Skessuhorn


Skessuhorn - 15.06.2016, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 15.06.2016, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2016 23 RARIK ohf • Dvergshöfða 2 • 110 Reykjavík • Sími 528 9000 • www.rarik.is Verkstjóri í Ólafsvík (rafvirki/vélfræðingur) Starfssvið Stjórnun Eftirlit með tækjum og búnaði Viðgerðir Nýframkvæmdir Vinna samkvæmt öryggisreglum Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um, nánari upplýsingar veitir Sturla Rafn Guðmundsson, deildarstjóri framkvæmdasviðs á Vesturlandi eða starfsmannastjóri RARIK í síma 528 9000. Umsóknarfrestur er til 1. júlí n.k. og skal skila umsóknum með ferilskrá á netfangið atvinnuumsokn@rarik.is. RARIK ohf. er rekið sem opinbert hlutafélag í eigu ríkisins. Hlutverk RARIK er að dreifa raforku auk þess að afla, dreifa og annast sölu á heitu vatni. Starfsmenn RARIK eru um 200, aðalskrifstofa er í Reykjavík og um 20 starfsstöðvar eru dreifðar vítt og breitt um landið. RARIK ohf. auglýsir eftir verkstjóra í Ólafsvík. Hér er um ölbreytt starf að ræða sem felur í sér stjórn vinnuflokks í Ólafsvík og þátttöku í verkefnum við dreifikerfi RARIK á Vesturlandi. Hæfniskröfur Sveinspróf í rafvirkjun Öryggisvitund Reynsla af stjórnun Drifkraftur og geta til að vinna sjálfstætt Almenn tölvukunnátta Bílpróf Geitabúið á Háafelli í Hvítársíðu hefur verið vinsæll viðkomustað- ur ferðamanna undanfarin ár en þar gefst fólki kostur á að koma og kynnast íslensku geitinni. Þeg- ar blaðamann bar að garði nýverið var hópur ferðafólks að leika sér við litla kiðlinga úti á túni og Jóhanna Bergmann Þorvaldsdóttir bóndi var í þann mund að kveðja ann- an hóp ferðafólks sem hafði ver- ið að skoða þær vörur sem hægt er að kaupa í litlu búðinni á bænum. Þrátt fyrir miklar annir og stöðug- an straum ferðamanna gaf Jóhanna sér tíma til að setjast niður með blaðamanni og ræða um geiturnar og ferðaþjónustuna. En að sögn Jó- hönnu fer gestum hratt fjölgandi. „Renniríið hefur aukist mikið í ár en venjulega er opið frá júní fram í ágúst, en frá því í maí hefur ver- ið stanslaus straumur af fólki. Við viljum helst ekki vísa fólki frá og gerum það ekki ef við komumst hjá því,“ segir Jóhanna. Græðandi geitaafurðir Aðspurð hvað sé í boði fyrir gesti á Háafelli segir Jóhanna það fyrst og fremst vara tækifæri til að kynnast íslensku geitinni í návígi. „Við vilj- um fræða fólk um geitina, hennar sérstöðu og allar þær afurðir sem hún gefur af sér. Geitakjöt er ein- staklega hollt, fitulítið og prótein- ríkt. Geitamjólkin er einnig mjög holl og hefur hjálpað mörgum og tólgin er mjög græðandi,“ segir Jóhanna en hjá henni er hægt að kaupa ýmsar vörur sem framleidd- ar eru úr geitaafurðum. Má þar nefna ostar, pylsur, ís og krem sem Jóhanna hefur búið til úr tólginni. „Það kom hér ein kona og keypti krem hjá mér sem hún notaði á syk- ursýkissár. Hún sagðist hafa próf- að ansi margt en sárin vildu ekki gróa. Núna nýlega hafði hún svo samband og pantaði þrjár krukkur til viðbótar. Hún sagði þetta krem hafa virkað svo vel og sárin hafi horfið.“ Geit í fóstur Árið 2009 var farið af stað með til- raun þar sem fólki var boðið að taka geitur í fóstur. Þá getur fólk heimsótt geitabúið og valið sér geit. Árlega borgar svo fósturað- ilinn hluta af fóðurkostnaði fyrir geitina og fær í staðinn myndir og fréttir af henni og að auki tvær frí- ar heimsóknir með fjölskylduna á Háafell. Hugmyndin kom frá SOS barnaþorpunum. „Þetta hefur tek- ist mjög vel og eru fjölmargir sem fóstra geitur hjá okkur. Þetta er frábær kostur fyrir þá sem langar að komast í kynni við sveitina og húsdýrin en hafa alla jafnan ekki kost á því,“ segir Jóhanna og bæt- ir því við að það séu margir sem komi árlega í heimsókn og eigi góðan fjölskyldudag með geitun- um. „Það eru margir sem eru farir að gera bara dag úr þessu á hverju sumri. Koma hingað til okkar með fjölskylduna og verja deginum saman úti á túni og fara í leiki með börnunum.“ arg Straumur ferðamanna hefur aukist að Háafelli Jóhanna B Þorvaldsdóttir geitabóndi á Háafelli.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.