Skessuhorn - 15.07.2015, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 201528
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Hilmir B ehf
Alhliða pípulagningaþjónusta
hilmirb@simnet.is
facebook.com/hilmirbehf
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
Vélabær ehf.
Bæ í Bæjarsveit
Alhliða viðgerðarþjónusta
á bílum, dráttarvélum
og vélum tengdum
landbúnaði
Smur og hjólbarðaþjónusta
velabaer@vesturland.is
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
Helgina 18. - 19. júlí verður heit
helgi í Leir7 í Stykkishólmi. Þá
munu valinkunnir keramikerar og
eldsmiðir kynda ofna og smiðjur
og brenna og smíða gripi úr leir og
járni.
Nú stendur yfir skemmtileg sý-
nig í Leir7 sem verður opin í allt
sumar. Þar kemur keramik við sögu
á fjölbreyttan hátt en átta myndlist-
armenn sýna hver fyrir sig verk sem
byggja á einum keramikhlut. Sýn-
ingarstjóri er Helgi Þorgils Frið-
jónsson sem einnig á eitt verk á
sýningunni.
mm
Ingimar Einarsson gleðigjafi, sem
lengi bjó á Fífusundi í Borgarfirði,
fyllir 80 ár þann 5. ágúst næst-
komandi. Ingimar starfaði í ára-
tugi hjá Bændasamtökum Íslands
við Nautastöðina á Hvanneyri.
Nú er hann búsettur í Reykholti í
Biskupstungum. Í tilefni afmælis-
ins býður gleðigjafinn Ingimar vin-
um og vandamönnum til skemmti-
kvölds í Félagsheimilinu á Flúð-
um laugardaginn 8. ágúst nk. kl.
18. Allir eru hjartanlega velkomn-
ir. Ingimar afþakkar gjafir en biður
fólk að taka með dansskóna.
-fréttatilkynning
Félag Harmonikkuunnenda
í Reykjavík heldur um Versl-
unarmannahelgina sitt ár-
lega harmonikkumót „Nú er
lag á Varmalandi“ í fimmta
sinn. Mótið er hefðbund-
ið harmonikkumót þar sem
gestir stilla saman strengi
sína og skemmta hver öðr-
um í nokkra daga og dansa á
kvöldin.
„Fjölmargar harmonikku-
hljómsveitir félagsins munu
leika fyrir dansi og jafnvel er
von á gestaspilurum úr ná-
grenninu. Félagið á von á sænska
harmonikkusnillingnum Magn-
usi Jonsson sem ætlar að taka þátt
í hátíðinni, ásamt eiginkonu sinni.
Magnus Jonsson er 37 ára gamall
Svíi, sem undanfarin ár hefur vak-
ið mikla athygli fyrir glæsilegan
tónlistarflutning. Hann starfar sem
tónlistarkennari í Malmö.
Magnus hefur einu sinni áður
leikið á Íslandi, en það var í
maí árið 2000, þegar hann lék
á tónleikum sem haldnir voru
til heiðurs Gretti Björnssyni
sjötugum í Langholtskirkju.
Tónleikar Magnusar fara
fram klukkan 14:00 á laug-
ardeginum. Þessir tónleikar
verða örugglega þess virði að
fylgjast með. Auk þess mun
Magnus leika fyrir dansi á
laugardags- og sunnudags-
kvöld. Þá verður sölusýn-
ing á harmonikkum á vegum EG
tóna,“ segir í tilkynningu frá stjórn
og skemmtinefnd FHUR.
mm
Sveitarfélagið Borgarbyggð hefur
nokkur gámasvæði og grenndar-
stöðvar þar sem íbúar og sumarbú-
staðarfólk geta losað sorp. Gáma-
svæðin eru þó ekki öll ætluð til
flokkunar á endurvinnanlegum úr-
gangi, svo sem fyrir járn og timbur.
Umgengnin við suma þessa staði
er hins vegar skelfileg. Meðfylgj-
andi mynd var tekin við Gufuá í
Borgarhreppi um helgina. Þar hafa
einhverjir losað húsgögn, garða-
úrgang, heimilissorp og sitthvað
fleira úti í náttúruna. Fugl og vind-
ur sá svo um að dreifa óþrifnaðin-
um út í náttúruna í kring. mm
Laugardaginn 18. júlí verður Svei-
tahátíð Kátt í Kjós haldin í þrettánda
sinn í perlu Hvalfjarðar. Að sögn
skipuleggjenda gefst gestum færi á
að kynna sér brot af því besta sem
Kjósin hefur upp á að bjóða. Hjarta
hátíðarinnar er hinn sívinsæli sveita-
markaður bæði við og í Félagsgarði,
sem leggur áherslu á íslenskt hand-
verk, þjóðlega hönnun og krásir úr
Kjósinni. Þar má finna meðal ann-
ars blúndugler, randalínur, kleinur,
kerti, kort, skart, lopapeysur og mat-
reiðslubækur svo fátt eitt sé nefnt.
