Skessuhorn - 18.05.2016, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 2016 23
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
NORÐURÁLSVÖLLUR
Allir á völlinn
ÍA-Fylkir
Laugardaginn 21. maí kl 16:00
Mætum öll gul og glöð
Aðalstyrktaraðili leiksins er:
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
6
PEPSIDEILD KARLA:
NORÐURÁLSVÖLLUR
Allir á völlinn
ÍA-Selfoss
Þriðjudaginn 24. maí kl. 19:15
Mætum öll gul og glöð
Aðalstyrktaraðili leiksins er:
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
6
PEPSIDEILD KVENNA:
Kylfingurinn Valdís Þóra Jónsdótt-
ir úr Golfklúbbnum Leyni á Akra-
nesi lék í síðustu viku á LET Access
atvinnumótaröðinni á Spáni, sem
er næststerkasta atvinnumótaröð
kvenna í Evrópu. Var það fyrsta mót
Valdísar á þessu tímabili í mótaröð-
inni, en hún fór í aðgerð í febrúar
vegna álagsmeiðsla í þumalfingri.
Skemmst er frá því að segja að Val-
dís náði sínum besta árangri á móta-
röðinni frá upphafi. Hún hafnaði í
þriðja sæti á þremur höggum und-
ir pari, einu höggi frá efsta sætinu.
Hún lék fyrsta hringinn á 66 högg-
um, eða tveimur undir pari vallarins
og annan hringinn á 67, einu und-
ir pari og því samanlagt á þremur
höggum undir pari.
Á sömu mótaröð lék einnig Ólafía
Þórunn Kristjánsdóttir úr Golf-
klúbbi Reykjavíkur. Hún lék fyrsta
hringinn á pari vallarins, 68 högg-
um og annan hringinn á 70 högg-
um, eða tveimur yfir pari. Ólafía
lauk því keppni á tveimur höggum
yfir pari og endaði í 23. sæti.
kgk
Valdís Þóra í þriðja sæti á Spáni
Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Golfklúbbnum Leyni.
Víkingur Ólafsvík og ÍA mættust í
Vesturlandsslag í Pepsi deild karla
í knattspyrnu á mánudagskvöldið.
Aðstæður til knattspyrnuiðkunar í
Ólafsvík voru prýðilegar. Völlur-
inn góður en örlítil gola og fremur
kalt. Heimamenn voru betri allan
leikinn og sigruðu að lokum sann-
færandi með þremur mörkum gegn
engu.
Víkingar komust yfir strax á 5.
mínútu leiksins og þar var á ferð-
inni William Dominguez. Alfreð
Már Hjaltalín sendi boltann inn á
völlinn á William sem lagði bolt-
ann frá vítateigsboganum framhjá
Árna Snæ Ólafssyni í marki Skaga-
manna. ÍA fékk ágætt færi eftir lága
aukaspyrnu frá hægri eftir korters
leik en Einar Hjörleifsson varði
vel frá Garðari Gunnlaugssyni.
Heimamenn áttu svo góða tilraun
þegar löng sending fann Pape Ma-
madou Faye sem fór framhjá Þórði
Þorsteini Þórðarsyni bakverði en
skaut framhjá markinu. Víkingar
voru heldur sterkari og bættu við
öðru marki sínu á 38. mínútu. Pape
sendi boltann fyrir markið, beint á
kollinn á Hrvoje Tokic sem skor-
aði sitt fjórða mark í aðeins þrem-
ur leikjum. Áður en flautað var til
hálfleiks fékk Garðar færi til að
minnka metin fyrir ÍA. Hann fékk
boltann hægra megin í teignum
eftir góða sendingu en skaut yfir.
Skagamenn fengu vítaspyrnu á
52. mínútu þegar brotið var á Jóni
Vilhelm Ákasyni. Garðar steig á
punktinn en Einar Hjörleifsson
varði frá honum. Boltinn féll aftur
fyrir fætur Garðars en Einar varði
öðru sinni.
Víkingar efldust við þetta og
stjórnuðu gangi leiksins. Tokic var
hársbreitt frá því að auka muninn í
þrjú mörk eftir góða sókn en skot
hans fór í þverslána og út. Skaga-
menn fengu þó sín færi. Ber þar
helst að nefna skalla frá Garðari
sem Einar varði glæsilega í mark-
inu.
