Skessuhorn


Skessuhorn - 15.06.2016, Blaðsíða 25

Skessuhorn - 15.06.2016, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2016 25 Snæfellsbær Kjörskrá vegna forsetakosninga þann 25. júní 2016 verður lögð fram samþykkt af bæjarstjórn þann 15. júní n.k. Kjörskráin verður frá þeim degi til sýnis í Ráðhúsi Snæfellsbæjar að Snæfellsási 2, Hellissandi, á opnunartíma skrifstofunnar. Við viljum vekja athygli kjósenda á því að þeir geta nú kannað á vefnum www.kosning.is hvar þeir eru á kjörskrá. Þeim sem vilja koma að athugasemdum við kjörskrá er bent á að senda þær með tölvupósti á kristinn@snb.is eða lilja@snb.is, eða koma þeim bréflega í Ráðhús Snæfellsbæjar. Bæjarstjórinn í Snæfellsbæ Kjörskrá vegna forsetakosninga SK ES SU H O R N 2 01 6 SUMARSTARF Óskum eftir að ráða starfsmann í þrif við veiðihúsið í Laxá í Leirársveit (við Lambhaga) í sumar. Um er að ræða 4 tíma, yfirleitt annan hvern dag. Nánari upplýsingar í haukur@fastis.is / ooj@ojk.is eða 822-4850 / 824-1440. SK ES SU H O R N 2 01 6 Sólin hefur leikið við lands- menn undanfarna daga og þá er fátt betra en að draga fram grill- ið. Með grillmatnum þarf að hafa gott meðlæti og þá eru bakað- ar kartöflur góður kostur. Margir vilja borða kartöfluna með smjöri en stundum er gott að prófa eitt- hvað nýtt og þá er sniðugt að poppa upp kartöflurnar. Innihald: Tvær bökunarkartöflur Einn piparostur Einn Dala-Auður Tvær eggjarauður Aðferð: Fyrst er mikilvægt að baka kart- öflurnar vel og það er hægt að gera á grillinu eða bara í ofni. Á meðan kartöflurnar bakast er um að gera að skera niður ost- inn. Piparosturinn er rifinn gróf- lega niður. Gott er að skera mygl- una af Dala Auði og skera ostinn í bita. Osturinn er svo settur í skál með tveimur eggjarauðum. Þeg- ar kartöflurnar eru tilbúnar eru skorinn lítill hringur í kartöflu- hýðið og því flett af. Næst þarf að skafa kartöfluna innan úr hýðinu og blanda henni saman við ostinn. Kartöflunni og ostinum er hrært saman og osturinn látinn bráðna saman við heita kartöfluna. Þetta er svo allt sett aftur ofan í kart- öfluhýðið og látið inn í ofn í 10 mínútur. arg Gróa Guðmundsdóttir frá Álftártungu á Mýrum fagnaði 99 ára afmæli sínu þann 4. júní síðastlið- inn. Í tilefni dagsins bauð hún fjölskyldu og vin- um að gleðjast með sér í samkomusal í Brákarhlíð. Boðið var upp á kaffi og kökur og á annað hundrað manns á öllum aldri kom og heiðraði Gróu með nærveru sinni, sá yngsti tæplega mánaðar gam- alt langömmubarn henn- ar en afkomendurnir eru orðnir um hundrað tals- ins. Gróa fæddist í Álft- ártungu og voru hún og Elín, tvíburasystir Gróu, elstar í fimm systkina hópi. Gróa kvæntist Páli Þorsteinssyni sem bjó á næsta bæ, í Álftártungu- koti, og eignuðust þau saman sjö börn. Blaða- maður Skessuhorns kíkti í heimsókn til Gróu og spjallaði við hana um liðna tíð. Alltaf verið heilsuhraust Aðspurð hverju hún þakki háan aldur segist Gróa ekki þakka neinu sérstöku fyrir þessi 99 ár. „Ég hef held ég ekki gert neitt öðruvísi en aðrir. Ég hef alltaf verið við góða heilsu en það var umtalað áður fyrr. Elín, tvíburasystir