Skessuhorn


Skessuhorn - 27.05.2015, Síða 31

Skessuhorn - 27.05.2015, Síða 31
31MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2015 Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. auðveldar smásendingar Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR ������� ��������� � e���.�� F ÍT O N / S ÍA F ÍT O N / S ÍA Leiknir voru 14 leikir í Borgun- arbikar karla í knattspyrnu í gær- kvöldi. Víkingur Ó. mætti Haukum á Ólafsvíkurvelli en þessi lið mætt- ust einmitt á sama stað í fyrsta leik fyrstu deildarinnar fyrr í sumar. Þá höfðu Víkingar sigur og það gerðu þeir aftur í gær, 2-1. Aðstæður voru ekki eins og best verður á kosið, sterkur vindur og völlurinn blaut- ur. En leikurinn byrjaði fjörlega og Víkingar fengu vítaspyrnu strax á fjórðu mínútu eftir að brotið var á Alfreð Má Hjaltalín. Egill Jónsson steig á punktinn og skaut föstu skoti úti við stöng en markvörður Hauka veðjaði á rétt horn og varði spyrn- una frábærlega. Haukar komust yfir á 12. mínútu eftir skyndisókn sem endaði með því að Alexander Helgason skoraði framhjá Cristian Liberato í marki Víkings. Heimamenn náðu sér ekki á strik í fyrri hálfleik með vindinn í bakið en gekk betur á móti vindi í þeim síðari, héldu boltanum niðri og spiluðu sín á milli. Á 52. mín- útu fengu þeir sitt annað víti í leikn- um þegar boltinn fór í hönd varn- armanns Hauka. Að þessu sinni tók William Dominguez da Silva spyrn- una. Hann var svellkaldur, hikaði í síðustu skrefunum, sendi markvörð- inn í öfugt horn og jafnaði leika. Eft- ir jöfnunarmarkið þjörmuðu Vík- ingar að Haukum svo að lokum varð eitthvað undan að láta. Á 66. mín- útu átti Guðmundur Reynir Gunn- arsson skot að marki sem Marcos Campos Gimenez stýrði í markið og kom Víkingum yfir. Haukar hresstust aðeins í kjölfar marksins en það varði þó stutt. Vík- ingar björguðu á línu eftir horn og Liberato varði næstu marktilraun gestanna. Síðustu mínútur leiks- ins hefðu heimamenn getað aukið muninn þegar Kenan Turudija fékk dauðafæri eftir undirbúning Alfreðs Más en markvörður Hauka varði skot hans yfir. Lokatölur 2-1, Vík- ingi í vil. Framlenging hjá Káramönnum Leikmenn þriðju deildarliðs Kára mættu nýstofnuðu liði Arnarins á gervigrasinu í Kórnum í Kópavogi í gærkvöldi. Leikurinn fór fjörlega af stað. Kwami Santos kom Ernin- um yfir strax á annarri mínútu en Salvar Georgsson jafnaði fyrir Kára eftir kortersleik. Það varði stutt því Ingvar Gylfason skoraði og kom Erninum í 2-1 aðeins fjórum mín- útum síðar. Mikil barátta einkenndi leikinn og á tímabili leit út fyrir að Káramenn þyrftu að lúta í gras. En þeir gáfust ekki upp og Óliver Berg- mann Jónsson jafnaði metin í upp- bótartíma eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Hann gerði sér síð- an lítið fyrir og skoraði sitt annað mark á 98. mínútu og sitt það þriðja á 101. Fleiri mörk voru ekki skoruð á gervigrasinu í Kórnum og Kára- menn fóru því með sigur af hólmi í miklum baráttuleik. Skallagrímur lá fyrir BÍ/Bolungarvík Borgnesingar fóru vestur á firði og sóttu BÍ/Bolungarvík heim á Torf- nesvöll í gær. Sameinað lið BÍ/Bol- ungarvíkur leikur í fyrstu deild en Skallagrímsmenn í þeirri fjórðu og því ljóst að á brattann yrði að sækja hjá Borgnesingum. Þeir lentu und- ir á 22. mínútu með