Skessuhorn


Skessuhorn - 27.05.2015, Síða 8

Skessuhorn - 27.05.2015, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015 Samþykkja rekstrasamning fyrir tjaldsvæði DALIR: Sveitarstjórn Dala- byggðar hefur samþykkt sam- hljóða rekstrarsamning um tjaldsvæðið í Búðardal. Hann er gerður við Dalakot ehf. og gild- ir frá undirritun til 30. septem- ber 2015. -mþh Leigu- og rekstrarsamning- ur við ÍA AKRANES: Á 14. fundi skóla- og frístundaráðs Akraness var leigu- og rekstrarsamningur Akraneskaupstaðar og ÍA lagð- ur fram og samþykktur af báð- um aðilum. Breytingarnar fel- ast aðallega í skiptingu tekna vegna heilsuræktarstöðvar. Þeim var áður skipt þannig að ÍA fékk 67% tekna og Akraneskaupstað- ur 33% tekna. Með nýjum samn- ingi verður skipting tekna þann- ig að ÍA fær meira í sinn hlut, eða 80%. Akraneskaupstaður fær þau 20% sem eftir standa Samn- ingurinn gildir til 31. desemb- er 2016. Bæjarráð Akraness hef- ur samþykkt þennan samning. Honum fylgir aukinn kostnaður fyrir bæjarsjóð upp á 3.270.000 krónur. Það verður fært í við- auka við fjárhagsáætlun 2015. -mþh Ferskur þorskur vinsæll LANDIÐ: Á fyrsta ársfjórð- ungi þessa árs var fluttur út ferskur þorskur fyrir 6,4 millj- arða. Það er þriðjungi meira en á sama tíma í fyrra. Umreiknað til kílóverðs er hækkunin hvorki meira né minna en 19%, eða um fimmtungur. Frakkar eru lang- stærsta viðskiptaþjóð Íslendinga í ferskum þorski. Þeirra hlutur var 45% af fimm þúsund tonna heildarútflutningi. Aukning milli ára í magni til Frakklands var 60%. Útflutningsverðmæti þangað voru 3 milljarðar. Þess- ar tölur eru úr gögnum frá Hag- stofu Íslands. –mþh Lýsa ánægju með Norðurpólsför GRUNDARFJ: Bæjarráð Grundarfjarðar lýsti með sér- stakri bókun á fundi sínum ný- verið, ánægju með árangur Mörtu Magnúsdóttur. Eins og Skessuhorn hefur greint frá í viðtali við Mörtu þá fór hún til Norðurpólsins rétt eftir páska. Marta hafði tekið þátt í keppni þar sem 150 ungmenni reyndu að hreppa ferð til Norðurpóls- ins. Marta hafnaði í einu af fimm efstu sætunum og vann sér þar með rétt til ferðarinnar sem var farin á vegum Rússa. Bæjarráð Grundarfjarðar óskar Mörtu til hamingju með þann góða ár- angur sem í fólst í ferð hennar. Mörtu er jafnframt þakkað fyr- ir að halda merkjum Grundar- fjarðarbæjar á lofti í ferðinni en hún var meðal annars mynduð á Norðurpólnum með fána bæjar- félags síns í höndunum eins og lesa mátti um í Skessuhorni. –mþh Vill nýtt sýslu- merki og héraðssöng DALIR: Svavar Garðars- son sendi 8. maí síðastliðinn bréf til sveitarstjórnar Dala- byggðar. Í því hvetur hann til þess að sveitarstjórn setji af stað vinnu við að hanna nýtt merki fyrir Dalasýslu í stað núverandi merkis. Það sýnir ísbjörn, var teiknað um 1930 og er að grunni til hið forna merki Skarðsverja. Svavar hefur einnig lagt til að sveitarstjórn Dalabyggðar samþykki að Undir Dalanna sól verði einkennislag Dala- byggðar. Höfundur texta er Hallgrímur Jónsson frá Ljár- skógum og höfundur lags Björgvin Þór Valdimarsson. Sveitarstjórn Dalabyggð- ar tók erindið fyrir á fundi sínum í síðustu viku. Þar var Svavari þakkaðar ábending- arnar. Sveitarstjórnin telur þó ekki ástæðu til að hanna nýtt merki fyrir Dalasýslu