Skessuhorn - 18.05.2016, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 201610
Franska myndlistarkonan Jo-
sée Conan er stödd í Grundar-
firði þessa dagana. Hefur hún
aðsetur og vinnustofu í Grunn-
skóla Grundarfjarðar. Hún sæk-
ir innblástur sinn í hafið og lífríki
þess og er aðallega að mála ým-
ist sjávarfang. Hún fær nýveiddan
fisk og aðrar sjávarafurðir eins og
rækju, skel og þang sem hún þvær
upp úr ediki og málar svo fiskinn
með vatnslitum. Síðan leggur hún
pappír yfir fiskinn og þrýstir vel á.
Úr þessu fær hún svo mörg mis-
munandi mótív, eða þrykkmyndir,
sem hún málar og bætir við smáat-
riðum. Útkoman er alveg mögnuð
og myndirnar afar raunverulegar.
Fréttaritari Skesshorns þurfti að
grandskoða verkin því á tímabili
taldi hann sig vera að skoða ljós-
mynd af fiskum, svo vel var þetta
unnið og málað. Nemendur og
aðrir gestir hafa fengið að fylgjast
með henni við vinnu sína og fræð-
ast um aðferðir hennar.
Josée Conan er frá vinabæ
Grundarfjarðar, Paimpol, og er
hún undir miklum áhrifum frá
sögu sjómanna sem réru frá Bret-
aníuskaga og meðal annars til Ís-
lands. Maðurinn hennar sér oft-
ast um að veiða fiskana og þegar
hún hefur lokið sér af með feng-
inn endar hann yfirleitt á kvöld-
verðarborði þeirra hjóna þannig
að ekkert fer til spillis. Fyrirhug-
aðar eru sýningar á verkum hennar
í Grundarfirði og Reykjavík í sum-
ar. tfk
Á myndinni eru frá vinstri: Sigríður Hjálmarsdóttir menningar- og markaðsfulltrúi,
Arnar Breki Friðjónsson nemandi í 6. bekk, Þorsteinn Steinsson bæjarstjóri og
Josée Conan.
Listakona sem gerir
óvenjuleg náttúrulistaverk
Á fundi í sveitarstjórn Borgar-
byggðar síðastliðinn fimmtu-
dag var rætt um samning sveitar-
félagsins við lóðarhafa Borgar-
brautar 57 - 59 í Borgarnesi þar
sem byrjað er að taka grunn fyr-
ir byggingu hótels og íbúða-
kjarna fyrir eldri borgara. Ekki er
laust við að gustað hafi um fund-
armenn jafnvel þótt gluggar hafi
flestir verið lokaðir. Undir þess-
um lið kvað meðal annarra Guð-
veig Eyglóardóttir oddviti Fram-
sóknarflokks sér hljóðs og lagði
fram bókun fyrir hönd framsókn-
armanna. Þar sagði meðal annars
að efni samnings við lóðarhafa frá
því í lok apríl hafi komið á óvart
og væri ekki í samræmi við þær
umræður sem sveitarstjórn hefði
átt um málið. Vísaði hún þar til
ákvæðis í samningnum um mögu-
leg kaup eða leigu sveitarfélagsins
á tveimur íbúðum fyrir eldri borg-
ara í húsinu, mögulega leigu þjón-
usturýmis og fleira. Guðveig gekk
lengra og gagnrýndi meint póli-
tísk tengsl byggingaraðila og nú-
verandi formanns byggðarráðs. „Í
ljósi pólitískra tengsla bygging-
araðila og formanns byggðarráðs
þar sem báðir aðilar sátu í sveitar-
stjórn á síðasta kjörtímabili fyrir
Samfylkinguna þá vaknar spurning
um vanhæfi formanns byggðaráðs
með vísan til þess að hér séu fyr-
ir hendi þær aðstæður sem fallnar
eru til þess að draga óhlutdrægni
viðkomandi í efa með réttu.“ Vís-
aði Guðveig þar í siðareglur sveit-
arstjórnarmanna.
