Skessuhorn


Skessuhorn - 18.05.2016, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 18.05.2016, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 20164 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 2.700 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 2.340. Rafræn áskrift kostar 2.120 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 1.960 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Guðný Ruth Þorfinnsdóttir gudny@skessuhorn.is Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Lísbet Sigurðardóttir lisbet@skessuhorn.is Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is Þórarinn Ingi Tómasson toti@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Hvar er mannúðin? Í fjölmiðlum í síðustu viku var ítarlega fjallað um mál albanskrar 18 ára konu. Hún kom ásamt fjölskyldu sinni frá Albaníu í júlí á síðasta ári. Í október fékk hún inngöngu í Flensborgarskóla í Hafnarfirði og hóf nám í efna- og stærðfræði. Einnig lærði hún ensku og svo íslensku sem annað tungumál. Síðan hefur hún stundað fullt nám í raungrein- um og íslensku og átti að útskrifast með skólafélögum sínum sem stúd- ent af náttúrufræðibraut 27. maí, einungis 18 ára. Á þessum stutta tíma hafði stúlkan náð fullu valdi á íslensku máli, enda greinilega vel gef- in og þar að auki ákveðin í að setjast hér að. Lægsta einkunn þessarar konu á stúdentsprófi var 9. Í framhaldi af góðum árangri í námi hugð- ist hún sækja um að hefja nám í læknisfræði við Háskóla Íslands. En þá kom babb í bátinn. Hún fær ekki að útskrifast með samnemendum sínum. Ástæðan er sú að einhver stofnun sem nefnist Kærunefnd út- lendingamála ákvað að vísa stúlkunni úr landi ásamt fjölskyldu henn- ar. Þarna voru Íslendingar á leiðinni að fá efni í afburða námsmann í læknadeild, en greinilegt að íslensk innflytjendalög leyfa bara sumum að vera hér, öðrum ekki. Þetta er ljótt hentistefnufyrirkomulag sem allavega ég skil ekki. Fjölskylda stúlkunnar hafði sótt um hæli hér á landi, flúið heima- land sitt vegna pólitískra ofsókna. Foreldrarnir eru vel menntað fólk sem allar líkur eru á að hefðu gert nýju heimalandi gagn og orðið nýtir þjóðfélagsþegnar. Kærunefnd útlendingamála hefur hins vegar hafnað öllum þeirra beiðnum. Fjölskyldan hafði komið sér vel fyrir í Hafnar- firði þar sem yngstu börnin gengu í skóla. Elsta barnið glímir þó við al- varlegan sjúkdóm sem það er í meðferð við hér á landi. Í ítarlegu frétta- viðtali við DV sögðust foreldrarnir hafa neyðst til að flýja land vegna pólitískra ofsókna, útskúfunar og hótana sem eiga rætur sínar að rekja til stjórnmálaþátttöku fjölskylduföðurins. Á sama tíma og þessu fer fram hér á Íslandi sátu þeir sem mest hafa um það að segja hvort látið verði reyna á brottvísun fólksins frá Íslandi, í Gala veislu í Hvíta húsinu í Bandaríkjunum. Ráðherra utanríkismála og forsætisráðherra. Þessu fólki væri í lófa lagið að kippa í þá spotta sem þarf til að veita þessu albanska flóttafólki það tækifæri sem þá á skilið hér á landi. Nei, ungi nýstúdentinn frá Flensborg má ekki einu sinni útskrifast með skólafélögum sínum. Búin að læra betri íslensku en margir innfæddir og þar að auki sýnt betri árangur í námi en flestir ef ekki allir skólafélagar hennar. Hvílík skömm! Ég er þeirrar skoðunar að nákvæmlega það sem vantar hér á landi er meiri sveigjanleiki í kerfið og manngæska í garð þeirra sem eiga slíkt skilið. Þennan kærleika hefur augljóslega skort í garð þeirra þegna sem minnst hafa á milli handa hér á landi. Margir hafa það skítt fjárhags- lega, en eru þó engu að síður í þeirri stöðu að þeim má ekki vísa úr landi af því þeir eru innfæddir! Þær klær eru hins vegar notaðar óspart á ýmsa aðra, jafnvel þótt þeir hafi ekkert til saka unnið annað en vera ekki fólk sem hefur áhuga á búsetu hér á landi. Þjóðfélagi okkar skort- ir kjark og vilja til að sýna að við erum raunverulega gott fólk að eðlis- fari. Við eigum ekki að láta stjórnmálamenn komast upp með að sam- þykkja svo aumar reglur í útlendingamálum að fólkið sem ég nefndi hér að ofan sé réttrækt til baka til óviðunandi aðstæðna, eins og varn- arlaus lömb á sláturbíl. Viljum við ekki annars öll vera mannleg, eða er ég kannski að misskilja hlutina? Magnús Magnússon. Leiðari Nú er byrjað að hlána til fjalla og jarðvegur víða orðinn mjög gljúp- ur, segir í tilkynningu frá Vega- gerðinni. „Vegslóðar á hálendinu eru afar viðkvæmir á meðan frost er að fara úr jörðu og í verndar- skyni er akstursbann nú þegar á mörgum hálendisvegum. Þeir sem hafa hug á hálendisferðum eru beðnir að kynna sér vel hvert hægt er að fara og hvar akstur er óheim- ill.