Skessuhorn


Skessuhorn - 27.05.2015, Síða 30

Skessuhorn - 27.05.2015, Síða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015 Hvernig ætlarðu að verja sumarfríinu? Spurning vikunnar (spurt á Akranesi) Katina Gíslason: „Ég ætla að kynnast nýja bænum mínum, flutti hingað frá Banda- ríkjunum í nóvember.“ Ingibjörg Valdimarsdóttir: „Með fjölskyldunni.“ Jón Haukur Hauksson: „Ég ætla í gönguferð um Horn- strandir.“ Þröstur Karlsson: „Bara hérna innanlands. Ætla líka að dytta að húsinu og fleira í þeim dúr.“ Birna Björnsdóttir: „Voða lítið ákveðið, en vonandi einhvers staðar í sólinni.“ „Í klúbbnum eru um 110 manns í það heila, mest heimamenn og nærsveitungar,“ sagði Eyþór Bene- diktsson, formaður Golfklúbbsins Mostra í Stykkishólmi, þegar blaða- maður Skessuhorns heyrði í hon- um á dögunum. „Einnig talsverður hópur af Hólmurum sem hafa flutt í burtu, búa til dæmis á höfuðborg- arsvæðinu en halda tengingu við heimaslóðirnar og klúbbinn. Það er mjög ánægjulegt. Hér í kring eru líka margir í sumarhúsum, sumir þeirra eru félagar í klúbbnum.“ Völlur GMS er Víkurvöllur, 9 holna par 72 völlur, staðsettur rétt sunnan við tjaldsvæðið og Hótel Stykkishólm. Golfklúbburinn hefur undanfarin ár séð um rekstur tjald- svæðisins fyrir Stykkishólmsbæ. Golfskáli klúbbsins er einmitt stað- settur á mörkum vallarins og tjald- svæðisins. „Það hefur gengið ágæt- lega og gerir okkur kleift að vera með starfsfólk í fullu starfi og hafa skálann opinn. Öðruvísi gengi þetta ekki. Starfsmaður skálans þjónar þá tjaldsvæðinu líka,“ segir Eyþór. Víkurvöll kól í fyrra á stöku stað þegar klaki lá yfir öllu en með mik- illi vinnu gátu starfsmenn bjarg- að öllum flötum. Að sögn Eyþórs kom ekkert slíkt upp í ár. „Völl- urinn kemur vel undan vetri í ár, þrátt fyrir að vorið hafi verið nokk- uð kalt og það sem fór illa í fyrra virðist hafa lagast að fullu um sum- arið. Það sér ekki á vellinum núna og allt útlit fyrir að hann verði fínn í sumar,“ segir hann. Aðspurður hvort þurr tíð hafi háð þeim seg- ir hann svo ekki vera. „Hér er dá- lítið votlent, að minnsta kosti hluti svæðisins, þannig að það hefur al- veg sloppið. Menn voru vissulega viðbúnir því að fara að vökva til að fyrirbyggja skemmdir en svo fór að rigna þannig að það bjargaðist al- veg.“ Nokkuð hefðbundið mótahald framundan „Við erum venjulega með innan- félagsmót, auk Snæfellsnesmótar- aðarinnar, sem er mótaröð klúbb- anna á Nesinu. Svo spilum við á móti nágrönnum okkur í Grund- arfirði á hverju vori og svo aftur að hausti. Það er liðakeppni með Ry- der-fyrirkomulagi, sem sagt holu- keppni og sá klúbbur sem hef- ur flesta vinninga eftir báðar um- ferðirnar fær bikarinn það árið. Þetta er tveggja daga mót og þrjár umferðir leiknar hvorn daginn. Þetta er mjög skemmtilegt mót og gerir mikið fyrir báða klúbb- ana sem hafa alltaf átt í góðu sam- starfi,“ segir Eyþór. „Einnig verð- ur hið hefðbundna Hótelmót, sem Hótel Stykkishólmur hefur styrkt. Það er tveggja daga paramót, venjulega haldið í lok sumars og heilmikið tilstand í kringum það. Leikið er föstudag og laugardag og svo endar þetta á kvöldverði á hótelinu að kvöldi laugardags,“ bætir hann við. „Nýjung sumars- ins verður opið mót eldri kylfinga á 17. júní. Við höfum ekki haldið það áður en það er vonandi komið til að vera.