betri byggð: Sjónarmið íbúa Sigríður Indriðadóttir bæjarfulltrúi: Samantekt fundarins.• Fundarstjóri er Björg Ágústsdóttir ráðgjafi hjá Alta SKE SS U H O R N 2 01 5 Séra Þráinn Haraldsson var settur í embætti prests á Akranesi í há- tíðarguðsþjónustu á hvítasunnu- dag. Um er að ræða nýja stöðu sem skýrist af mikilli fjölgun íbúa. Þráinn mun framvegis starfa við hlið séra Eðvarðs Ingólfssonar sem hefur verið sóknarprestur Ak- urnesinga frá 1997. „Þráinn er í raun sjötti prestur Akurnesinga frá 1886. Þá tók við embætti Jón Sveinsson og þjón- aði hann fyrsta áratuginn í kirkj- unni sem var staðsett þar sem nú er kirkjugarðurinn og minningar- turninn um gömlu kirkjuna stend- ur. Þegar ný kirkja er vígð 1896 heldur Jón áfram að þjóna Akur- nesingum og því teljum við frá 1886, þegar hann tók við emb- ætti, en ekki byggingarári nýju kirkjunnar,“ sagði séra Eðvarð í Samtali við Skessuhorn. „Þetta var söguleg stund því þetta er í fyrsta sinn sem tvö prestsembætti eru komin til að vera hér á Akra- nesi. Hér hafði verið fjölmenn- asta einmenningsprestakallið utan Reykjavíkur og því orðið tímabært að bæta við.“ Séra Þorbjörn Hlynur Árnason, prófastur Vesturlandsprófasts- dæmis, setti Þráinn í embættið og þjónaði fyrir altari fram að pre- dikun þegar hinn nýi prestur tók við. Séra Eðvarð Ingólfsson sókn- arprestur leiddi kirkjubæn og fé- lagar úr Kór Akraneskirkju sungu við undirleik Sveins Arnars Sæ- mundssonar organista. „Athöfn- in var hátíðleg og kórsöngurinn fallegur. Við erum með frábæran kirkjukór, einn þann besta á land- inu,“ segir Eðvarð. Að lokinni guðsþjónustu var kirkjugestum boðið til kaffiveit- inga í Vinaminni. „Þar voru fín- ar rjómatetur ásamt fleiru og allir boðnir velkomnir,“ segir Eðvarð að lokum. kgk Séra Þráinn settur í embætti Frá vinstri talið: Séra Þráinn Haraldsson, séra Eðvarð Ingólfsson sóknarprestur á Akranesi og séra Þorbjörn Hlynur Árnason prófastur á Borg. Ljósm. Guðni Hannesson. Bæjarráð Akraness samþykkti á fundi sínum í síðustu viku úthlut- un styrkja að upphæð samtals kr. 1.820.000. Renna þeir til íþrótta-, atvinnu- og menningarmála. Úthlutunin er eftirfarandi: Kristinn Pétursson, vegna heimild- armyndar um Sementsverksmiðj- una, kr. 70.000 Alltaf Gaman sf. vegna leikjalands á Norðurálsmóti, kr. 150.000 Valgerður Jónsdóttir, vegna tónlist- arstundar, kr. 60.000 Heiðar Mar Björnsson, vegna myndbands um tónlist á Akranesi, kr. 70.000 List- og handverksfélag Akraness og nágrennis, vegna leigu á húsnæði fyrir Gallerí Urmul, kr. 50.000 Þjóðlagasveitin, vegna tónleika í Hörpu, kr. 300.000 ÍA og FVA, vegna afreksíþrótta- sviðs, kr. 300.000 Keilufélag Akraness, vegna ráð- stefna og námskeiða, kr. 100.000 Badmintonfélag Akraness, vegna uppbyggingu og fjölgun iðkenda, kr. 150.000 Knattspyrnufélag ÍA, vegna knatt- spyrnuskóla, kr. 120.000 Gaman saman, vegna forvarnar- starfs, kr. 20.000 Ágúst Júlíusson, vegna sundferða, kr. 50.000 Nýsköpunarkeppni grunnskóla- nemenda 2015, vegna nýsköpunar- kennslu, kr. 80.000 Skagaferðir, vegna skemmtismiðju, kr. 50.000 Skógræktarfélag Akraness, vegna framkvæmdaverkefna, kr. 250.000 mþh Akranesbær úthlutar styrkjum Skógræktarfélag Akraness er einn af 15 styrkþegum að þessu sinni. Hér eru nokkrir félagar við gróðursetningu. Ljósm. jbb.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.