Skessuhorn - 18.05.2016, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 2016 19
Krossgáta Skessuhorns
Dögun
Tala
Ham-
hleypa
Hólmi
Ólag
Farði
Þar til
Beljaki
Eldstó
Bendir
Tengill
Vært
Hlass
Borð-
hald
Satt Kögur Reipi Bara
Ágæti
Ítreka
4 1
Aldr-
aða
Net
ÁTT
Sérstök
Fylling
Baun
Stallur
Rusl
Auðið
Lokað
17 Nærast
Nærri
Fag
12 Skort-
ur
Sigla
Dýpi
Marr
8 Hljóta
Röst
Menn
Ónæði
Planta
Tuldraði
Ókunn
Öskur
Vagga
Á flík
Viðbót
Skel
6 Opin-
bera
10
Af-
gangar
Synir
13 Ratsjá
Dyggur
Gnýr
Stafur
Þola
Snagi
Hás
18
Liður
Af-
kimar
Hryðja
19 Háhýsi
Andar
7
Kona
Hiti
Grá
Spil
Hönd
Syllur
3
Auga
Lítil
Alda
Suddi
Skjól
Röð
150
Einatt
Droll
Blundur
Fjöldi
Sló
Reitur-
inn
15 Gæði
Faðmur
5
Kassi
Tónn
Stafur
Bein
Bjálki
9 Korn
Hlóðir
Fljót
Áflog
11 Vafstur
Stafur
Mönd-
ull
Blakta
Duftið
Dropi
2 Sk.st. 14
Hár
Breið
Áhald
Eignir
16
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Þeir sem
vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfang-
ið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánu-
dögum. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að
fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að
tölvupósti sendi lausnir á: „Skessuhorn - krossgáta,
Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (athugið að póstleggja
þarf lausnir í síðasta lagi á föstudegi). Dregið verður
úr réttum innsendum lausnum og fær vinningshafinn
bókargjöf frá Skessuhorni.
Alls bárust 57 lausnir við krossgátunni í blaðinu
í síðustu viku. Lausnarorðið var: „Nenna er hálfur
gerningur.“ Vinningshafi er: Benóný K Halldórsson,
Vallarbraut 7, 300 Akranesi.
PISTILL
Ég er einfaldur maður, það eina sem
ég þarf eru föt til að klæðast, skór
til að labba í og matur til að nær-
ast endrum og sinnum. Svo horfi ég
stundum á sjónvarp en auðvitað þarf
ég að hvílast og geri ég það í tilætl-
uðu svefnstæði á heimili mínu. Mig
langar stundum að sofa út, ekki of
lengi þó, því maður verður að geta
nýtt dagana í eitthvað gagnlegt og
svo hefur skilningur minn á því að
sofa út breyst töluvert eftir að ég
eignaðist drengina mína. Núna kalla
ég það að sofa út að vakna kl. 09:00,
þá rís ég eins og nýsleginn túskilding-
ur úr rekkju og helli mér upp á kaffi.
(Innskot frá pistlahöfundi): Kannski
ættum við að breyta um gjaldmið-
il í þessari samlíkingu, túskildingur
þykir ekki merkilegur í dag og ekki
nota millarnir hann heldur einhverja
meira spennandi og framandi gjald-
miðla á borð við dollara, evru og
slíkt. Ríka konan úr Garðabænum
sem á Sinnun ehf. segir örugglega
við ferðamanninn; ég meina sjúk-
linginn; ,,Engar áhyggjur vinur, þú
verður eins og nýsleginn túskilding-
ur, ég meina dollari eftir aðgerðina.
Við erum líka búin að leigja út her-
bergið þitt svo að þú verður bara að
jafna þig heima hjá þér”.
Þetta var útúrdúr frá því sem ég
ætlaði að tala um. Ég ætlaði að tala
um hið einfalda líf. Sjáðu til, í dag
höfum við fyrirbæri sem kallast
ólínuleg dagskrá. Með henni getum
við stjórnað algerlega hvað við horf-
um á. Ólíkt því að vera háð duttl-
ungum pirraða dagskrárstjórans á
sjónvarpsstöðinni sem ákveður til
dæmis á sinn sadíska hátt að sýna
t.d. sömu Nicolas Cage myndina
þrjátíu sinnum yfir tveggja mánaða
tímabil á Bíórásinni. Allt í góðu með
það, kannski vill hann vera viss um
að allir sem vilja sjái þessa tilteknu
mynd og vil ég enn og aftur taka það
fram að ég er mikill aðdáandi Nico-
las Cage; ,,put the bunny down”.
