Skessuhorn


Skessuhorn - 27.05.2015, Page 22

Skessuhorn - 27.05.2015, Page 22
22 MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015 „Ég er Hornstrendingur að ætt og uppruna,“ sagði Þrúður Kristjáns- dóttir þegar blaðamaður Skessu- horns ræddi við hana í síðustu viku. Hún fæddist á Ísafirði árið 1938. Foreldrar hennar voru Jó- hanna Jakobsdóttir frá Reykja- firði í Grunnavíkurhreppi á Horn- ströndum og Kristján Guðjóns- son frá Skjaldabjarnavík á Strönd- um. „Þau ólust upp sitt hvoru megin við sýslumörk Norður- Ísafjarðarsýslu og Strandasýslu, þau liggja um Geirólfsnúp, fjall- ið milli bæjanna. Pabbi var vinnu- maður í Reykjarfirði, þegar hann var ungur. Þannig kynntust for- eldrar mínir,“ segir hún. Systkini Þrúðar eru átta talsins, fimm syst- ur og tveir bræður: Jóna Valgerð- ur, Fjóla Guðrún, Laufey Erla, Freyja, Guðjón Arnar, Matthildur Herborg, Jakob Kristján og Anna Karen. „Fyrst komu fimm systur í röð og pabbi var búinn að bíða lengi eftir strák. Svo loksins kom Addi [Guðjón Arnar, innsk. blaða- manns] og pabbi gladdist mjög. Addi var alveg fordekraður langt fram eftir aldri,“ segir hún og hlær við. Þrúður flutti frá Ísafirði 17 ára gömul og hóf nám í Handíða- og myndlistarskólanum í Reykjavík. „Ég teiknaði alltaf mikið og mál- aði. Hef alltaf haft mjög gaman af því en geri það allt of sjaldan. Ég var einn vetur í myndlistarskólan- um en skólinn var í húsnæðishraki og mér fannst dálítill losarabragur, svo ég hætti. Samferðamenn mín- ir þarna voru meðal annars Alfreð Flóki og fleiri flottir listamenn. Þeir urðu frægir en ég ekki,“ seg- ir hún og brosir. „Eftir að ég hætti þarna fer ég í Fóstruskólann sem síðar varð leikskólakennaradeild Kennara- háskólans. Þar var ég í tvo vetur í námi og svo sumar- langt í starfsnámi. Út á þetta nám tek ég svo við kennslu í Búðardal árið 1962. Þá voru þar 21 nem- andi á aldrinum sjö til þrettán ára. Það hafði gengið illa að ráða kenn- ara og ég kem ekki þangað fyrr en í nóvember og þá hefst loks kennsla þann veturinn. Krakkarnir voru því orðnir mjög spenntir að byrja í skólanum. Ég var eini fast- ráðni kennarinn og einnig skóla- stjóri,“ segir Þrúður. „Skólinn var húsnæðishraki þar líka á þessum tíma. Hótel Bjarg, þar sem skól- inn hafði starfað, hafði brunnið um haustið og allur búnaður skól- ans, þannig að byrja varð á því að kaupa allt smátt og stórt til skóla- haldsins. En mér þótti strax mjög gaman að kenna og var með frá- bæra krakka. Þrettán ára krakk- arnir voru þarna alveg eins og liðs- stjórar. Þau vildu hjálpa mér eins og þau gátu og gættu alltaf vel að yngri krökkunum. Allir léku sér saman og þau voru góð hvort við annað. Ég fylgdist svo með þeim út um gluggann. Þetta var bara æðislega skemmtilegt.“ Einn vetur varð að heilli starfsævi Þrúður vill meina að á þess- um tíma hafi ákveðin skil orðið í kennsluháttum á Íslandi og nokk- ur kynslóðaskipti. „Ég kom með ýmsa nýbreytni í kennsluna í Búð- ardal. Til dæmis vinnubókagerð og líka föndur fyrir yngstu börn- in. Það var óþekkt þá og ef krökk- unum líkaði ekki það sem ég lét þau gera fékk ég gjarnan að heyra: „Jósep hafði þetta ekki svona“ frá krökkunum. Hann forveri minn gerði hlutina öðruvísi. Hann var af gamla skólanum og ákaflega góður og gáfaður maður,“ segir hún. En það urðu ekki aðeins skil í kennsluháttum í Búðardal þenn- an vetur heldur einnig í lífi Þrúð- ar. „Þegar ég fékk þessa stöðu var maðurinn minn alveg til í að flytja með mér, hann er úr Dölunum. Við ætluðum bara að vera einn vet- ur fyrir vestan. En svo kom ann- ar og skólinn flutti í hluta félags- heimilisins Dalabúðar, sem þá var í byggingu. Þar var kennt til 1977 þegar við fluttum í nýja skólann. Þá var búið að berjast lengi fyrir því að byggt yrði skólahús.