“ „Við vonumst eftir góðu sumri, bæði að það verði straumur af fólki og að veðrið verði gott, þetta snýst alltaf svolítið um það,“ segir Eyþór að lokum. kgk Opið mót eldri kylfinga í Stykkishólmi 17. júní Frá Víkurvelli í Stykkishólmi. „Við erum bara bjart- sýnir, gróðurinn er far- inn að taka við sér,“ sagði Garðar Svansson, formaður Golfklúbbs- ins Vestarr í Grundar- firði, þegar blaðamaður Skessuhorns spjallaði við hann í síðustu viku. „Framundan er vinnu- dagur nú um helgina [23.-24. maí, innsk.] þar sem verður sáð í flatir og þær sandað- ar, bönkerarnir lagað- ir, sett upp auglýsinga- skilti og fleira tilfallandi sem tilheyrir vorverk- unum hjá okkur.“ Völlur GVG er Bára- völlur, 9 holna par 72 völlur, staðsettur við austanverðan Grundar- fjörð um átta kílómetra norður af þéttbýlinu í Grundarfirði. Að sögn Garðars kemur völlurinn vel undan vetri í ár, rétt eins og í fyrra. „Við höfum í raun aldrei haft nein- ar sérstakar áhyggj- ur af vetrinum, það er frekar að við höf- um áhyggjur af því hvenær vorið kemur,“ segir Garðar og hlær við. „Völlurinn er á mel og hann drenar sig því mjög vel. Er til dæmis orðinn þurr núna, engin vor- bleyta í honum en hann tók vel við sér þegar loks rigndi,“ bætir hann við. Árið 2015 er afmælisár Golf- klúbbsins Vestarr en hann stend- ur á tvítugu. Í tilefni þess verður sveitakeppni Golfsambands Íslands í þriðju deild karla leikin á Bárarvelli aðra helgina í ágúst. „Í haust verð- ur líka veglegt, opið afmælismót í tilefni tvítugsafmælisins og nokk- urs konar uppskeruhátíð. Annars er bara hefðbundið mótahald fram- undan. Fyrsta mótið hefst fimmtu- daginn 28. maí og svo á föstudegin- um er eitt af okkar vinsælustu mót- um, Sjómannadagsmót GRun. Á það mæta um 70 manns, ræst af öll- um teigum samtímis og upp undir átta manns á hverjum teigi. Það mót er opið öllum, vönum sem óvönum, og er algjörlega hugsað sem hrein og klár skemmtun frekar en einhver hörð keppni,“ segir hann. Gott samstarf við nágranna- klúbba Félagsmenn klúbbsins eru um 70 talsins, mest heimamenn og að sögn Garðars hefur fækkað í honum undanfarin ár. „Við tengjum það al- gjörlega veðurfarinu og það er erfitt að hrinda af stað átaki til að fjölga ef veðrið er ekki með okk- ur,“ segir hann „En við vonumst til að félags- mönnum fjölgi í sumar vegna afmælisársins. Svo ætlar Golfsambandið að fara af stað með PGA- rútu þar sem golfkenn- arar fara hringferð um landið og halda nám- skeið. Við höfum boðið þá velkomna hingað en það er ekki komin dag- setning á það enn.“ Að sögn Garðars hefur lengi verið mik- ið og gott samstarf við nágrannaklúbb- ana Mostra, Jökul og Golfklúbb Staðarsveit- ar. „Öll innanfélagsmót eru opin félögum allra klúbbanna og við höldum sameigin- lega mótaröð í júní þar sem er leik- ið einu sinni á hverjum velli. Það er svona héraðsmótabragur á þessu. Konurnar eru svo með Vesturlands- mót í samstarfi við Leyni á Akranesi og Golfklúbb Borgarness auk þess- ara fjögurra sem ég nefndi áðan. Það mót er alltaf mjög vel sótt,“ bætir hann við. „Það er því alltaf nóg um að vera hjá okkur, vantar bara örlítið að hækka thermóstatið,“ segir Garð- ar að lokum, léttur í bragði. kgk Golfklúbburinn Vestarr tvítugur á þessu ári Garðar Svansson, formaður Golfklúbbsins Vestarr í Grundarfirði. Víkingur Ólafsvík tók á móti Selfossi á laugardag- inn í þriðju umferð 1. deildar karla í knattspyrnu í gær. Sigruðu heimamenn með einu marki gegn engu. Það var William Dominguez da Silva sem skoraði fyrir Víkinga í upphafi síðari hálfleiks og reyndist það eina mark leiksins. Leikurinn var fremur jafn allan tímann en Víkingur var þó sókn- arlega betri og allar sóknir Selfyssinga strönd- uðu á sterkri vörn Víkinga auk þess sem spænski markmaðurinn Cristian Martinez Liberato var mjög öruggur í markinu. Maður leiksins að þessu sinni var Admir Kubat. Nú er Þróttur Reykjavík í efsta sæti deildar- innar með níu stig af níu mögulegum, KA og Vík- ingur Ólafsvík hafa bæði sjö stig í öðru til þriðja sæti, Fjarðabyggð, Þór Akureyri og HK eru með sex stig, Selfoss, Grindavík og Haukar með þrjú stig og Fram og Grótta eitt stig en BÍ/Bolungar- vík er á botninum án stiga. af Víkingar í góðri stöðu Skallagrímur úr Borgarnesi mætti Afríku á Leikn- isvelli í fyrstu umferð fjórðu deildar karla í knatt- spyrnu á föstudaginn síðasta. Borgnesingar byrj- uðu af krafti og komust yfir strax á sjöundu mín- útu leiksins þegar Guðni Albert Kristjánsson skor- aði eftir laglegt samspil. Á 13. mínútu jók Sölvi G. Gylfason muninn í 0-2 og áður en flautað var til hálfleiks áttu þeir Guðni og Sölvi báðir eftir að skora sitt hvort markið. Staðan því vænleg í hálf- leik og Borgnesingar komnir með fjögur mörk gegn engu. Í síðari hálfleik slökuðu Skallagrímsmenn ör- lítið á, enda með unninn leik í höndunum. Þeir lágu til baka, héldu boltanum og sköpuðu sér fá færi. Leikmenn Afríku náðu aðeins að klóra í bakkann í uppbótartíma en sigur Skallagríms- manna var aldrei í hættu. Lokatölur á Leiknisvelli 1-4, Skallagrími í vil. Næsti leikur Skallagrímsmanna í fyrstu deild- inni verður geng Vatnaliljunum á Skallagríms- velli föstudaginn 5. júní. kgk Öruggur sigur Skallagríms í fyrsta leik Byrjunarlið Skallagrímsmanna frá því fyrr í sumar. Skeiðfélagið á Selfossi veitti í síðustu viku verð- launagripinn Öderinn í fyrsta skipti fyrir bestan árangur í skeiðkeppni á vegum félagsins. Öder- inn er eignarbikar sem Gunnar Arnarson og Krist- björg Eyvindsdóttir gáfu til minningar um Ein- ar Öder Magnússon tamningamann og fyrrum landsliðsþjálfara sem nýlega féll frá. Nú í fyrsta keppni var það Konráð Axel Gylfason frá Sturlu- Reykjum í Reykholtsdal sem bar sigur úr býtum en hann keppti á hryssunni Von frá Sturlu-Reykj- um II. Konráð Axel hlaut 19 stig eftir sigur í 100m skeiði og annað sætið í 150m skeiði. Farandbikar verður svo afhentur í lok keppnistímabils í sum- ar til þess knapa sem hæstan stigafjölda hlýtur á öllum Skeiðleikunum. „Þetta er falleg gjöf sem er ætlað að halda minningu afreksíþróttamannsins Einars Öders Magnússonar á lofti og höfum við hann með okkur í anda þegar öskufljótir gamma- gæðingar verða teknir til kostanna á Skeiðleikum sumarsins,“ segir í frétt frá Skeiðfélaginu. mm/ Ljósm. Skeiðfélagið. Konráð Axel með flest stig á Skeiðleikum

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.