En með þessari auknu sjálfsstjórn
hefur byggst upp í mér áður óþekkt
spenna, mér líð-
ur alltaf eins og
ég sé á vídjóleig-
unni. Þeir les-
endur sem eru
á þrítugsaldrinum ættu að kannast
við þetta, skreppur á vídjóleiguna
gat umbreyst í langtímadvöl í leit að
réttu myndinni. Ein ný og ein gömul
var óborganlega góð samsetning, en
skreppurinn til Magga í Ás gat und-
ið upp á sig allverulega. Þessi upp-
safnaða spenna hefur valdið trufl-
unum í mínu daglega lífi, hvað á ég
að horfa á í kvöld er áleitin spurn-
ing í huga mínum um kaffileytið og
verður ágengari eftir því sem kvöld-
ið nálgast. Þess vegna hef ég ákveð-
ið að taka í taumana, slá í borðið
o.s.fv. Hef ég síðustu daga stundað
það sem ég kalla dagskrártantra, ég
neita mér um allt sem heitir „leiga“
og „tímaflakk“ á afruglaranum mín-
um. Ég bíð frekar eftir uppáhalds-
þættinum mínum, ég sit fastur fyr-
ir með hendurnar reyrðar fastar
með fjarstýringuna falda inn í skáp
og horfi. Ég horfi ótrauður í gegn-
um raunveruleikaþáttaniðurgang-
inn, ég fylgist með sakamálaþætt-
inum sem lætur Matlock líta út eins
og óskarsverðlaunaþátt í hvert skipti
og kreisti bros yfir dósahlátursgam-
anþáttinn sem nálgast 13 þáttaröð-
ir. Svo kemur að því að ég finn sæl-
una, alsæluna magnast þegar þátt-
urinn sem ég hef beðið eftir nálgast
óðfluga og þegar hann loksins byrjar
upplifi ég það sem gæti kallast dag-
skrártantra, svona eins og tantrað
sem fólk notar fyrir erótíkina.
Þegar þetta er skrifað seint í gær-
kvöldi er nýr Game of Thrones þátt-
ur á leiðinni, reyndar ekki nýr því
hann var sýndur aðfararnótt mánu-
dags en ég lét tímaflakkið eiga sig og
uppskar eftir því.
Góðar stundir,
Axel Freyr Eiríksson
Dagskrártantra
Fjörlegir tónleikar voru haldnir í
Ólafsvíkurkirkju miðvikudaginn 11.
maí. Þar voru á ferðinni Kirkjukór
Ólafsvíkur, Kirkjukór Ingjaldshóls-
kirkju ásamt hljómsveit frá Tón-
listarskóla Snæfellsbæjar. Yfirskrift
tónleikanna var „Söngskemmt-
un með léttri sveiflu“ og stóðu þeir
undir nafni. Höfðu kórarnir æft
sameiginlegt prógram undir stjórn
kórstjóranna þeirra Veronicu Os-
terhammer og Elenu Makeev sem
einnig lék undir á píanó í nokkrum
lögum. Blönduðust kórarnir sam-
an á skemmtilegan hátt enda hafa
þeir áður unnið svona saman. Ekki
skemmdi frábært undirspil hljóm-
sveitar tónlistarskólans, en hljóm-
sveitin samanstóð af kennurum og
fullorðnum nemendum, þeim Val-
entinu Kay skólastjóra, Evgeny Ma-
keev, kennara, Ástu Dóru Valgeirs-
dóttur á trommur og Davíð Viðars-
syni á gítar. Sönghópurinn frábæri
Hinir síungu kom einnig fram ásamt
Steinunni Stefánsdóttur sem söng
og Guðbjörgu Helgu Halldórsdótt-
ur sem spilaði á píanó. Tónleikarn-
ir voru vel sóttir og tónleikargest-
ir mjög ánægðir með þá. Að þeim
loknum buðu kórarnir upp á kaffi
og konfekt í safnaðarheimili Ólafs-
víkurkirkju. þa
Fjörlegir tónleikar í Snæfellsbæ
Undanfarna viku hafa nemendur
Grunnskóla Grundarfjarðar lagt
stund á dansnám hjá Erlu Sif dans-
kennara. Eftir vikuna héldu nem-
endur svo veglega danssýningu í
hádeginu föstudaginn 13. maí. Þá
stigu þau sporin sem þau höfðu
lært og sýndu afrakstur erfiðisins.
Nokkuð ljóst er að vel hafði til tek-
ist og urðu foreldrar og velunnarar
skólans vitni að glæsilegum tilþrif-
um hjá krökkunum. tfk
Dönsuðu í lok námskeiðs