enda hafi dregið úr stjórn- sýslulegu vægi sýslunnar. Á hinn bóginn tók sveitar- stjórnin jákvætt í hugmynd- ina um nýtt lag Dalabyggðar. Samþykkt var í einu hljóði að vísa málinu áfram til menn- ingar- og ferðamálanefndar Dalabyggðar. -mþh Ráða ráðum sínum í þjóð- lendumálum VESTURLAND: Fjármála- og efnahagsráðherra hefur verið veittur frestur til 1. júní 2015 til að skila kröfum um þjóðlendur, ef einhverjar eru á svokölluðu svæði 9. Þetta eru Snæfells- og Hnappa- dalssýsla og Dalasýsla ásamt fyrrum Bæjar- og Brodda- neshreppum og fyrrum Kolbeinsstaðahreppi. Með tölvupósti til sveitarstjórnar Dalabyggðar 6. maí síðastlið- inn lagði oddviti Helgafells- sveitar, Sif Matthíasdóttir til að forsvarsmenn viðkomandi sveitarfélaga hittist fyrir lok maímánaðar og ráði ráðum sínum. Sveitarstjórn Dala- byggðar hefur tekið jákvætt í þetta og tilnefnt samhjóða þá Eyþór J. Gíslason og Sig- urð Bjarna Gilbertsson til að mæta til fundarins. -mþh Þoka í Reyk- holtskirkju REYKHOLT: Tónleikar verða í Reykholtskirkju 31. maí nk. kl. 20.30. Hljóm- sveitin Þoka mun stíga á „svið“ og flytja nokkur lög. Hljómsveitin var stofnuð í ársbyrjun 2012 og tók þátt í Músíktilraunum það ár. Þar hafnaði hún í öðru sæti. Nýverið gaf hljómsveitin út hljómdisk með eigin lög- um og ljóðum. Á tónleikun- um flytur Þoka lög af þess- um diski auk annarra laga. Hljómsveitina skipa Borg- firðingarnir og Reykvíking- arnir Agnes Björgvinsdóttir, Atli Már Björnsson og Reyn- ir Hauksson. Frítt er inn á tónleikana. Hljómdiskurinn verður til sölu. –mþh Hljómsveitin Vök gef í síðustu viku út aðra hjómplötu sína sem hef- ur hlotið heitið Circles. Vök sigr- aði Músíktilraunir 2013 og þykir í dag ein efnilegasta hjómsveit lands- ins eftir að hafa sent frá sér plötuna Tension það sama ár. Hún er tríó og skipuð þeim Andra Má Enoks- syni, Margréti Rán Magnúsdóttur og Ólafi Alexander Ólafssyni. Þau Margrét Rán og Ólafur Alexand- er eiga rætur að rekja til Akraness. Sveitin spilar melódíska raftónlist með saxafónsveiflum en þetta þykir bæði óvenjuleg, heillandi og frum- leg blanda. Vök er nýkomin heim eftir vel heppnaða ferð á The Great Escape tónlistarhátíðina í Brighton á Eng- landi. Þar fékk hún frábæra dóma fyrir tónleika sína. Framundan eru tónleikar í Hörpu þar sem sveitin hitar upp fyrir Ásgeir 16. júní. Þá spilar sveitin á Hróaskelduhátíð- inni í Danmörku í sumar og einn- ig á yfir 10 öðrum tónlistarhátíðum víða um Evrópu. Mörg af stærstu tónlistarbloggum erlendis hafa spáð sveitinni góðu gengi, þ.á.m. New York Times, Drowned In So- und, Line of Best Fit, Clash Ma- gazine og Record of the Day. Upptökur og upptökustjórn á nýju plötunni var í höndum félaga Vakar en Biggi Veira, oftast kennd- ur við GusGus, sá um hljóðblönd- un og hljómjöfnun. Það er Record Records sem gefur út á Íslandi. Hönnun umslagsins á Circles er eftir Snorra Eldjárn en Héðinn Ei- ríksson tók ljósmyndirnar. Platan er komin í verslanir. mþh Kaffihúsið Garðakaffi, í Safn- askálanum á Akranesi, verð- ur opnað á nýjan leik þriðju- daginn 2. júní næstkomandi. Nýir rekstraraðilar hafa tek- ið við rekstrinum en það er Sara Djeddou Baldursdótt- ir sem munu reka kaffihús- ið í sumar með aðstoð