Skessuhorn - 27.05.2015, Side 20
20 MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015
Sveitarstjórn Borgarbyggðar kynnti
í síðustu viku skýrslur tveggja starfs-
hópa um skóla- og húsnæðismál í
sveitarfélaginu. Annar starfshópur-
inn átti að hafa til umfjöllunar hag-
ræðingu í fræðslumálum og leggja
til framtíðarskipan í skólamálum en
hinn hafði það hlutverk að fjalla um
eignir sveitarfélagsins Borgarbyggð-
ar og mögulega sölu þeirra. Farið var
af stað með þessa vinnu að beiðni
sveitarstjórnar vegna bágrar rekstr-
ar- og fjárhagsstöðu sveitarfélagsins.
Báðir vinnuhóparnir voru mannað-
ir af fólki úr sveitarstjórn og einum
varamanni í sveitarstjórn. Í niður-
stöðum skýrslu starfshóps um hag-
ræðingu í fræðslumálum eru m.a.
lagðar til róttækar breytingar. Þar
á meðal lokun Grunnskóla Borgar-
fjarðar á Hvanneyri, færslu leikskóla
frá Grímsstöðum að Kleppjárns-
reykjum, færslu skólahalds á Varma-
landi í eitt hús (gamla grunnskóla-
húsið), sölu húss Tónlistarskóla
Borgarfjarðar, kennsku 10. bekkj-
ar í Borgarnesi í húsi Menntaskóla
Borgarfjarðar, hagræðingu í skóla-
akstri og sitthvað fleira. Hópurinn
segist í niðurstöðum sínum byggja
tillögur sínar á hugmyndum sem
fram hafa komið á fundum og í við-
tölum við starfsfólk Borgarbyggð-
ar, auk þess sem stuðst hafi verið
við fyrirliggjandi skýrslur um skipu-
lag skólamála í Borgarbyggð, gögn
um núverandi stöðu og tillögur ráð-
gjafa.
Leggja niður grunnskóla
á Hvanneyri
Sú tillaga sem fyrirfram hefur
mætt mestri andstöðu íbúa er lok-
un Hvanneyrardeildar Grunn-
skóla Borgarfjarðar. Um það seg-
ir: „Vinnuhópurinn leggur til sam-
einingu leikskóla og yngstu tveggja
bekkja grunnskólans á Hvanneyri.
Foreldrar hafi val um þessa leið.
Þetta felur í sér að 3., 4., 5. og 6.
bekkur barna frá Hvanneyri stundi
nám við Grunnskólann í Borgarnesi
frá og með næsta hausti. Nemend-
um frá Hvanneyri sem eru komnir á
Kleppjárnsreyki verði gefinn kostur
á að ljúka skólagöngu þar.“
Þá segir í niðurstöðum starfs-
hópsins: „Lagt er til að skoðaðir
verði kostir þess að nám nemenda
í 10. bekk fari fram í Menntaskóla
Borgarfjarðar (Hjálmakletti). Þessi
valkostur verði skoðaður í samstarfi
og samráði við stjórnendur Mennta-
skóla Borgarfjarðar, stjórnendur
grunnskóla og foreldra.
Lagt er til að starfsstöð Grunn-
skóla Borgarfjarðar á Varmalandi
verði sameinuð í eitt húsnæði á
Varmalandi og flutt alfarið í gamla
barnaskólann. Þessi tillaga komi
strax til framkvæmda og verði allir
nemendur komnir í sama húsnæði
haustið 2015.
Ljóst er að mæta þarf húsnæðis-
þörf leikskólans Hnoðrabóls. Nú-
verandi húsnæði er ekki viðunandi.
Lagt er til að skoðað verði hvort að
hægt sé að nýta húsnæðis grunn-
skólans á Kleppjárnsreykjum undir
leikskólann. Skoða þarf hagkvæmni
þess að leikskólinn verði staðsett-
ur í húsnæði grunnskólans á Klepp-
járnsreykjum, kostnað við end-
urbætur á húsnæði og lóðafram-
kvæmdir sem ráðast þyrfti í. Sú leið
verði borin saman við þær leiðir sem
lagðar voru til í skýrslu vinnuhóps
um Hnoðraból.“
Samningur um
Laugargerði fram-
lengdur um þrjú ár
Í niðurstöðum vinnuhópsins um
fræðslumál segir jafnframt að ef
sveitarstjórn samþykkir tillögur
hópsins muni mötuneytum fækka
um tvö, eitt á Hnoðrabóli og eitt á
Hvanneyri. „Ennfremur ætti fækk-
un starfsstöðva að hafa í för með sér
bætt aðgengi og einfaldara skipu-
lag íþrótta- og tómstundaskóla og
tónlistarskóla.“ Lagt er til að kall-
að verði eftir sjónarmiðum foreldra
barna á skólasvæði Laugargerðis-
skóla um flutning barna í Grunn-
skólann í Borgarnesi. Samningur við
Laugargerðisskóla verði framlengd-
ur til næstu þriggja skólaára með
þeim hætti að greitt verði fast gjald
á nemenda fyrir þá nemendur Borg-
arbyggðar sem þar stunda nám.“
Leikskólaaldur og
yfirstjórn
Lagt er til að inntökualdur í öllum
leikskólum Borgarbyggðar verði 18
mánuðir frá og með haustinu 2015.
