Skessuhorn


Skessuhorn - 15.06.2016, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 15.06.2016, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2016 13 SK ES SU H O R N 2 01 6 Gyða L. Jónsdóttir Wells, bæjarlistarmaður Akraness 2015 efnir til útsölu á verkum sínum (sculptures, vatnslitamyndir, akrílmyndir). Í samsteypunni, Mánabraut 20, Akranesi 17. júní. Frá kl 12 -16. Allir listamenn Samsteypunnar verða með vinnustofur sínar opnar og verður boðið uppá kaffi og vöfflur. Útsalan hjá Gyðu verður fram yfir mánaðarmótin júlí - ágúst og verður hægt að hafa samband við hana í síma 659-3930 eða í tölvupósti gydajons@hotmail.com Við Samsteypunni hlökkum til að sjá ykkur sem flest 17. júní. !ÚTSALA! Sindri Arnfjörð garðyrkjumaður - Laufskálum 311 Borgarbyggð Netfang: sindri@vesturland.is - Vinnusími: 892-7663 SK ES SU H O R N 2 01 6 Garðaþjónustan Sigur-garðar s.f Borgarfirði óskar eftir starfskrafti. Við erum að leita að aðila sem getur unnið sjálfstætt og tekið að sér verkstjórn. Vinnan felst í allri allmennri skrúðgarðavinnu. Laun eftir samkomulagi. Mikil vinna framundan. Framtíðarstarf í boði fyrir réttan aðila. Lámarks aldur er 20 ár. Nánari upplýsingar í síma 892-7663 eða á sindri@vesturland.is. Starfskraftur (karl eða kona) óskast til garðyrkjustarfa ÞJÓNUSTA ÞJÓNUSTA BLIKKSMIÐJA Loftræstingar – Reykrör Klæðningar – Nýsmíði Viðhald – Efnissala JÁRNSMIÐJA Gjafagrindur – Nýsmíði Viðhald – Þjónusta Hesthúsinnréttingar RAFMAGNS- VERKSTÆÐI Nýlagnir – Viðhald Viðgerðaþjónusta Borgarbraut 74 • 310 Borgarnesi • 412-5300 • limtrevirnet.is Á Sjómannadaginn sunnudaginn 5. júní síðastliðinn hlutu áhafnir þriggja skipa á Snæfellsnesi viður- kenningar frá Landsbjörgu fyrir að hafa sýnt öðrum fremur góða ör- yggisvitund á námskeiðum Slysa- varnaskóla sjómanna. Þetta voru áhafnir Steinunnar SH 167, Egils SH 195 og Sveinbjörns Jakobsson- ar SH 10. Á Steinunni SH 167 er Brynj- ar Kristmundsson skipstjóri og tók Þór Kristmundsson á móti viður- kenningunni fyrir hönd áhafnar- innar. Svanfríður Anna Lárusdóttir tók við viðurkenningu Egils SH 195 en þar er Jens Brynjólfsson skip- stjóri. Skipstjóri Sveinbjörns Jakobs- sonar SH 10 er Sigtryggur S. Þrá- insson og tók Ingvar Sigurðsson á móti viðurkenningunni fyrir þeirra hönd. Þorvaldur F. Hallsson varafor- maður Slysavarnafélagsins Lands- bjargar afhenti áhöfnum viður- kenningarnar sem eru farandbikar til varðveislu í eitt ár ásamt vegg- skildi til eignar. „Áhöfnunum er óskað innilega til hamingju með frammistöðu sína í öryggismálun- um,“ segir í tilkynningu frá Lands- björgu. mm Hilmar Snorrason skólastjóri, Svanfríður Anna Lárusdóttir, Þór Kristmundsson, Ingvar Sigurðsson og Þorvaldur F. Hallson varaformaður Landsbjargar. Fengu viðurkenningu fyrir framúrskarandi öryggisvitund Hildur Karen Aðalsteinsdóttir tók á dögunum við stöðu íþróttafull- trúa Íþróttabandalags Akraness. „Hildur Karen hefur gríðarlega mikla þekkingu og reynslu inn- an íþróttahreyfingarinnar en hún hefur starfað fyrir félagið bæði sem kennari, þjálfari og foreldri. Hún hefur komið víða við inn- an íþróttabandalagsins m.a. setið í stjórn og varastjórn ÍA til nokk- urra ára. Hildur Karen hefur þjálf- að sund fyrir alla aldurshópa hjá sundfélagi ÍA í 17 ár. Hún hefur séð um og stjórnað sundskóla fyr- ir börn á aldrinum 3 mánaða til 6 ára, verið með sundnámskeið fyr- ir fullorðna og hefur haft umsjón með samfloti fyrir almenning. Hildur Karen er drífandi, jákvæð og góð fyrirmynd. Hún mun án efa efla íþróttastarfið á Akranesi og vonum við í framkvæmdastjórn ÍA að samstarfið verði farsælt.“ segir á vef ÍA um ráðninguna. Hildur Karen tekur við stöðunni af Jóni Þór Þórðarsyni sem hafði gegnt starfinu síðastliðinn áratug. ÍA vill þakka honum kærlega fyrir ómetanlegt starf í þágu félagsins. bþb Nýr íþróttafulltrúi ráðinn til ÍA Hildur Karen (til hægri) er nýr íþróttafulltrúi ÍA. Hún er hér ásamt Helgu Sjöfn Jó- hannesdóttur formanni ÍA. Ljósm. ia.is Undanfarið hefur verið safnað fyrir íslensku stuttmyndinni „Pourquoi Pas Borgarnes“ á hópfjármögnun- arvefnum Karolinafund. Söfnun- in bar góðan árangur og hefur nú allri upphæðinni, rúmlega 447 þús- und krónum, verið safnað. Það er myndlistarkonan Michelle Bird sem er framleiðandi myndarinnar ásamt Kuba Urbaniak en leikstjóri er Al- berto Garcia. Stuttmyndin er í við- talsformi og í henni eru átján íbúar í Borgarnesi spurðir að því hvernig list hefur haft áhrif á líf þeirra eða hvernig hún hefur breytt lífi þeirra. Sýna viðtölin hvernig viðmælendur meta listir og menningu og er leitast við að svara þeirri spurningu hvers vegna list er nauðsynleg í lífinu og hvernig þeir sjá fyrir sér fyrirmynd- ar menningarsamfélag. Myndin var öll tekin upp í Borgarnesi og ná- grenni í samvinnu við Borgnesinga. Afrakstri stuttmyndarinnar er ætlað að gefa vísbendingu um hvað það er sem íbúar vilja fá út úr listastarfi og gæti því verið upphafið að því að móta verkefni framtíðarinnar. Nú er unnið að klippingu myndarinn- ar, hönnun á DVD umslagi og leit- að að hugsanlegum sýningarstöð- um. Til stendur að vinnslu stutt- myndarinnar verði lokið í júlí 2016 og hún gefin út með haustinu. grþ Söfnun lokið fyrir gerð stuttmyndar í Borgarnesi Atriði úr myndinni þar sem rætt er við Elínu Magnúsdóttur. CLARVISTA STURTUGLER FYRIR VANDLÁTA COOL - LITE SÓLVARNARGLER ispan@ispan.is • ispan.is M ynd: Josefine Unterhauser

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.