marki Niku- lásar Jónssonar. Sigurgeir Sveinn Gíslason bætti svo öðru marki við tíu mínútum síðar og staðan orðin 2-0 fyrir heimamönnum í BÍ/Bol- ungarvík. Þá var komið að þætti Rodchil Junior Prevalus. Hann skoraði fyrsta mark sitt á 34. mín- útu og bætti öðru við á síðustu mín- útu fyrri hálfleiks. Hann tók síðan upp þráðinn þar sem hann skildi hann eftir og skoraði sitt þriðja mark þegar aðeins þrjár mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. Hann kórónaði svo leik sinn með því að skora fjórða marki sitt á 80. mín- útu og tryggði heimamönnum í BÍ/Bolungarvík öruggan 6-0 sigur. Skallagrímsmenn eru því fallnir úr leik í bikarnum þetta árið. Dregið á morgun Dregið í næstu umferð Á fimmtudaginn síðasta var dreg- ið í 32 liða úrslit Borgunarbikars karla og 16 liða úrslit Borgunar- bikars kvenna. Víkingur Ó. og Kári höfðu þegar tryggt sér þátttökurétt í næstu umferð sem og kvennalið ÍA. Fyrir dráttinn var úrvalsdeild- arliðum bætt í pottinn og því kom einnig í ljós hverjum karlalið ÍA mætir í næstu umferð. Leikir Vesturlandsliðanna í 32 liða úrslitum karla eru sem hér segir: Káramenn fara austur á firði þriðju- daginn 2. júní og mæta Fjarðabyggð á Norðfjarðarvelli. ÍA fær Fjölni í heimsókn á Akranesvöll miðviku- daginn 3. júní og Víkingur Ólafs- vík heimsækir Þór á Akureyri sama dag. Í 16 liða úrslitum kvenna fara Skagakonur norður til Akureyrar laugardaginn 6. júní og mæta sam- eiginlegu liði Þórs/KA. kgk Misjafnt gengi Vesturlands- liðanna í Borgunarbikarnum Mynd úr fyrsta deildarleik sumarsins þar sem Víkingar sigruðu Hauka á Ólafs- víkurvelli. Sömu lið mættust í Borgunarbikarnum í gær og aftur unnu Víkingar. ÍA leikur í kvöld sinn fyrsta leik í Íslandsmóti kvenna í knattspyrnu þegar liðið tekur á móti Augna- bliki á Akranesvelli klukkan 20:00. Skagakonur leika sem kunnugt er í A riðli fyrstu deildar eftir fall úr úr- valsdeild í fyrra. „Sumarið lítur bara ágætlega út fyrir okkur. Við erum búin að styrkja liði með bandarískum leik- mönnum, markmanni og varnar- manni,“ sagði Þórður Þórðarson, þjálfari liðsins í samtali við Skessu- horn í gær. Leikmennirnir sem um ræðir eru Morgan Glick og Meg- an Dunningham sem léku í banda- ríska háskólaboltanum í vetur. „Þær komu til landsins í nótt þannig að það er dálítið stuttur fyrirvari fyrir þær að kynnast liðinu en þær munu styrkja okkar leikmannahóp.“ Í leik gegn Fjölni í Borgunarbik- arnum á dögunum vakti athygli að aldursforseti liðsins var hin 22 ára Heiður Heimisdóttir. „Liðið er ungt og verður svoleiðis. Yngsti leikmaðurinn er 16 ára og sá elsti 22 ára,“ segir Þórður. „Við verð- um þannig með yngsta liðið í fyrstu deildinni í sumar, reyndar alveg eins og við vorum yngsta liðið í Pepsi- deildinni í fyrra. Það hefur auðvit- að bæði kosti og galla. Upp á fram- tíðina er það auðvitað mikill kostur, þetta er mjög efnilegt lið.