móð- ur sinnar, Guðnýjar Guð- jónsdóttur. Garðakaffi verð- ur rekið með breyttu sniði frá því sem áður var. Sú breyting felst einna helst í lengri opn- unartíma, boðið verður upp á heitan mat og staðið verð- ur fyrir fjölbreyttum viðburð- um í kaffihúsinu. „Við ætlum að skapa „kósý“ stemningu og verðum með gott úrval kaffi- drykkja, kökur og bakkelsi, matarmiklar súpur og heit- an mat í hádeginu. Við verð- um með opið frá kl. 11 - 18 á virkum dögum og til kl. 23 um helgar. Svo ætlum við að vera með fjölbreytta viðburði yfir sum- arið, eins og konukvöld, hand- verks- og matarmarkaði auk þess að taka helgi í að skapa Kolaports- stemningu,“ segir Sara. Hún bætir því við að barnahorn verði í Garða- kaffi, þar sem einhver leikföng og bækur verða fyrir yngstu kynslóð- ina og lögð verði áherslu á hlýlegt umhverfi. Endaði óvænt í bransanum Sara, sem býr í Mosfellsbæ, mun sjálf starfa á staðnum en hún hefur sterk tengsl við Akranes.. „Mamma er ættuð héðan en er brottflutt. Ég hef því ekki búið hér síðan ég var smábarn þótt ég sé fædd hér á sjúkrahúsinu. Við erum í miklum tengslum við fólk- ið okkar á Akranesi enda býr restin af fjölskyldunni hér. Þannig að það er aldrei að vita nema við fáum einhverja hjálp frá þeim ef þess þarf,“ segir Sara. Hún sjálf er búin að vera í veitingabransanum síðan hún var 16 ára göm- ul og hefur víðtæka reynslu. „Ég hef unnið á nokkrum veitingastöðum, meðal ann- ars sem yfirþjónn hjá Bambus og aðstoðarveitingastjóri hjá Foodco. Ég fíla þetta vel, þó ég hafi endað óvænt í þessum bransa,“ útskýrir Sara. Garðakaffi verður opnað aftur fyrir almenning 1. júní næstkomandi en leigutíminn er til 31. ágúst. Að sögn Söru munu þær byrja á sumrinu og ætla svo að sjá til hvernig hlutirnir þróast. „Við verðum með opnunar- tilboð og viðburði. Svo verður nóg um að vera fyrstu helgina í júní, þá er sjómannadagurinn og það verð- ur Íslandsmót í eldsmíði hérna á Safnasvæðinu,“ segir nýr rekstrar- aðili Garðakaffis kátur að endingu. grþ Kanadíska sagnakonan Karen Gummo hefur brennandi áhuga á sögu íslenskra forfeðra sinna og hefur í mörg ár safnað fjölskyldu- sögum, söngvum og þjóðsögum sem tengjast Íslandi. Nú er hún komin í langþráða ferð til Íslands og verður með sögustund í Sögu- stofu Inga Hans í Grundarfirði, þar sem hún leyfir viðstöddum að njóta þess sem hún er búin að safna. Sögustundin, sem kallast „Í fótspor íslenskra forfeðra,“ verður sunnu- daginn 31. maí, kl. 20 og fer fram á ensku. Aðgangseyrir er 1.500 krón- ur og er boðið upp á molasopa. „Það er fátt sem jafnast á við það að heyra góðar sögur sem eru sagðar af snilld og því bíða marg- ir spenntir eftir sögustundinni með Karen Gummo. Nánari upplýsing- ar er að finna á www.ildi.is,“ segir í fréttatilkynningu. mm Garðakaffi opnar aftur með nýjum brag. Hér er Sara Djeddou Baldursdóttir sem mun reka kaffihúsið í sumar. Nýir rekstraraðilar taka við Garðakaffi á Akranesi Sögustund með kanadískri sagnakonu í Grundarfirði Tríóið Vök er skipað þeim Andra Má Enokssyni, Margréti Rán Magnúsdóttur og Ólafi Alexander Ólafssyni. Þessi mynd sýnir umslag nýju plötunnar. Hljómsveitin Vök með nýja plötu

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.