Geirlaug Jóhannsdóttir svaraði
þessum ávirðingum og lagði í kjöl-
far bókunar Guðveigar fram ítar-
lega bókun þar sem hún rakti að-
draganda þess að nú hefur verið
ráðist í þessa stóru framkvæmd á
lóðunum Borgarbraut 57-59. Hún
minnti á að öll sveitarstjórn hafi
frá upphafi verið þátttakandi í við-
ræðum við lóðarhafa um að koma
framkvæmdinni í gang og aldrei á
þeim tíma hafi komið fram gagn-
rýni á að sveitarfélagið kæmi að
því verkefni með þeim hætti sem
nú er orðið. „Framkvæmd af þess-
ari stærðargráðu getur aldrei ver-
ið yfir gagnrýni hafin. Leitast hef-
ur verið við að koma til móts við
ábendingar íbúa með því m.a. að
draga úr skuggamyndun og bygg-
ingarmagni og bæta við bílastæða-
kjallara,“ skrifaði Geirlaug með-
al annars í bókun sinni sem svar
við gagnrýni Guðveigar. Í pontu
lét Geirlaug þess einnig getið að
upphafleg lóðaúthlutun Borgar-
byggðar hafi verið við óstofnað fé-
lag í eigu Snorra Hjaltasonar og
Jóhannesar Freys Stefánssonar. Sú
úthlutun hafi átt sér stað í tíð fyrr-
verandi meirihluta í sveitarstjórn
þar sem Guðveig var formað-
ur byggðarráðs. Lóðarsamningur
sem gerður var í lok apríl sé hins
vegar við fyrirtækið Hús og Lóð-
ir ehf sem alfarið er í eigu Snorra
Hjaltasonar og tengist Jóhannesi
Frey ekki með beinum hætti.
Bókanir þeirra Guðveigar og
Geirlaugar eru býsna langar og ít-
arlegar og vísast í fundargerð á vef
Borgarbyggðar fyrir þá sem vilja
kynna sér innihald þeirra í þaula.
mm
Tekist á um meint vanhæfi
sveitarstjórnarfulltrúa
Starfsmenn Borgarverks eru nú langt komnir með að moka grunn fyrir húsin sem
rísa munu á lóðunum Borgarbraut 57-59 í Borgarnesi. Eins og fram hefur komið
í fréttum Skessuhorns verður annars vegar byggt 85 herbergja, fjögurra stjörnu
hótel en hins vegar 26 þjónustuíbúðir fyrir aldraða. Á jarðhæð verður þjónustu-
rými og bílageymsla verður undir hluta húsanna. Átætlað er að hótelbyggingin
verði fullbúin eftir 13 mánuði en íbúðahlutinn eftir 18 mánuði. Ljósm. arg.
Blaðamaður Skessuhorns var fyrir hádegi
síðastliðinn föstudag viðstaddur þeg-
ar frambjóðendur, eða fulltrúar þeirra,
mættu með meðmælendalista til yfir-
kjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi vegna
forsetakosninganna í sumar. Yfirkjör-
stjórn hafði auglýst að hún tæki á móti
frumriti meðmælendalista milli klukkan
10 og 12 í húsnæði Héraðsdóms Vestur-
lands í Borgarnesi. Meðan blaðamaður
átti viðdvöl komu í húsnæði dómsins full-
trúar Guðna Th Jóhannessonar, Hildar
Þórðardóttur auk Ástþórs Magnússonar.
Óli Björn Kárason blaðamaður og fyrr-
verandi alþingismaður var einnig mætt-
ur með meðmælendalista undir hönd en
hann vildi ekki gefa uppi fyrir hvern hann
væri að skila inn lista og vildi yfirleitt alls
ekkert ræða við blaðamann.
Alls höfðu 14 einstaklingar boðað fram-
boð til forseta í síðustu viku en einhverj-
ir þeirra hafa hætt við eða munu tæplega
ná að skila tilsettum fjölda meðmælenda.
Framboðsfrestur rennur út næstkomandi
föstudag. Hátt í tugur nafna mun því
verða á kjörseðlinum 25. júní.
mm/ Ljósm. arg.
Straumur í héraðsdóm með meðmælendalista
Fulltrúar yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi tóku á móti fólki með með-
mælalistana, en Kristján Jóhannsson er formaður kjörstjórnar. Hér er fulltrúi
Guðna Th Jóhannessonar í dyragættinni.
Þorgerður Anna Arnardóttir og Pétur Hrafn Árnason voru fulltrúar Guðna Th
Jóhannessonar forsetaframbjóðanda.
Sigurlaug Vilhjálmsdóttir var mætt með meðmælendalista fyrir
Hildi Þórðardóttur.
Ástþór Magnússon mætti sjálfur og kvaðst vera fyrir löngu búinn
að safna tilskyldum fjölda meðmælenda.
Óli Björn Kárason vildi ekki upplýsa blaðamann Skessuhorns um
fyrir hvern hann væri að skila inn meðmælendalista.