“ Þegar upp var staðið var Þrúð- ur kennari í Búðardal í rétta hálfa öld. „Það voru tveir vetur sem ég kenndi ekki á þessum 50 árum. Ég fór í Kennaraskólann 1972. Þá tók skólinn inn nemendur sem ekki höfðu stúdentspróf, en höfðu kennt. Ég fékk að lesa þriðja bekk utan skóla en sat svo í 4. bekk og lauk kennaraprófinu árið 1973. Síðar fékk ég námsleyfi eitt ár og lauk prófi í sérkennslu frá Kenn- araháskólanum. Seinna lauk ég svo BA prófi í sérkennslu frá Háskól- anum á Akureyri. Einnig lauk ég eins árs námi í stjórnun. BA nám- ið og þetta stjórnunarnám tók ég meðfram fullu starfi. Ég held mig vanti enn einhverjar 15 eining- ar upp á að ljúka meistaraprófi en ég hreinlega nennti ekki að standa í að klára það. Fannst ég orðin of gömul og svo hefði ég ekki hækk- að neitt í launum og þótti því ekki taka því.“ Skólastjóri tveggja skóla Þrúður kenndi í Búðardal til 67 ára aldurs, eða í þrjá vetur eftir að hún hætti skólastjórn. Á þess- ari hálfu öld sem hún starfaði við skólann var hún skólastjóri í 22 ár, fyrst 1962-64, og síðan frá 1981 til 2002. Um aldamótin var Lauga- skóli í Sælingsdal færður undir embætti skólastjórans í Búðardal og var hún því skólastjóri beggja skólanna einn vetur. „Það var gert að beiðni sveitarstjórnar. Það vant- aði þar skólastjóra og þrjá kennara. Ég samþykkti að taka þetta að mér í eitt ár og sjá hvernig það gæf- ist. Ég var með viðveru einn dag í einu á víxl á hvorum stað og ráð- inn var aðstoðarskólastjóri á hvorn stað í 50% starf. Eftir þennan vet- ur gerði ég könnun meðal kenn- ara og starfsfólks þá kom í ljós að á báðum stöðum fannst þeim ég ekki með nægilega viðveru. Ég gerði líka óformlega könn- un meðal nemenda í eldri bekkj- unum. Krökkunum á Laugum lík- aði þetta ágætlega en krakkarnir í Búðardal voru ekki jafn ánægðir. Þetta gekk allt saman vel, en mér líkaði ekki að starfsfólk og kennar- ar væru óánægðir og vildi því ekki halda þessu áfram,“ segir hún. Eftir þennan vetur var ákveð- ið að leggja Laugaskóla niður. „Í hugum margra er ég „Búðardals- kerlingin“ sem lagði skólann nið- ur,“ segir Þrúður. „En staðreynd- in er sú að ég hafði ekkert með það að gera. Það hefði kannski getað gengið að hafa skóla þar áfram, en veturinn eftir að ég var þar, hefðu orðið eitthvað um 30 börn í skól- anum. Heimavistarskóli er mik- ið bákn og sveitarstjórn taldi þetta of mikinn kostnað, kringum fáa nemendur. Reyndar mun Lauga- skóli hafa verið einn allra síðasti heimavistarskóli á landinu og fólk- ið vildi halda heimavistinni þrátt fyrir að flest börn ættu ekki langt að fara heim í akstri. Heimavist er auðvitað viss lúxus fyrir fjölskyld- ur, börnin eru í pössun alla virka daga. Ég hefði viljað breyta ýmsu veturinn sem ég stjórnaði skólan- um, en vildi ekki gera það svona fyrsta árið. Þennan vetur var sam- kennsla milli skólanna og gekk það allt vel.“ Formaður Sambands breiðfirskra kvenna Þrúður var heiðruð sérstaklega á Jörfagleði Dalamanna í vor fyr- ir störf í þágu samfélagsins. Hefur hún starfað með mörgum félaga- samtökum og setið í ótal nefndum á vegum sveitarfélagsins. „Það væri líklega fljótlegra að telja upp þær nefndir sem ég hef ekki setið í en hinar,“ segir hún létt í bragði. „Ég hef haft það „prinsipp“, í svona „Ég hef haft það prinsipp að segja ekki alltaf nei“ spjallað við Þrúði Kristjánsdóttur, fyrrverandi kennara og skólastjóra í Búðardal Þrúður og eiginmaður hennar, Sturla Þórðarson, ásamt börnum sínum. F.v.: Hanna Dóra, Friðrik, Þrúður, Sturla, Steinunn og Kristján. Þrúður Kristjánsdóttir, kennari í Búðardal til hálfrar aldar. Þar gegndi hún starfi skólastjóra í 22 af þeim 50 árum sem hún kenndi þar.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.