mín, var alltaf heilsuveil og öðru hverju var hún inn og út af sjúkrahúsi þegar hún var yngri en ég veiktist ekki oft. Ég fékk einu sinni inflúensu og svo var ég lasin einn vetur með brjósthimnubólgu, fyrir utan það hef ég verið mjög heilsuhraust,“ segir Gróa. Aðspurð hvort hún tengi góða heilsu við mataræði og hreyfingu segir hún svo ekki vera. „Nei, ég hef alltaf verið löt,“ segir hún mjög hógvær og hlær. Ekki mikill tími fyrir annað en vinnu Gróa bjó alla tíð í Álftártungu og gekk þar í barnaskóla en í þá daga var svokallaður farskóli þar sem kennarar fóru á milli bæja og kenndu börnum. Eftir barnaskóla- nám vann Gróa um tíma á Leirulæk og í Borgarnesi en svo tók hún við búinu af foreldrum sínum. „Þegar ég var tvítug tókum við Páll fyrst við hálfu búi af foreldrum mínum. Systkini mín fluttu svo öll í burtu og foreldrar mínir fluttu með Elínu og manninum hennar að Gufuá. Þá tókum við yfir búið. Svanur son- ur okkar tók svo við búinu af okk- ur og býr þar enn og ég kíki stund- um í heimsókn,“ segir Gróa. Aðspurð hvað hún hafi gert sér til skemmt- unar áður fyrr segir hún lítinn tíma hafa verið fyr- ir svoleiðis. „Maður var alltaf að vinna og ég vann öll þau verk sem féllu til á búinu. Það var því ekki mikill tími fyrir annað, en þegar þannig tími gafst fór ég gjarnan á hest- bak mér til ánægju,“ segir Gróa og bætir því við að í seinni tíð hafi hún einnig prjónað gríðarlega mik- ið og haft gaman að söng, en Gróa var einn af stofn- endum Samkórs Mýra- manna. Margt breyst á 99 árum Fyrir þremur árum flutti Gróa á Hjúkrunar- og dvalarheimilið Brákarhlíð í Borgarnesi og segist hún hafa það mjög gott þar. Hún segist þó ekki hafa heilsu til að gera margt í dag en er því þakklát að afkomendurn- ir eru duglegir að heimsækja hana. „Ég geri fátt annað en að borða og sofa í dag en það er fínt að vera hér og ég get ekki kvartað,“ segir hún. Aðspurð hvað hafi helst breyst á þessum 99 árum segir hún það vera svo margt. „Það hefur flest tek- ið breytingum en ég get ekki sagt til um hvort þær breytingar séu af hinu góða eða slæma, ætli það sé ekki beggja blands,“ segir hún og hlær. Áður en við kveðjum Gróu býður hún blaðamanni konfekt- mola. Sjálf fær hún sér einn gesti til samlætis. „Ég fékk svo mikið kon- fekt í afmælisgjöf, en mér þykir gott að fá mér smá súkkulaði stundum,“ segir hún og brosir. arg Gróa Guðmundsdóttir fagnaði 99 ára afmæli sínu Gróa Guðmundsdóttir fagnaði 99 ára afmæli sínu 4. júní síðastliðinn. PISTILL Ég hætti mér inn í Hyrnuna um dag- inn um kvöldmatarleytið, já ég veit það er tvennt sem má ekki nefna né gera í þessari setningu. Fyrsta lagi er Hyrnan víst ekkert Hyrnan leng- ur, hvað svo sem veldur því, held- ur N1 Borgarnesi eins hallærislega og það hljómar. Gæti verið að um- sjónarmaður nafnsins, hver sem það svo er, hafi einhverja áætlanir varð- andi þessa frægu nafngift sem er svo samgróin þessari byggingu að barn fætt á þessu ári kalli staðinn Hyrn- una í staðinn fyrir N1 Borgarnes. Kannski er nafnið orðið skráð vöru- merki og vissara að setja þá ®-merk- ið það sem eftir er af