Á 82. mínútu gerðu Víkingar síð-
an endanlega út um leikinn. Pon-
tus Nordenberg átti góða fyrir-
gjöf á nærstöngina sem Aleix Egea
Acame skallaði í netið. Staðan orð-
in þrjú mörk gegn engu og Víking-
ar með pálmann í höndunum.
Enn áttu þó eftir að koma færi.
Víkingar hefðu getað bætt fjórða
markinu við á lokamínútu venju-
legs leiktíma þegar Tokic komst
einn í gegn. Hann sendi boltann út
í teiginn en Ármann Smári Björns-
son komst inn í sendinguna og
Skagamenn geystust í sókn. Fyrir-
gjöf frá vinstri fann Ólaf Val Valdi-
marsson í teignum en hann þrum-
aði boltanum beint í Pontus sem
stóð á marklínunni. Lokatölur í
Ólafsvík því sem fyrr segir 3-0,
Víkingi í vil.
Úrslit leiksins þýða að Víking-
ar tylla sér á topp Pepsi deildar-
innar, að minnsta kosti þangað til
þriðjudagskvöld, þegar Skessuhorn
var prentað. Þeir hafa tíu stig eftir
fyrstu fjóra leikina. ÍA er hins vegar
í 9. sæti sem stendur með þrjú stig
eftir jafn marga leiki.
Skagamenn leika næst laugar-
daginn 21. maí gegn Fylki á Akra-
nesvelli. Daginn eftir, sunnudaginn
22. maí, leika Víkingar gegn Fjölni
í Grafarvoginum.
kgk/ Ljósm. af.
Víkingur sigraði í Vesturlandsslagnum
Einar Hjörleifsson varði vítaspyrnu Garðars Gunnlaugsonar snemma síðari hálf-
leiks.
Einar var valinn maður leiksins af
stuðningsmönnum Víkings. Hér tekur
hann við gjafabréfi úr hendi Inga
Kristmanns.
ÍA lék sinn fyrsta leik í Pepsi deild
kvenna í knattspyrnu á Akranesvelli
á laugardag þegar FH-ingar komu
í heimsókn. Um nýliðaslag var að
ræða, en bæði lið tryggðu sér sæti í
deild þeirra bestu fyrir þetta keppn-
istímabil. Skagakonur fengu ekki
sína óskabyrjun í Íslandsmótinu
þetta árið, því FH-ingar sigruðu
með einu marki gegn engu.
Leikurinn fór fremur rólega af
stað og hvorugt lið skapaði sér af-
gerandi marktækifæri. Skagakonur
voru þó heldur sterkari og stjórn-
uðu gangi mála inni á vellinum.
Þegar um hálftími var komst Meg-
an Dunnigan upp að endamörkum
vinstra megin eftir góðan sprett.
Hún lagði boltann út í teiginn á
Bergdísi Fanneyju Einarsdóttur
sem skaut yfir markið úr sannköll-
uðu dauðafæri. Botninn datt heldur
úr leiknum eftir það og staðan var
markalaus í hálfleik.
Gestirnir úr Hafnarfirði gerðu
tvær breytingar á liði sínu í leik-
hléinu og byrjuðu síðari hálfleik af
krafti. Þær skoruðu eina mark leiks-
ins á 54. mínútu eftir mistök í vörn
ÍA. Sending milli varnarmanna rat-
aði þá fyrir fætur Karólínu Leu Vil-
hjálmsdóttur sem komst ein inn fyr-
ir vörn ÍA og skoraði fram hjá Ástu
Vigdísi Guðlaugsdóttur í markinu.
FH var áfram betra lið vallar-
ins fyrst eftir markið, létu boltann
ganga sín á milli og stjórnuðu leikn-
um. Fátt markvert gerðist og leikur-
inn var fremur tíðindalítill til loka.
Skagakonur fengu þó færi til að
jafna á lokamínútum leiksins þeg-
ar Jaclyn Pourcel átti góðan skalla
að marki eftir aukaspyrnu en mark-
vörður FH varði glæsilega alveg úti
við stöngina.
Fleiri mörk voru ekki skoruð og
lokatölur á Akranesvelli því 0-1, FH
í vil.
Næsti leikur ÍA fer fram í kvöld,
miðvikudaginn 18. maí þegar liðið
mætir Þór/KA norður á Akureyri.
kgk
Tap í fyrsta leik Skagakvenna
Skagakonur þurftu að sætta sig við tap í nýliðaslagnum gegn FH í dag.
Ljósm. Guðmundur Bjarki.
.