“ Á meðfylgjandi korti kemur m.a. fram að vegurinn um Kalda- dal er lokaður, sem og Haukadals- vegur í Dölum. Þá er einnig ófært yfir Arnarvatnsheiði, enda sá veg- ur ekki opnaður fyrr en í fyrsta lagi um miðjan júní. mm Akstursbann á hálendisvegum Sjóflokkur Björgunarfélags Akra- ness var kallaður út klukkan 1:30 aðfararnótt mánudags til aðstoðar vélarvana skemmtibát sem stadd- ur var á Hvalfirði, skammt inn af Grundartanga. Að sögn Jóns Gunnars Ingibergssonar hjá björg- unarfélaginu sigldu þeir á Margréti Guðbrandsdóttur frá Akranesi og inn á fjörð. Einnig var björgunar- sveitarbíll sendur inn á Grundar- tanga til að svipast um eftir bátn- um. Um borð í skemmtibátnum var einn fullorðinn og tvö börn. Siglt hafði verið frá Hvammsvík og hafði vélarbilun orðið. Það tók björgun- arsveitarmenn dálitla stund að finna bátinn í myrkrinu en um borð voru ekki staðsetningar- eða fjarskipta- búnaður. Þegar báturinn fannst var taug komið um borð og hann dreginn að bryggjustubb sem er við Eyrarkot. Að sögn Jóns Gunnars gekk ferðin vel og fremur stillt var í sjó. mm Sóttu vélarvana skemmtibát inn í Hvalfjörð Tjaldsvæðið við Kalmansvík á Akranesi var formlega opnað á föstudaginn. Fyrstu gestirnir mættu hinsvegar á svæðið kvöldið áður og voru búnir að koma sér vel fyrir tímanlega fyrir hvítasunnuhelgina. Að sögn Regínu Ásvaldsdóttur bæj- arstjóra verða í sumar starfsmenn sem koma a.m.k. tvisvar á dag til að sinna þjónustu á svæðinu sem felur í sér ræstingar og innheimtu. Auk þess hefur aðstaða verið bætt tals- vert. „Farið hefur verið í úrbætur á aðstöðu, meðal annars á salernum þar sem skipt var um dúka, klósett- kassa og sturtur. Að utan var hús- ið málað og borið var á pallinn fyr- ir framan. Í þjónustuhúsinu voru kantar, gluggar og þakrennur mál- aðar. Verið er að vinna að lagfær- ingu á pallinum fyrir framan þjón- ustuhúsið og mun það klárast eftir helgina. Garðyrkjustjóri og nem- endur í Vinnuskóla Akraness munu sjá um að fegra umhverfið með blómum og slætti og einnig verður sett upp nýtt upplýsingaskilti sem staðsett verður á bakhlið þjónustu- hússins,“ segir Regína Ásvaldsdótt- ir bæjarstjóri. Hún bætir því við að tjaldsvæðið verður opið til 15. september og að bæjarráð hafi ný- lega samþykkt gjaldskrá. Byggðasafnið í Görðum var einn- ig opnað á föstudaginn og verð- ur opið fram í miðjan september. Föst leiðsögn verður á safninu sem verður opið milli klukkan 10 og 17 alla daga vikunnar. Þá er nú búið að opna upplýsingamiðstöð Akraness í gamla Landsbankahúsinu við Akra- torg. mm/ Ljósm. úr safni. Tjaldsvæðið var opnað fyrir Hvítasunnu Bæjarráð Stykkishólmsbæjar sam- þykkti á fundi sínum 11. maí síðast- liðinn að fela sveitarstjóra að senda inn erindi varðandi hafnargerð vegna vinnslu næstu Samgöngu- áætlunar. Erindið er í samræmi við tillögur sem lagðar hafa verið fram af hafnarstjórn. Um er að ræða fjög- ur verkefni sem hafnarstjórn tel- ur mjög brýn. Óskað er eftir að þau hljóti styrk úr Hafnabótasjóði á næsta áætlunartímabili. Fyrst ber að nefna viðlegukant Skipavíkurhafnar, vegna viðlegu flutningaskipa og löndunar sjávar- fangs. „Lenging núverandi stálþils til austurs um 80 metra í samræmi við tillögu að deiliskipulagi vegna Þör- ungaverksmiðju. Áætlaður kostnað- ur er 240 milljónir,“ segir í fundar- gerð. Geta má þess að fyrir tæpu ári var einmitt sótt um athafnasvæði til handa verksmiðju Deltagen Iceland á hafnarsvæðinu í Stykkishólmi. Næsta verkefni nær til austur- hluta Stykkishólmshafnar. Um er að ræða dýpkun við löndunarbryggj- una og flotbryggju smáhafnarinn- ar. Það verkefni hefur áður verið á áætlun og er kostnaður áætlaður 20 milljónir króna. Í þriðja lagi er ósk- að eftir styrk vegna göngubrautar að ferju sunnan akstursleiðarinnar við ferjuhöfnina í Súgandisey. Áætlaður kostnaður er 4,5 milljónir. Fjórða verkefnið er vegna smá- bátaaðstöðu í Stykkishöfn, vestan við Stykkið. „Flotbryggjur sem verði tengdar til lands neðan við Hafnar- húsið í samræmi við deiliskipulag hafnarsvæðis. Áætlaður kostnaður 20 milljónir,“ segir í fundargerð. Samtals er því óskað eftir styrkj- um úr Hafnarbótasjóði að heildar- verðmæti 284,5 milljónum króna á næsta áætlunartímabili. kgk Óska eftir styrkjum úr Hafnabótasjóði Horft yfir Stykkishólmshöfn að kvöldi dags nú í vor. Ljósm. sá.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.