Inntökutími verði samræmdur í öll-
um leikskólum frá og með haustinu
2015.
Einnig er lagt til að gerðar verði
breytingar á yfirstjórn fræðslumála.
Fjölskyldusvið verði aðskilið frá
fjármálasviði og áhersla lögð á að
styrkja stjórnsýslu á sviði fræðslu-
mála. Vægi mannauðsstjórnunar
verði aukið innan stjórnsýslunnar.
Loks leggur vinnuhópurinn áherslu
á eftirfylgni með breytingum og
ráðgjöf til stjórnenda. „Ráðinn verði
verkefnisstjóri í 6-12 mánuði til að
vinna betur með tillögur hópsins,
vinna að nánari útfærslum í samráði
og samstarfi við stjórnendur og inn-
leiða breytingar í skólastarfi í Borg-
arbyggð.“
Vilja selja hús
Tónlistarskólans
Varðandi Tónlistarskóla Borgar-
fjarðar segir: „Áform eru um að
færa Tónlistarskólann inn í nýbygg-
ingu við Grunnskólann í Borgar-
nesi. Í ljósi ástands hússins þá leggur
vinnuhópur um eignir til að Borg-
arbraut 23 verði seld og fundin
góð aðstaða fyrir skólann í samráði
t.d. við Grunnskóla Borgarness og
Menntaskóla Borgarfjarðar þangað
til að skólinn flytur í nýtt húsnæði.“
Hagræðing í skólaakstri
Þá fjallaði vinnuhópurinn um skóla-
akstur, meðal annars í Borgarnesi.
„Lagt er til að gerð verði sérstök
úttekt á fyrirkomulagi og nýtingu
skólaaksturs innanbæjar í Borgar-
nesi með það að markmiði að fækka
ferðum fyrir næsta skólaár. Gerð
verði úttekt á nýtingu tómstunda-
aksturs og skoðað hvort hagkvæm-
ara sé að taka upp styrki til foreldra
vegna aksturs barna í íþróttir og
tómstundir.“
Í vinnuhópi um rekstur og skipu-
lag fræðslumála sátu: Guðveig
Eyglóardóttir, sem jafnframt var
formaður hópsins, Finnbogi Leifs-
son, Björn Bjarki Þorsteinsson,
Geirlaug Jóhannsdóttir og Sigríður
Júlía Brynleifsdóttir. mm
Starfshópur leggur fram róttækar tillögur í
fræðslumálum í Borgarbyggð
Sú tillaga starfshópsins sem lengst gengur er að leggja niður Hvanneyrardeild Grunnskóla Borgarfjarðar.
Hópur fólks í Borgarfirði boð-
aði til íbúafundar í félagsheim-
ilinu Logalandi síðastliðið mánu-
dagskvöld. Þangað mættu um 130
íbúar til að mótmæla niðurstöðu
starfshóps á vegum Borgarbyggð-
ar sem leggur m.a. til í skýrslu sem
kynnt var í síðustu viku að starfs-
stöð Grunnskóla Borgarfjarðar á
Hvanneyri verði lokað. Að sögn
Þóru Geirlaugar Bjartmarsdótt-
ur talsmanns íbúa og fundarboð-
enda var tilefni fundarins að íbúar
ræddu skýrslu vinnuhópsins. „Við
ræddum um framkomnar tillögur
um breytingu á skólastarfi á svæði
Grunnskóla Borgarfjarðar og buð-
um sveitarstjórn að mæta og hlusta
á raddir okkar. Íbúum er ekki sama
um framtíð skólamála í héraðinu
og það kom glöggt fram á þessum
fundi,“ sagði Þóra Geirlaug. Um
tugur íbúa tjáði sig á fundinum
og var þungt hljóð í fólki, sem þó
var málefnalegt og rökfast. Eink-
um var það barnafólkið sem tjáði
þá skoðun sína að ekki kæmi til
greina að loka neinum af starfs-
stöðvum Grunnskóla Borgar-
fjarðar, en skólinn er nú á Klepp-
járnsreykjum, Varmalandi og á
Hvanneyri. GBF var til við sam-
einingu grunnskólanna í uppsveit-
um Borgarfjarðar fyrir fimm árum
í kjölfar tillögu þáverandi sveitar-
stjórnar um að loka Grunnskólan-
um á Kleppjárnsreykjum. Því var
harðlega mótmælt þá og horfið frá
þeim fyrirætlunum með stofnun
sameinaðs skóla.
