Skessuhorn - 03.02.2016, Síða 17
MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 2016 17
hjá ferðamönnunum. „Þeir dýrka
Vesturland, eins og það leggur sig.
Enda er það þannig að þegar þú
hefur bókað þína ferð, þá hefurðu
sett þína trú og traust á mig. Ég
myndi aldrei fara með þig á staði
sem mér þættu ekki frábærir. Og
Vesturland er algerlega æðislegt,
það er frábært!“
Heldur íslenska hátíð
Næst á dagskrá hjá leðurblöku- og
Krummakonunni er að fjármagna
hátíðina „Iceland affair“, sem hún
heldur árlega. Þar fagnar hún öllu
sem er íslenskt og vill kynna það
fyrir Bandaríkjamönnum. Hún hef-
ur sjálf fjármagnað viðburðinn síð-
ustu fjögur ár og markmiðið er að
byggja upp stærstu menningarhá-
tíð Bandaríkjanna, þar sem Ísland
er kynnt. „Þarna kynnum við ís-
lenskan mat, náttúruna, listir og
menningu. Við fáum í heimsókn
íslenska tónlistar- og listamenn og
erum með fyrirlesara frá Íslandi.
Ég trúi því að þegar þú upplifir það
sem landið hefur upp á að bjóða, þá
verðir þú ástfanginn af landi elds og
ísa,“ segir Gerri Griswold að end-
ingu.
grþ
Gerri og Hjörleifur Stefánsson í Ensku húsunum. Þarna er Hjörleifur í þann mund
að skera flís af hangikjöti sem hann reykir sjálfur.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Ragna Benedikta Steingrímsdótt-
ir, nemandi í 10. bekk í Brekku-
bæjarskóla á Akranesi, fékk ný-
verið afhenta viðurkenningu fyr-
ir að hafa átt besta botn unglinga-
stigsnema í Vísubotni 2015, vísna-
keppni grunnskólanema. Keppnin
var haldin í tilefni Dags íslenskr-
ar tungu en þetta var í fimmta
sinn sem Menntamálastofnun efn-
ir til vísnasamkeppni grunnskóla-
nema. Í keppninni spreyttu nem-
endur sig á því að botna fyrriparta
eftir Helga Zimsen. Um var að
ræða tvo fyrriparta fyrir hvern ald-
ursflokk og fengust bókaverðlaun
og viðurkenningarskjöl fyrir besta
vísubotninn. Þetta er í annað sinn
sem Ragna Benedikta sigrar í þess-
ari sömu keppni en hún átti einnig
besta botninn þegar hún var nem-
andi í 8. bekk.
Fyrri part vísunnar,
„Þegar mesta myrkrið er,
minnstu ljósin greinast.“
botnaði Ragna Benedikta svona:
„Sólardraumur sýnist mér
í sálartetri leynast. grþ
Átti besta
vísubotninn
Ungskáldið Ragna Benedikta Steingrímsdóttir með viðurkenningarskjalið og
bókaverðlaunin. Ljósm. Brekkubæjarskóli.