Skessuhorn


Skessuhorn - 15.06.2016, Blaðsíða 19

Skessuhorn - 15.06.2016, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2016 19 Kjörskrá Borgarbyggðar vegna forsetakosninga sem fram fara laugardaginn 25. júní 2016 liggur frammi á skrifstofu Borgarbyggðar að Borgarbraut 14, á afgreiðslutíma, frá og með 15. júní til kjördags. Sveitarstjóri Auglýsing um kjörskrá SK ES SU H O R N 2 01 6 SK ES SU H O R N 2 01 6 Forsetakosningar fara fram 25. júní n.k. Kjörskrá hefur verið lögð fram í bæjarstjórn og samþykkt. Kjörskráin er opin almenningi til skoðunar í þjónustuveri Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, 1. hæð, á skrifstofutíma f.o.m. 15. júní fram til kjördags. Þeim sem vilja koma athugasemdum á framfæri vegna kjörskrár er bent á að snúa sér til sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs Akraneskaupstaðar. Athygli er vakin á því að hægt er að gera leiðréttingar á kjörskrá allt til kjördags ef við á. Kjörskrá vegna forsetakosninga 25. júní 2016 Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is Haukur Páll Kristinsson er 17 ára og er búsettur í Stykkishólmi. Hann stundar nám á raunvísinda- sviði í Fjölbrautaskóla Snæfellinga og æfir af fullum krafti á tromp- et í Tónlistarskóla Stykkishólms. Auk þess sótti hann námskeið í ljósmyndun í Menntaskólanum á Tröllaskaga í vetur. „Ég var í list- ljósmyndun fyrir áramót en eft- ir áramót var ég í áfanga í heim- ilda- og fréttaljósmyndun. Loka- verkefnið mitt snerist um sorp- hirðu og plastpokanotkun í Stykk- ishólmi,“ segir Haukur en honum tókst vel til í lokaverkefninu. „Ég ákvað að prófa að senda Íslenska gámafélaginu póst um verkefnið og í kjölfarið keyptu þeir lokaverkefnið af mér. Ég er ekki alveg klár á því hvað þeir ætla gera við það en það verður líklega hengt upp einhvers staðar. Ég er mjög ánægður með verkefnið.“ Haukur Páll hefur einnig starfað und- anfarið ár við út- sendingar Snæfells í körfubolta og Vík- ings Ó í fótbolta hjá 365 miðlum. „Kvik- myndagerð heillar mig aðeins meira en ljósmyndun en bæði eru þetta mín helstu áhugamál. Ég fæ stundum tilboð um að vinna efni fyrir aðra og er t.d. núna að klára auglýsingu fyrir Fornbílaklúbb- inn,“ segir Haukur. Þrátt fyrir að vera mjög efnileg- ur ljósmyndari og kvikmyndatöku- maður er Haukur ekki viss um að hann ætli að starfa við það í fram- tíðinni. „Þó svo að þetta séu mín helstu áhugamál þá er ég ekki viss um að ég muni starfa við mynda- töku. Eins og er þá stefni ég að því að fara í lækninn en maður veit aldrei hvað gerist,“ segir Haukur að lokum. bþb Íslenska gámafélagið keypti lokaverkefnið Haukur Páll Kristinsson er efnilegur ljósmyndari og kvikmyndagerðamaður Lokaverkefni Hauks. Fyrirtæki sem og einstaklingar í bænum eru hvött til að vera með viðburði í kringum hátíðina og láta okkur vita á netfangið irskirdagar@akranes.is Þeir sem vilja leigja borð á laugardagsmarkaði á Vesturgötu geta pantað borð á netfanginu maria.neves@akranes.is irskirdagar@akranes.is Fylgist með okkur á Facebook www.facebook.com/IrskirdagaraAkranesi og við teljum niður 15 dagar í Írska daga Þetta er að bresta á ... Er fólk að detta í gírinn? SK ES SU H O R N 2 01 6

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.