“ Aðspurður um markmið sum- arsins segir Þórður það einfalt, lið- ið stefni á að leika í úrvalsdeild að ári. „Við ætlum að reyna allt sem við getum til að komast upp aft- ur. Við erum í erfiðum riðli en ég myndi segja að við værum eitt af bestu liðunum, ásamt HK/Vík- ingi og Augnabliki,“ segir hann. „Ef allt gengur upp þá gerum við góða hluti, fyrir mér er það engin spurning. Ég hef mikla trú á þess- um stelpum,“ segir Þórður að lok- um. kgk Fyrsti deildarleikur Skagakvenna í kvöld Frá leik gegn Val á Akranesvelli í úrvalsdeild kvenna síðastliðið sumar. Að sögn Þórðar Þórðarsonar þjálfara stefnir liðið á að leika aftur í þeirri deild að ári. Skagamenn heimsóttu FH í fjórðu umferð úrvalsdeildar karla í knatt- spyrnu síðastlið miðvikudags- kvöld. Aðstæður á Kaplakrikavelli voru ágætar, skýjað og hægur vind- ur. Fyrir tímabilið var því spáð að Hafnarfjarðarliðið myndi berjast um Íslandsmeistaratitilinn og því máttu Skagamenn búast við erfið- um leik. Sú varð raunin, FH-ingar sóttu stíft fyrstu mínútur leiksins og áttu meðal annars skot í stöng. Á 29. mínútu kom svo fyrsta mark leiksins þegar Atli Viðar Björnsson skallaði fyrirgjöf Jóns Jónssonar í netið, hundraðasta mark Atla fyr- ir FH í efstu deild. Heimamenn héldu uppteknum hætti og bættu öðru marki við tíu mínútum síð- ar. Böðvar Böðvarsson tók horn- spyrnu sem Brynjar Ásgeir Guð- mundsson skallaði í netið. Ás- geir Marteinsson fékk ágætt færi undir lok fyrri hálfleiks eftir góða sókn Skagamanna en skot hans fór framhjá marki FH-inga og forysta heimamanna í hálfleik verðskuld- uð, tvö mörk gegn engu. Í síðari hálfleik héldu Hafnfirð- ingar áfram að sækja. Á 57. mínútu skoraði Arnór Snær Guðmundsson sjálfsmark. Sam Hewson átti fyrir- gjöf fyrir mark Skagamanna sem fór framhjá Árna Snæ í markinu. Arnór Snær og Atli Viðar Björns- son reyndu báðir að ná til knattar- ins og fór svo að hann fór af Arnóri og í netið. Eftir þetta róaðist leikurinn að- eins og fátt markvert gerðist þar til á 71. mínútu þegar Bjarni Þór Viðarsson stakk boltanum laglega inn fyrir vörn Skagamanna á vara- manninn Jeremy Serwy sem setti hann milli fóta Árna Snæs í mark- inu og kom FH-ingum í 4-0. Arsenij Buinickij skoraði sitt fyrsta mark í sumar og minnk- aði muninn fyrir Skagamenn á 79. mínútu eftir að hafa komið inn á sem varamaður en þar við sat. Lokatölur í Hafnarfirði 4-1, FH í vil. Skagamenn léku í gær á heima- velli við Breiðablik, en leikur- inn var ekki hafinn þegar Skessu- horn var sent í prentun. Leiknum var lýst í beinni textalýsingu á vef blaðsins. kgk Skagamenn töpuðu fyrir FH Arsenij Buinickij skoraði sitt fyrsta mark fyrir Skagamenn í 1:4 tapleik gegn FH. Leikmenn Kára frá Akranesi tóku á móti Einherja í annarri umferð þriðju deildar karla á laugardag- inn. Þegar komið var undir hálf- leik lentu Káramenn undir þeg- ar Sigurður Donys Sigurðsson kom Einherja yfir. Á sömu mín- útu jafnaði Fjalar Örn Sigurðs- son hins vegar fyrir Kára og stað- an í hálfleik jöfn. Það var svo ekki fyrr en á 83. mínútu að Einherji bætti við öðru marki. Aftur svör- uðu Káramenn fljótt og örugglega því þremur mínútum síðar jafnaði Dominik Bajda. Leikmenn Ein- herja vildu meina að brotið hefði verið á markverði þeirra í aðdrag- anda marksins er dómarinn lét markið standa og lokatölur í Akra- neshöllinni 2-2. Kári situr því í þriðja sæti deildarinnar með fjög- ur stig eftir tvo leiki. Næsti deildarleikur Káramanna verður í Akraneshöllinni laugar- daginn 30. maí, en þá fá þeir Völ- sung frá Húsavík í heimsókn. kgk Jafntefli hjá Káramönnum Hluti leikmannahóps Knattspyrnufélagsins Kára.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.