Skessuhorn - 15.06.2016, Qupperneq 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 24. tbl. 19. árg. 15. júní 2016 - kr. 750 í lausasölu
Gjaldeyrir.is er
tímasparnaður fyrir alla
Viðskiptavinir allra banka geta gripið með sér
ferðagjaldeyrinn á Keflavíkurflugvelli
Fæst án lyfseðils
LYFIS
Rafræn áskrift
Ný áskriftarleið
Pantaðu núna
Frá og með 17. júní
mun Verslunin Bjarg
flytja tímabundið
í annað húsnæði,
Kalmansvelli 1
(áður verslunin Nettó)
vegna miklla endur-
bóta og viðgerða á
húsnæði verslunar-
innar að Stillholti 14.
15% afsláttur af öllum
vörum 16 júní.
ATH! LOKAÐ VERÐUR
LAUGARDAGINN 18/6
og MÁNUDAGINN 20/6.
Systurnar Gyða og Sigrún Rós Helgadætur gerðu það gott um helgina á úrtökumóti vestlensku hestamannafélaganna fyrir
Landsmót hestamanna sem haldið verður á Hólum um mánaðamótin. Á úrtökumótinu gerðu þær sér lítið fyrir og sigruðu
í sínum flokkum; unglinga- og ungmennaflokki. Gyða keppti á Freyði frá Mið-Fossum en Sigrún Rós á Höllu frá Kverná. Þá
gerðu fleiri stúlkur það gott. Nefna má að tíu efstu í barnaflokki voru allt stúlkur. Á meðfylgjandi mynd er Sigrún Rós að sýna
Höllu frá Kverná. Um úrslit úrtökumótsins má lesa á bls. 22. Ljósm. iss.
Ofurhlaupari henti
út ruslfæðinu
„Ég tók til í mataræð-
inu árið 1995. Þá henti
ég út öllu drasli og
byggði matinn upp á
kjöti, fiski, grænmeti
og ávöxtum. Kökum, kexi, brauð-
meti og öðru ruslfæði henti ég út.
Ég er vandlátur á brauð til dæmis
og henti einnig út öllu næringars-
nauðu fyllifóðri. Ég líki þessu við að
það þýðir ekki að hálffylla bensín-
tankinn með vatni þó að bensínið
sé dýrt.“ Þetta segir ofurhlaupar-
inn Gunnlaugur A Júlíusson, sveit-
arstjóri í Borgarbyggð, sem þakk-
ar m.a. réttu mataræði góðum ár-
angri í langhlaupum. Sjá bls. 20-21.
Var landsliðskona í
þremur greinum
Ferill Skagakonunn-
ar Laufeyjar Sigurð-
ardóttur í íþróttum
er um margt býsna
fróðlegur. Laufey skor-
aði 257 mörk í 322 leikjum með
meistaraflokki í knattspyrnu. Hún
á að baki þrjá Íslandsmeistaratitla
utanhúss og fjóra innanhúss auk
þess sem hún vann í bikarkeppni
KSÍ einu sinni. Laufey á að baki 19
leiki fyrir íslenska landsliðið í knatt-
spyrnu auk þess að prófa fyrir sér
í atvinnumennsku erlendis. Laufey
átti einnig glæstan feril í handbolta
og badminton en hann varð styttri
en knattspyrnuferillinn.
Sjá bls. 16-17.
Heyrnartæki ekki
bara fyrir gamla
Það líða um sjö ár að
meðaltali frá því að
fólk verður vart við
heyrnarskerðingu þar
til það leitar sér aðstoðar.
„Það er líklega vegna þess misskiln-
ings að eðlilegt sé að bíða með að
fá sér heyrnartæki þar til maður er
orðinn gamall. Fólk á öllum aldri
notar gleraugu og það dettur eng-
um í hug að bíða með að fá sér þau
þar til viðkomandi eldist. Það sama
ætti að eiga við um heyrnartæki,
fólk á öllum aldri hefur not fyrir
þau,“ segir Ellisif Katrín Björnsdótt-
ir heyrnarfræðingur. Við fræðumst
nánar um það nýjasta í heyrnar-
tækjatækninni. Sjá bls. 17
Síðastliðinn fimmtudag kynnti Haf-
rannsóknastofnun skýrslu sína um
ástand fiskistofna og aflahorfur fyr-
ir næsta fiskveiðiár. Ráðherrar sjáv-
arútvegsmála hafa á liðnum árum
farið að mestu eftir veiðiráðgjöf-
inni og því má telja líklegt að kvóti
næsta árs verði í samræmi við þetta
nýja mat Hafró og kvóta núverandi
fiskveiðiárs. Lagt er til að aflamark
þorsks verði 244 þúsund tonn á
fiskveiðiárinu 2016/2017 eða fimm
þúsund tonnum meira en yfirstand-
andi fiskveiðiár. Hrygningarstofn
ýsu er talinn hafa minnkað á und-
anförnum árum en er engu að síð-
ur yfir varúðar- og aðgerðarmörk-
um aflareglu. Stofnunin leggur til
að aflamark verði 34,6 þúsund tonn
á fiskveiðiárinu 2016/2017 sem er
1,8 þúsusund tonnum minna en
aflamark yfirstandandi fiskveiðiárs.
Lagt er til að aflamark ufsa verði 55
þúsund tonn sem er það sama og
núverandi fiskveiðiárs. Lagðar eru
til veiðar á 52,8 þúsund tonnum af
gullkarfa sem er 1,8 þúsund tonn-
um meira en á yfirstandandi tíma-
bili. Loks er lagt til að leyfðar verði
veiðar á 63 þúsund tonnum af síld,
átta þúsund tonnum minna en á yf-
irstandi fiskveiðiári.
„Almennt má segja að flestir okk-
ar nytjastofnar séu í ágætu jafnvægi
og nýting þeirra hófleg, þannig að
breytingar í stofnstærð og ráðgjöf
markast af óvissu í vexti og stærð
uppvaxandi árganga,“ segir í skýrslu
Hafró. mm
Hafrannsóknastofnun metur stofna í
jafnvægi og leggur til svipaðan kvóta
Kristmundur Sumarliðason skipveri á dragnótarbátnum Sveinbirni Jakobssyni SH
í lest bátsins. Ljósm. úr safni: af.