Skessuhorn - 18.05.2016, Page 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 20. tbl. 19. árg. 18. maí 2016 - kr. 750 í lausasölu
Framtíðin er
full af möguleikum
Traust fjármálaráðgjöf leggur grunn
að farsælli framtíð
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
5
-0
0
5
0
Fæst án lyfseðils
LYFIS
LÉTTAR YFIRHAFNIR
ATH!
Opið fimmtudagskvöldið
19. maí 20.00 - 23.00
Verð frá 21.990
Rafræn áskrift
Ný áskriftarleið
Pantaðu núna
Þá á vel við að Hilmar Sigvaldason vitavörður á Akranesi hafi fengið fyrstu eintökin afhent af nýju Ferðablaði Vesturlands -
Travel West Iceland þegar blaðið kom úr prentun. Hilmar stendur vakt alla daga vikunnar í Akranesvita og mætir auk þess utan
opnunartíma ef þarf. Hann er óþreytandi að afhenda ferðafólki ýmsar upplýsingar um Akranes og Vesturland allt. Líklega er
enginn á Vesturlandi sem dreifir fleiri ferðablöðum yfir árið en Hilmar vitavörður. Dreifing á Travel West 2016 stendur nú yfir til
upplýsingamiðstöðva og þá geta þjónustuaðilar einnig nálgast blöð á Markaðsstofu Vesturlands í Borgarnesi til áframdreifingar.
Ljósm. ki.
Landsvirkjun og Norðurál Grund-
artangi ehf. hafa náð samkomulagi
um að endurnýja raforkusamning
fyrirtækjanna fyrir 161 MW á kjör-
um sem endurspegla raforkuverð á
mörkuðum í Norður-Evrópu. For-
stjóri Norðuráls fagnar samningnum
og segir hann mikilvægan í ljósi þess
að fyrirtækið undirbýr gerð nýs stey-
puskála við álverið á Grundartanga
og framleiða þar verðmeiri afurð-
ir. Samningsdrög Landsvirkjunar og
Norðuráls hafa verið send Eftirlits-
stofnunar EFTA, ESA, til forskoð-
unar. Að henni lokinni er áform-
að að ljúka frágangi samningsins og
senda hann til formlegrar og endan-
legrar samþykktar hjá ESA. „Hinn
endurnýjaði samningur er til fjög-
urra ára og hljóðar upp á 161 MW
sem er nærri þriðjungur af orkuþörf
álvers Norðuráls á Grundartanga.
Endurnýjaður samningur tekur gildi
í nóvember 2019 og gildir til loka árs
2023. Núgildandi samningur verður
áfram í gildi til loka október 2019,“
segir í tilkynningu frá Norðuráli.
Endurnýjaður samningur er
tengdur við markaðsverð raforku
á Nord Pool raforkumarkaðnum
og kemur það í stað álverðsteng-
ingar í gildandi samningi. Hörður
Arnarson, forstjóri Landsvirkjun-
ar segir að endurnýjaður samningur
tryggi áframhaldandi samkeppnis-
hæfni beggja aðila. „Hann er afrakst-
ur mikillar vinnu sem styrkt hef-
ur viðskiptasamband aðila og skiln-
ing þeirra á aðstæðum hvors annars.
Samningurinn er afar ánægjulegur
áfangi í samstarfi fyrirtækjanna sem
á sér 20 ára farsæla sögu.“
Í undirbúningi er nýr
steypuskáli
Ragnar Guðmundsson, forstjóri
Norðuráls, fagnar einnig samn-
ingnum og segir: „Við erum ánægð
að hafa náð samkomulagi um kjör
á þessari fjögurra ára framlengingu.
Landsvirkjun hefur verið góður og
áreiðanlegur samstarfsaðili okkar
á Grundartanga frá upphafi. Þessi
samningur er mikilvæg undirstaða
fyrir frekari þróun framleiðslunn-
ar en við erum um þessar mundir
að skoða fjárfestingu í nýjum stey-
puskála á Grundartanga sem mun
auka verulega fjölbreytileika í vöru-
framboði okkar,“ segir Ragnar Guð-
mundsson. mm
Norðurál og Landsvirkjun semja um
framlengingu orkusamnings
Glaðbeittir starfsmenn Norðuráls.
Ljósm. úr safni.
Á þessu
ári eru 60
ár frá því
Landmæl-
ingar Ís-
lands hófu
starfsemi. Í
tilefni þess
er boðið til
hálfs dags
a f m æ l i s -
ráðstefnu
á Akranesi föstudaginn 20.
maí. Þar verður lögð áhersla
á notendur gagna og þjónustu
Landmælinga Íslands og verð-
ur dagskráin fjölbreytt en hana
má finna hér í blaðinu. Síðdegis
sama dag verður opið hús í hús-
næði LMÍ við Stillholt á Akra-
nesi. Með Skessuhorni í dag
fylgir 12 síðna sérblað þar sem
farið er yfir sögu Landmælinga
Íslands, rætt við notendur þjón-
ustunnar, forstjóra og starfsfólk
en einnig við ráðamenn sem
komu að ákvörðun um flutning
stofnunarinnar á Akranes á sín-
um tíma.
mm
Landmælingar
Íslands eiga afmæli