Skessuhorn - 18.05.2016, Page 15
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 2016 15
Heyrðu umskiptin. Fáðu heyrnartæki til reynslu.
Erum með margar gerðir og verðflokka á
ReSound heyrnartækjum.
Heyrnarþjónustan Heyrn • Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur • s:534-9600 • www.heyrn.is •
ÞJÓNUSTA ÞJÓNUSTA
BLIKKSMIÐJA
Loftræstingar – Reykrör
Klæðningar – Nýsmíði
Viðhald – Efnissala
JÁRNSMIÐJA
Gjafagrindur – Nýsmíði
Viðhald – Þjónusta
Hesthúsinnréttingar
RAFMAGNS-
VERKSTÆÐI
Nýlagnir – Viðhald
Viðgerðaþjónusta
Borgarbraut 74 • 310 Borgarnesi • 412-5300 • limtrevirnet.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is
Styrkir til íþrótta- og æskulýðsfélaga
á Akranesi
Akraneskaupstaður veitir 10,9 milljónum til íþrótta- og
tómstundafélaga á Akranesi. Markmiðið er að styðja virk
íþrótta- og tómstundafélög á Akranesi til að halda uppi öflugu
íþrótta-, félags- og tómstundastarfi fyrir börn og unglinga.
Styrkir þessir eru veittir til þjálfunar og leiðsagnar barna og
unglinga 3 - 18 ára. Skilyrði er að félagið hafi starfað í a.m.k.
2 ár og staðið skil á lögformlegum skyldum sínum.
Sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar eða
í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð.
Styrktímabil er 1. janúar - 31. desember 2016.
Umsóknarfrestur er til 26. maí 2016.
Nánari upplýsingar veitir skóla- og frístundasvið
Akraneskaupstaðar í síma 433 1000 eða með tölvupóst
á netfangið skoliogfristund@akranes.is
Gamla Kaupfélagið á Akranesi var
opnað að nýju síðastliðinn föstudag
þegar tekið var á móti fyrstu mat-
argestunum. Eins og Skessuhorn
greindi frá í aprílbyrjun var staðn-
um lokað tímabundið þegar fyrrum
rekstraraðili hætti starfsemi og nýir
tóku við. Félagið Veislur og viðburð-
ir ehf. hefur tekið við rekstri Gamla
Kaupfélagsins, en að því standa Ísólf-
ur Haraldsson og Gunnar Hafsteinn
Ólafsson matreiðslumaður. Síðan
þá hefur verið ráðist í nokkrar end-
urbætur á húsnæðinu. Meðal þeirra
má nefna að sviði stóra salsins hefur
verið breytt lítillega og aðstaðan bak-
sviðs bætt til muna. Myndir prýða
veggi hússins sem hafa verið málað-
ir að nýju.
En það sem fangar fyrst aug-
að er veitingasalurinn. Hann hef-
ur verið endurhannaður, skartar nýj-
um lit og málverk eftir listamanninn
Bjarna Þór hafa fengið stað á veggj-
unum. „Við endurinnréttuðum veit-
ingasalinn og gerðum hann heim-
ilislegri. Staðurinn á að vera dálítið
„hómí“, andrúmsloftið afslappað og
ekkert stress,“ segir Ísólfur í samtali
við Skessuhorn. „Við fengum leik-
myndahönnuð úr Fast and the Fu-
rious til að mála veitingasalinn fyrir
okkur í þessum fína lit. Auk þess höf-
um við átt í samstarfi við Bjarna Þór
og málverk eftir hann munu prýða
veggina,“ bætir hann við.
„Maturinn verður
góður“
Aðspurður um matinn er svar Gunn-
ars matreiðslumanns einfalt. „Matur-
inn verður góður,“ segir hann léttur
í bragði en bætir því við að matseð-
illinn sé einfaldur og hnitmiðaður.