Konur úr Kvenfélagi Kjósarhrepps
munu skapa notalega stemningu á
staðnum með ilmandi vöfflum og
rjúkandi kaffi. Allur ágóði kaffisöl-
unnar í ár rennur til Bleiku slauf-
unnar. Markaðurinn og kaffisalan er
opin frá klukkan 12 til 17.
Við Félagsgarð munu bænd-
ur í Kjósinni standa við grillið og
steikja safaríka ekta nautahamborg-
ara frá Sogni og þegar gestir hafa
náð að seðja sárasta hungrið geta
þeir nælt sér í væna steik af holda-
nauti frá Sogni til að taka með sér
heim. Leiksýningin Búkolla - Æv-
intýraheimur Muggs veður flutt af
Kómedíuleikhúsinu fyrir yngstu
kynslóðina. Þar lifna gömlu góðu
íslensku þjóðsögurnar og ævintýr-
in við með þátttöku allra viðstaddra
á túninu við Félagsgarð klukkan 13.
Strax að leiksýningu lokinni munu
ungir bændur etja kappi í hinum
ýmsu þrautum og keppa um titilinn
„Ungi bóndi Vesturlands og Vest-
fjarðar 2015“. Keppnin hefst kl. 14.
Kaffi Kjós er heimilisleg þjón-
ustumiðstöð staðsett við Með-
alfellsvatn, í raunverulegu svei-
taumhverfi. Þar verður boðið frítt
í hoppukastala og hjólabáta milli
kl 14 og 17. Opið á Kaffi Kjós alla
daga í sumar frá klukkan 11-22.
Þá verður ljósmyndasýning um
hinn vinasæla og sérstaka persónu-
leika Björgvin á Fossá í gamla bæn-
um hans inn við Fossá í Hvalfirði.
Sýningin er opin laugardag klukkan
11-17 og sunnudag kl. 13-16. Rétt
þar hjá verður boðið upp á leiðsögn
um hernámsminjar í Hvítanesi og
sagt frá umsvifum breska hersins
í seinni heimsstyrjöldinni. Leið-
sögnin hefst kl. 12 í Hvítanesi. Í Ás-
garði, gamla barnaskólanum, verð-
ur farið 100 ár aftur í tímann til hins
merka árs 1915, þegar konur fengu
kosningarétt og Ungmennafélagið
Drengur var stofnað í Kjósinni. Á
þeim tíma var talað bæði um menn
og konur sem „drengi góða“, sem
merkti væn og góð manneskja sem
sýndi drengskap. Ásgarður verð-
ur opinn kl. 13-16. Gestum hátíð-
arinnar er boðið í tryllta trjásölu á
Kiðafelli 3 til að líta á úrval garð-
plantna sem ræktaðar hafa verið á
undanförnum árum. Klukkan 16
mun svo Gísli Súrsson sjálfur taka
til máls á hlaðinu við Kiðafell 3 í
margverðlaunaðri leiksýningu Elf-
ars Loga Hannessonar og Kóme-
díuleikhússins. Þá geta listunn-
endur litið við í Gallerí Nana við
Flekkudalsveg og Glerlistavinnu-
stofunni Ísafell við Meðalfellsvatn
þar sem fólki verður boðið heim
auk þess sem Keramik-vinnustofa
Sjafnar Ólafs verður opin í sumar-
húsahverfinu inn í Elífsdal.
Frítt verður að veiða í Meðal-
fellsvatni milli klukkan 13 og 18 í
boði Veiðikortsins og Veiðifélags-
ins Hreggnasa. Vatnið iðar af smá-
bleikju sem hentar vel fyrir yngstu
veiðimennina. Þá er aldrei að vita
nema urriði, sjóbirtingur eða jafn-
vel lax bíti á. Um kvöldið er því síð-
an lofað að enginn fari óþreyttur
heim af Sveita-skralli í Félagsgarði
þar sem Bjössi Greifi mun mæta
með gítarinn sinn upp úr klukkan
23 en Veður-Barinn opnar klukk-
an 21:30 með kátum klukkutíma
(Happy Hour). Hægt er að kynna
sér hátíðardagskrána á www.kjos.is
og á Facebook „Kátt í Kjós.
mm
Það verður Kátt í Kjósinni
um næstu helgi
Nú er lag á Varmalandi um
Verslunarmannahelgina
Slæm umgengni við gámastað
Ingimar býður til skemmtikvölds
Heit helgi framundan í Leir7