Skessuhorn


Skessuhorn - 27.05.2015, Qupperneq 21

Skessuhorn - 27.05.2015, Qupperneq 21
21MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015 Sveitarfélagið Borgarbyggð á fjölda fasteigna auk þess að eiga hlutdeild í nokkrum félögum. Starfshópur um eignir og eignarhluta í sveitar- félaginu og mögulega sölu þeirra skilaði í síðustu viku af sér skýrslu. Lagt er til að sala fjölda eigna verði undirbúin til að létta á skuld- um sveitarsjóðs og bæta rekstrar- hæfi sveitarfélagsins. Starfshópur- inn leggur til að seldar verði eignir sem hafa fasteignamat að upphæð 308,4 milljónir króna og að fast- eignir að upphæð 167,7 milljónir verði mögulega seldar. Þegar eru fasteignir að fjárhæð kr. 64,9 millj- ónir króna í söluferli. Allar þess- ar upphæðir taka mið af fasteigna- mati. Hvað eignarhluti í félögum viðvíkur leggur starfshópurinn til að seldir verði minni eignarhlutir Borgarbyggðar í félögum og hlut- deild sveitarfélagsins í reiðhöll- inni í Borgarnesi lækkuð þannig að sveitarfélagið eigi ekki áfram meirihluta í félaginu. Ákveðið var að skoða möguleika á sölu 0,93% eignarhlutar Borgarbyggðar í Orkuveitu Reykjavíkur og vinna verðmat á félaginu í samvinnu við meðeigendur í OR. „Jafnframt var ákveðið að selja ekki hlut Borgar- byggðar í Faxaflóahöfnum í ljósi þeirra jákvæðu framtíðarhorfa sem við félaginu blasa að óbreyttu,“ segir í niðurstöðu starfshópsins. Hússtjórnarskólinn verðmætastur Starfshópurinn leggur til í skýrslu sinni að seldar verði alls tólf fast- eignir. Langmest verðmæti er tal- ið felast í húsi fyrrum Hússtjórn- arskólans á Varmalandi sem síð- ari ár hefur verið nýtt undir ung- lingadeild Grunnskóla Borgar- fjarðar á Varmalandi. Áætlað er að að hægt verði að fá 146 millj- ónir fyrir húsið. Auk þess er lagt til að seldar verði fimm húseignir á Varmalandi, núverandi húsnæði leikskólans Hnoðrabóls á Gríms- stöðum í Reykholtsdal, salur í húsi eldri borgara við Borgarbraut 65a, útihús og íbúðarhús á Kárastöðum við Borgarnes og íbúð við Kveld- úlfsgötu 28 í Borgarnesi. Áætlað er að söluvirði allra fyrrgreindra húseigna sé 255,2 milljónir króna. Auk þessara tólf eigna eru fjórar fasteignir þegar í söluferli, en það eru Kveldúlfgata 2b, íbúðarhús á Varmalandi, Árberg 4a á Klepp- járnsreykjum og Gunnlaugsgata 17 í Borgarnesi. Loks nefnir starfshópurinn nokkrar aðrar eignir sem mögu- lega mætti selja. Þær eru hús Tón- listarskóla Borgarfjarðar við Borg- arbraut 23 í Borgarnesi, frystihús og reykhús í Brákarey, parhús á Kleppjárnsreykjum, skrifstofuhús- næði í Litla Hvammi í Reykholti og félagsheimilið Valfell í Borg- arhreppi. Áætlað söluverð þessara eigna er 142,2 milljónir króna. Eignarhlutir í félögum Í skýrslu vinnuhópsins segir að Borgarbyggð hafi í áranna rás eign- ast hluti í ýmsum félögum og séu þeir ólíkir að gerð og starfsemi. Mest verðmæti felist í 0,93% eignarhluta í Orkuveitu Reykjavíkur sem verð- metinn er á 379,2 milljónir króna og 4,14% eignarhlutur í Faxaflóa- höfnum sem verðmetinn er á 343,6 milljónir króna. Þá er 1,78% hlutur í Lánasjóði sveitarfélaga metinn á 157,8 milljónir króna, 92% eignar- hlutur í Menntaskóla Borgarfjarðar er metinn á 58,2 milljónir króna og 56% hlutur í Reiðhöllinni í Borgar- nesi er verðmetinn á 76,7 milljónir króna. Starfshópurinn leggur til að selja sem flesta minni eignarhluta í ýmsum fyrirtækjum. „Samfélags- legt virði þeirra er mismunandi en í ljósi núverandi aðstæðna í samfé- laginu og sveitarfélaginu telur hóp- urinn óhætt að selja þessa hluti.“ Í vinnuhópnum um eignir sveit- arfélagsins sátu fimm sveitarstjórn- arfulltrúar: Jónína Erna Arnar- dóttir, sem jafnframt var formað- ur hópsins, Helgi Haukur Hauks- son, Hulda Hrönn Sigurðardótt- ir, Magnús Smári Snorrason og Ragnar Frank Kristjánsson. mm Borgarbyggð vill selja hlut í OR en eiga áfram Faxaflóahafnir Starfshópurinn leggur til að skoðuð verði sala á 0,93% eignarhlut Borgarbyggðar í Orkuveitu Reykjavíkur. Verðmesta fasteignin sem lagt er til að verði seld er fyrrum skólahús Húsmæðra- skólans á Varmalandi. Ljósm. Mats Wibe Lund. Tafla yfir þær fasteignir sem starfshópurinn leggur til að verði seldar. Yfirlit yfir ýmsa eignarhluti Borgarbyggðar í félögum. Nældu þér í rafrænt eintak á www.skessuhorn.is Upplýsingar um Vesturland á ensku og íslensku auk fjölda ljósmynda. Ferðast um Vesturland – Travel West Iceland 2015 er komið út! Ferðaþjónustufyrirtæki geta nálgast blöð á Markaðsstofu Vesturlands í Hyrnutorgi í Borgarnesi

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.