Skessuhorn


Skessuhorn - 27.05.2015, Page 13

Skessuhorn - 27.05.2015, Page 13
13MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015 Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir laust til umsóknar starf þroskaþjálfa Um er að ræða 100% starf á skóla- og félagsþjónustusviði FSS á Snæfellsnesi Starfssvið Umsjón og stjórnun búsetu- og dagþjónustunnar „Smiðjunnar“ í • Ólafsvík Stjórn• un þjónustumatsteymis og starfsmannahalds málaflokksins Rá• ðgjöf til leik- og grunnskóla vegna barna og ungmenna með fötlun St• efnumótun og þverfagleg samvinna Hæfniskröfur Starfsbundin réttindi þroskaþjálfa eða önnur hliðstæð og/eða • sambærileg háskólamenntun er nýtist í tilgreindu starfi Fr• umkvæði og sjálfstæð vinnubrögð Sam• skipta- og samstarfshæfni Áhugi o• g hæfileikar fyrir stefnumótun, stjórnun og eftirfylgni Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga, Þroskaþjálfafélags Íslands eða viðkomandi stéttarfélags Upphafstími starfs er septembermánuður nk. Skrifleg umsókn er tilgreini menntun umsækjanda, fyrri störf, persónulega hagi og 2 umsagnaraðila ásamt sakavottorði berist Sveini Þór Elinbergssyni, forstöðumanni Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbæ, fyrir 17. júní nk. Frekari upplýsingar í síma 861-7802; sveinn@fssf.is Umsóknarfrestur er til 17. júní nk. Þroskaþjálfi SK ES SU H O R N 2 01 5 Föstudaginn 22. maí brautskráð- ust 14 nemendur frá Fjölbrauta- skóla Snæfellinga í Grundarfirði. Af félagsfræðabraut brautskráð- ust þau Amila Crnac, Bjarki Sig- urvinsson, Gunnar Páll Svansson og Sigrún Pálsdóttir. Af listnáms- braut: Ásdís Magnea Erlendsdótt- ir og Sólveig Ásta Bergvinsdóttir og af náttúrufræðibraut: Emil Ró- bert Smith, Erla Guðný Pálsdótt- ir, María Rún Eyþórsdóttir, Stein- þór Stefánsson, Szymon Bednaro- wicz og Vignir Snær Stefánsson. Með viðbótarnám til stúdentsprófs útskrifuðust Birna Hermannsdóttir og Guðbjörg Valsdóttir. Athöfnin hófst á því að Amelía Rún Guðlaugsdóttir og Gréta Sig- urðardóttir, nemendur úr Tónlist- arskóla Grundarfjarðar, sungu lag- ið I see fire, sem frægt er orðið í flutningi Ed Sheeran, við undir- leik Önnu Halldóru Kjartansdótt- ur einnig nemanda við sama tón- listarskóla. Jón Eggert Bragason, skólameistari Fjölbrautaskóla Snæ- fellinga brautskráði síðan nemend- ur og flutti ávarp. Í ávarpinu tal- aði hann m.a. um það hversu mik- ilvægt það væri að setja sér mark- mið og vinna að þeim af heilindum. Hann sagði einnig að einstakling- ur með metnað, sjálfstæði í hugs- un og athöfnun væri líklegri til þess að skapa eitthvað nýtt heldur en sá sem bíður eftir því að vera sagt fyr- ir verkum. Nútímasamfélag kall- aði á slíkt frumkvæði og hann efað- ist ekki um að þessi hópur næði að setja mark sitt á samfélagið sem þau vildu lifa og starfa í. Jón Eggert fór einnig yfir það að fyrir ári síðan hafi skólinn átt tíu ára afmæli og hafi þá verið færðar góðar gjafir. Hann til- kynnti að hluti þess fjár sem skól- anum bárust færi í að bæta að- stöðu fyrir kennslu í listgreinum og kaupa spjaldtölvur svo fátt eitt væri nefnt. Skólameistari fjallaði einnig um kennsluhætti FSN sem eru oft- ar en ekki bornir saman við vinnu- brögð í háskólum. Fjölbreyttara námsframboð er það sem verið er að stefna að og kynnti hann fjórar nýjar námsbrautir til stúdentsprófs, þær eru félags- og hugvísindabraut, raungreinabraut, listabraut og opin braut til stúdentsprófs. Jón Eggert kvaddi síðan með blómvendi þær Helgu Lind Hjart- ardóttur og Unu Ýr Jörundsdóttur en Helga hefur starfað við skólann frá árinu 2006 en Una frá stofnun hans. Að lokum kvaddi hann allt starfsfólk og nemendur og þakkaði samstarfið seinustu fimm ár. Hrafnhildur Hallvarðsdóttir að- stoðarskólameistari afhenti síð- an nemendum viðurkenningar fyr- ir góðan námsárangur. Hæstu ein- kunn á stúdentsprófi þetta vorið hlaut Vignir Snær