„Þannig finnst mér að matseðlar eigi
að vera. Við verðum með eldbakaðar
pitsur og bistro-seðil með grilluðum
hamborgurum, pastaréttum og fleiru
slíku,“ segir hann. „En á kvöldverð-
arseðlinum verða meðal annars tveir
fiskréttir og steikur í steikhússtíl. All-
ar steikur verða grillaðar, hvort sem
um er að ræða naut, lamb eða kjúk-
ling og gestir hafa val um meðlæti og
sósur. Steikurnar verða síðan born-
ar fram á viðarplatta,“ bætir Gunn-
ar við. „Við vonum að fólk njóti þess
að koma hingað að borða góðan mat.
Í framtíðinni munum við svo reyna
að standa fyrir lifandi menningarvið-
burðum í húsinu,“ segja eigendurnir
að lokum.
kgk
Gamla Kaupfélagið opnað að nýju
Starfsfólki og eigendum Gamla Kaupfélagsins munaði ekkert um að stilla sér upp
á mynd þótt unnið væri hörðum höndum að enduropnun staðarins síðar sama
dag. F.v. Þóra Björk Þorgeirsdóttir, Jósef Halldór Þorgeirsson, Ísólfur Haraldsson,
Valdimar Ingi Brynjarsson og Gunnar Hafsteinn Ólafsson.
Enn er unnið að endurmati á mun-
um sem fundist hafa við uppgröft á
Gufuskálum síðustu árin og mun
Minjastofnun Íslands ekki veita
frekari uppgraftarleyfi á staðnum
fyrr en þeirri vinnu lýkur. Á Gufu-
skálum hefur Lilja Pálsdóttir forn-
leifafræðingur við Fornleifastofn-
un á síðustu árum stýrt uppgreftri
á aldagömlum minjum um útræði,
verslun og verbúðir. Skessuhorn
hefur fjallað ítarlega um þá vinnu,
en unnið hefur verið í miklu kapp-
hlaupi við ágang sjávar sem nag-
að hefur sífellt meira úr bökkum
gömlu verbúðanna. Gert verður
hlé á uppgreftrinum í sumar.
mm
Ekki verður grafið á
Gufuskálum í sumar
Lilja Pálsdóttir fornleifafræðingur á vettvangi við Gufuskála. Ljósm. kgk.
Bæjarráð Akraness ákvað á fundi
sínum fimmtudaginn 12. maí að
hafna öllum tilboðum sem bárust
í fyrirhugaðar flóasiglingar með
litlum farþegabáti milli Akraness
og Reykjavíkur. Sömu ákvörðun
tók síðan borgarstjórn Reykjavíkur
en sveitarfélögin tvö stóðu saman
að undirbúningi verkefnisins. Þrjú
tilboð bárust í verkefnið en ekk-
ert þeirra samræmdist markmiðum
sveitarfélaganna um tilraunaverkefni
í sumar. Þetta kom fram á vef Akra-
neskaupstaðar. Þar sagði að mark-
mið tilraunaverkefnisins hafi átt
að vera að kanna rekstrargrundvöll
reglulegra bátsferða milli Akraness
og Reykjavíkur frá maí til septem-
ber. Gert var ráð fyrir því að rekstr-
araðili myndi safna gögnum varð-
andi rekstrarþætti á þessu tímabili.
Rekstraraðilarnir þrír sem boðið
var til viðræðna vegna fyrirhugaðra
flóasiglinga horfðu allir til lengra
samningstímabils en fulltrúar sveit-
arfélaganna höfðu í huga. Bæjarráð
Akraness samþykkti því að endur-
skoða útboðsskilmála með það fyr-
ir augum að bjóða flóasiglingar út á
nýjan leik í tíma þannig að þær geti
hafist fyrir sumarið 2017. kgk
Engar flóasiglingar á þessu
ári eins og ráðgert var
Á meðfylgjandi mynd eru Ólafur
Adolfsson formaður bæjarráðs á Akra-
nesi, Kristín Soffía Jónsdóttir, stjórnar-
formaður Faxaflóahafna, Dagur B
Eggertsson borgarstjóri í Reykjavík
og Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri
á Akranesi. Farin var prufusigling
yfir flóann þegar verkefnið var fyrst í
undirbúningi. Sá undirbúningur mun
taka lengri tíma.