pistli. Í öðru lagi kom ég áður en einn sveittur rútubílstjórinn ákvað að hringja í alla hina rútubílstjóravini sína til að bjóða þeim í partý í N1 Borgarnes (Hyrnan®). Þegar ég lagði gráðuga pöntunina inn fyrir matráðinn að töfra fram fylltist húsið af túristum og fótboltakrökkum. Þá fór ég að hugsa um það sem kallað er túrista- vandinn. Eins og ég sé þetta þá höfum við fjölbreytta flóru af ferðamönnum og alltaf er talað um að það þurfi að ná meiri pening af þeim. Við höf- um tvenns konar ríkt fólk sem kem- ur hingað til landsins, ríka f***ta sem til dæmis hafa auðgast á falli komm- únismans og leigja þyrlur til að fara á staði sem annað hvort er bann- að að fara á eða einungis fjallgöngu- fólk nennir að koma sér þangað. Og svo höfum við ríkt fólk sem ætlar að fara eins létt í gegnum ferðalagið og hægt er, meina hver vill það ekki? Ég hugsa nú bara um sjálfan mig þeg- ar ég gerist túristi, ég vill njóta frís- ins sem mest án þess að fara á haus- inn við það. Við tökum síður eftir ríka f***tan- um því hann yfirleitt lendir í skjóli nætur á Reykjavíkurflugvelli, það er að segja ef Valsmenn og Reykja- víkurborg leyfa það yfirhöfuð þessa dagana. Lætur hann stjana við sig í háorkulúxus einhversstaðar úti í rass- gati, jafnvel í einhverjum yfirgefnum vita þar sem búið er að dekka borðið með framandi mat og sjaldgæfu víni. Svo höfum við Instagram hipster- inn í Primaloft úlpunni sem er mjög áberandi og finnst allt „amazing“ og „great, I love this“. Jafnvel deilir hann myndunum sínum, lýgur jafn- vel að þær séu #nofilter, á fésinu sínu og fyllir vini sína enn meira af sjálfs- hatri yfir því að ferðast ekki nóg og kunna ekki nógu vel á myndavélina. En við höfum “fátæka” ferðamenn líka, minimalíska nánar tiltekið. Minimalíski túristinn á hinum endanum er fyrirferðarmestur. Hon- um finnst kannski allt í lagi að stöðva farartæki sitt á miðjum þjóðvegi til að taka mynd af nýköstuðu folaldi eða æðarkollu. Honum finnst snið- ugt að leigja Citröen Berlingo cam- per bíl, Diet Coke útgáfan af hús- bíl, sem með ekkert klósett Nota Bene. Þessir frönskættuðu skíta- dreifarar, sem eru gerðir út af þess- um sniðugu ferðaþjónustufyrirtækj- um, bera komu sumarsins með sér í formi ilmandi hrauka hér og þar, svona eins og þegar bóndi ber á tún- in sín. Ferðaþjónustubændur á Stór- Reykjavíkjursvæðinu hafa staðið sig vel í innleiðingu þessarar nýju teg- undar skítadreifara og jafnvel komið með nýjungar sem ferðaiðnaðurinn þarfnast svo sárlega. Til dæmis hafa þeir skorað á túrista að lifa af landinu í sólarhring sem felur meðal annars í sér að lax og silungur sem hingað til hefur verið talinn hluti af lögvörð- um hlunnindum sveitajarða, er allt í einu frír. Svo virðist einnig sem að útskot fyrir vörubíla séu orðin tjald- stæði, reyndar eru þau án rafmagns og klósetts en vonandi verða skólp- mál þessara tjaldstæða leyst fljótlega í framtíðinni. Góðar stundir, Axel Freyr Eiríksson Ríki fávitinn og mínimalíski franskættaði skítadreifarinn Ostafylltar kartöflur Freisting vikunnar

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.