Stefánsson. Hann fékk veglega bókagjöf frá sveita- félögunum sem standa að skólanum og peningagjöf frá Landbankanum í Snæfellsbæ. Hann hlaut einnig viðurkenningu fyrir góðan árang- ur í lýðheilsu- og íþróttatengdum áföngum frá Embætti landlæknis. Sigrún Pálsdóttir hlaut viðurkenn- ingar fyrir góðan árangur í stærð- fræði og félagsgreinum gefin af Ar- ion banka og sveitafélögunum. Emil Róbert Smith hlaut viðurkenningu frá Háskólanum í Reykjavík fyrir góðan árangur í stærðfræði og eðl- isfræði. Steinþór Stefánsson hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í ensku og íslensku sem gefin voru af sveitafélögunum. Hann hlaut einnig viðurkenningu í þýsku gefin af Þýska sendiráðinu. Amila Crnac hlaut viðurkenningu fyrir góðan ár- angur í ensku ásamt því að fá viður- kenningu frá deild erlendra tungu- mála, málvísinda og bókmennta við HÍ. Amila hlaut einnig viðurkenn- ingu Ísbrúar – félags kennara sem kenna íslensku sem annað tungu- mál fyrir frábæra frammistöðu í námi í íslenskum framhaldsskóla. Kvenfélagið Gleym mér ei gaf einnig viðurkenningu fyrir góðan árangur í list- og verkgreinum. Þau hlutu þau Emil Róbert Smith og Sólveig Ásta Bergvinsdóttir. Nýstúdentinn Ásdís Magnea Er- lendsdóttir flutti svo án undirleiks lagið Sommertime eftir Gershwin úr söngleiknum Porky og Bess. Sólrún Guðjónsdóttir flutti kveðjuræðu fyrir hönd kennara og starfsfólks og Erla Lind Þórisdótt- ir flutti ræðu fyrir hönd fimm ára stúdenta. Þær Amelía, Gréta og Anna Halldóru fluttu svo annað lag og nú sungu þær og spiluðu lagið Make you me feel you love eftir Adele. Þessar efnilegu söng- og tónlista- konur settu persónulegan sem og hátíðlegan brag á athöfnina. Emil Róbert Smith og Sólveig Ásta Bergvinsdóttir héldu sameig- inlega kveðjuræðu fyrir hönd ný- stúdenta þar sem þau kvöddu skól- ann og starfsfólk hans á einlægan og skemmtilegan hátt. Áður en skóla- meistari sleit ellefta skólaári FSN og bauð gestum í kaffi og kökur þá fékk Björg Ágústsdóttir formað- ur skólanefndar orðið. Björg ásamt Sigríði Finsen, einnig í skólanefnd, notuðu tækifærið og kvöddu Jón Eggert Bragason, fráfarandi skóla- meistara FSN, en hann heldur nú á ný mið. Þær þökkuðu honum sam- starfið og sögðu að það væri með miklu trega sem þær væru að kveðja hann eða útskrifa eins og Björg orð- aði það, enda verði erfitt að fylla í hans skarð þar sem hann hefur ver- ið afar farsæll í starfi við skólann seinustu fimm árin. hhh/ Ljósm. tfk Hér útskrifar Jón Eggert skólameistari dúx skólans, Vigni Snæ Stefánsson. Útskrifað frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga Útskriftarhópurinn ásamt skólameistara og aðstoðarskólameistara. Lausar stöður við Grunnskólann í Borgarnesi Við leitum að öflugu fólki í eftirtaldar stöður frá og með 1. ágúst 2015 Umsjónarkennurum á yngsta- og miðstigi (1.-7. bekk)• Tónmenntakennara• Heimilisfræðikennara• Sérkennara • Menntun, reynsla og hæfni: Kennsluréttindi í grunnskóla og kennslureynsla• Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar• Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og sköpunarkjarkur• Jákvæðni, ábyrgðarkennd og skipulagshæfileikar• Góð kunnátta í íslensku skilyrði • Óskað er eftir einstaklingum sem eru tilbúnir að taka þátt í virku og skapandi skólastarfi og hafa hugrekki til þess að feta nýjar slóðir Grunnskólinn í Borgarnesi er heildstæður skóli með um 300 nemendur í 1.–10. bekk og tekur virkan þátt í skóla- samfélagi Borgarbyggðar Mikil þróun á sér stað innan skólans og einstakt tækifæri fólgið í því að vera hluti af þeirri sterku heild sem kennarar og starfsfólk skólans mynda Umsóknarfrestur er til 8. júní Umsóknir skal senda til Signýjar Óskarsdóttur skólastjóra, signy@grunnborg.is, sem einnig veitir nánari upplýsingar í síma 698-9772 SK ES SU H O R N 2 01 5

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.