Stóð nú í sömu sporum
og fyrir fimm árum
Í ávarpi sínu í upphafi fundar sagð-
ist Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir
vera stolt af því að búa í Borgar-
byggð, þar væri allt sem þyrfti fyr-
ir barnafólk. Af þeim sökum hefði
allt þetta unga fólk valið sér búsetu
þar. „Skólarnir okkar eru forsenda
þess að við viljum búa hér. Í okk-
ar huga kemur ekki til greina að
hreyfa við þeim starfsstöðvum sem
í dag eru undir Grunnskóla Borg-
arfjarðar.“ Þóra Geirlaug sagði að
fyrir fimm árum hefði hún staðið
í sömu sporum og nú, en þá hafi
skólinn á Kleppjárnsreykjum verið
undir niðurskurðarhnífnum. Það
mál hafi verið farsællega til lykta
leitt með stofnun Grunnskóla
Borgarfjarðar og síðan hafi verið
unnið að kröftugu uppbyggingar-
starfi í skólanum. Nú boði sitjandi
sveitarstjórn hins vegar uppbrot á
því góða starfi vegna fjárhagsvand-
ræða sveitarfélagsins. „Skólarn-
ir okkar snúast um samfélagslega
grunnstoð og það er ekki hlutverk
sveitarstjórnar að brjóta hana nið-
ur,“ sagði Þóra Geirlaug.
Níu aðrir tóku til máls á fundinu,
bæði foreldrar barna á grunnskóla-
aldri og nokkrir afar og ömmur
sem láta sig málið varða sem þegnar
í samfélaginu. Fundarmenn bentu á
með ýmsum hætti að það væri ekki
hlutverk sveitarstjórnar Borgar-
byggðar að skerða þá lögbundnu
grunnþjónustu sem skólarnir væru.
Ef sveitarstjórn treysti sér ekki til að
reka sveitarfélagið með þeim stofn-
unum sem í því væri, bæri henni að
víkja og láta aðra taka við því kefli.
Jafnvel var gengið svo langt að
benda á að óbreyttu vildu menn þá
frekar hverfa eina sameiningu aft-
ur í tímann og endurvekja sveitar-
félagið Borgarfjarðarsveit. Lófa-
tak í kjölfar þess benti til þess að
gjá hafi myndast milli þéttbýlis og
dreifbýlis í Borgarbyggð. Í því sam-
bandi var bent á að í vinnuhópi um
hagræðingu í skólamálum í sveitar-
félaginu hefði einungis setið fólk af
Mýrum og úr Borgarnesi og bæri
niðurstaðan þess glöggt merki. Þá
var fólki tíðrætt um að verkefnis-
stjóri um skýrsluskrifin hafi, að því
er virtist, skrifað skýrslu með pant-
aðri niðurstöðu.
Samþykktu ályktun
Í lok fundarins í Logalandi á mánu-
dagskvöldið var einróma samþykkt
ályktun vegna niðurstöðu hagræð-
ingarnefnar í fræðslumálum í Borg-
arbyggð: „Það er grundvallarkrafa
fundarmanna að staðið sé vörð um
starfsstöðvar Grunnskóla Borgar-
fjarðar í núverandi mynd. Skólarn-
ir eru grunnforsenda þess að fólk
setjist að í sveitarfélaginu. Sveit-
arstjórn verður að virða það sam-
komulag sem gert var við samein-
ingu sveitarfélaganna og leita ann-
arra leiða til hagræðingar.“
Engin ákvörðun
tekin enn
Flestir sveitarstjórnarfulltrúar úr
Borgarbyggð sátu fundinn en tóku
ekki þátt í umræðum. Í lokin ávarp-
aði þó Björn Bjarki Þorsteinsson
forseti sveitarstjórnar fundargesti
og þakkaði kröftugan fund. „Nú
höfum við fulltrúar í sveitarstjórn
hlustað á raddir ykkar. Skýrslan
liggur fyrir en hefur ekki verið rædd
né afgreidd í sveitarstjórn. Skila-
boð af þessum fundi verða höfð til
hliðsjónar við ákvörðun í málinu,“
sagði Björn Bjarki.
mm
Kröftug mótmæli við tillögu um lokun Hvanneyrardeildar GBF
Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir var í hópi fólks sem boðaði til íbúafundarins og
flutti jafnframt framsöguerindi. Þorvaldur Jónsson í Brekkukoti stýrði fundi.
Um 130 manns mættu á fundinn í Logalandi á mánudagskvöldið, þar sem full-
trúar í sveitarstjórn hlýddu á fjölmörg rök fyrir óbreyttu fyrirkomulagi skólamála í
uppsveitum Borgarfjarðar.