Skessuhorn


Skessuhorn - 15.06.2016, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 15.06.2016, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 201610 Líf Ragnars Egilssonar breyttist svo um munaði 28. júní 2014. Síð- degis á laugardegi lenti hann í al- varlegu mótorhjólaslysi rétt fyrir utan Akranes með þeim afleiðing- um að hann hálsbrotnaði. Ragn- ar er 33 ára Skagamaður sem í dag er bundinn hjólastól, lamaður fyr- ir neðan háls. „Ég er nýlega búinn að taka fram úr olíuflutningabíl og er að fjarlægjast hann. Ég hægi þá á mér, fer aðeins út af og inn á aft- ur. Þá lendi ég á einhverri mishæð eða holu og tekst bara á flug,“ segir Ragnar þegar hann lýsir tildrögum slyssins. Hann er þakklátur fyrir að hafa verið í góðum hlífðarfatnaði á hjólinu. „Maður veit ekkert hvern- ig hefði farið ef ég hefði ekki verið í gallanum. Hann var það vel styrktur að hann stóð sjálfur. Hvernig hefði maður endað ef ég hefði ekki verið í gallanum? Ég er líka feginn að hafa verið með hjálminn en maður hefur alveg velt því fyrir sér hvort ég hafi fengið slink á hálsinn út af því að hjálmurinn var svo þungur. Mað- ur veit ekki. Maður veltir þessu al- veg fyrir sér.“ Ragnar hafði átt hjól- ið í rúmt ár og var ábyrgur öku- maður, stundaði ekki hraðakstur. Hann segir það algengt að fólk setji samasemmerki milli hraðaksturs og mótorhjóla. „Fólki finnst bara hjólin fara svo hratt vegna þess hve lítil þau eru og hversu hátt heyr- ist í þeim. Þetta hjól var til dæmis þannig að það fór bara að titra ef ég fór of hratt. Ég hjólaði því frek- ar hægt á því. Ég fór stundum inn í Hvalfjörð að hjóla og þá var mað- ur bara að skoða í kringum sig og njóta umhverfisins. Oftar en ekki var bara tekið fram úr mér, ég var nú ekki á meiri ferð en það,“ út- skýrir Ragnar. Fékk sjö hjartaáföll Ragnar man lítið eftir sér eft- ir slysið, enda slasaðist hann mjög illa og var haldið sofandi í lang- an tíma. „Ég man eftir því að hafa tekið fram úr þessum bíl en man lítið annað. Ég rankaði ekki við mér fyrr en átta mánuðum eftir slysið.“ Ragnar var á gjörgæslu í rúmar fjórar vikur eftir slysið þar sem hvert bakslagið kom á fæt- ur öðru. Hann fékk lungnabólgu, sjö hjartaáföll og tvo stóra blóð- tappa, í heilann og lungun. „Mið- að við hvernig þetta leit út ætti ég að vera í öndunarvél. Þeir segjast aldrei hafa útskrifað neinn svona snemma úr þessu ástandi. Ég fékk þindarörvun, sem er smá straum- ur í þindina til að láta hana anda. En ég náði að blása mig úr henni og það eru bara þrír einstakling- ar í heiminum sem hafa gert það,“ segir Ragnar. Í dag andar Ragn- ar án aðstoðar. Hann var fluttur á sjúkrahúsið á Akranesi fyrir rúmu ári og býr nú í íbúð á Akranesi. Hann þarf sólarhrings umönnun og er því með starfsfólk á vöktum. Hann segir lífið oft á tíðum erf- itt en þó komi góðir dagar inn á milli. „Það er mikill munur að vera kominn í íbúð. Ég get verið í tölv- unni, horft á sjónvarpið og farið út í göngu- rúllutúr,“ segir hann og brosir. Ragnar er með búnað til að geta verið í tölvunni, hann er með höfuðbúnað sem stjórnar músinni. Hann hreyfir músina með því að hreyfa höfuðið og smellir með því að blása. Selur alls kyns buff Ragnar er nú að safna sér fyrir ferða- lyftara, sem er búnaður sem getur fært hann í og úr stólnum. „Ég er hálf kyrrsettur hérna heima. Ég get fengið leigðan bíl sem hægt er að notast við en það myndi muna miklu að hafa ferðalyftara líka. Ég er með annan búnað í svefnher- berginu heima en með ferðalyft- ara gæti ég fengið mér Lazy boy stól sem passar fyrir mig, sófa eða hvað sem er. Ég get nefnilega not- að þetta hérna heima líka. Og ef ég ætla að fara á hótel einhvers stað- ar úti á landi þarf ég að eiga svona lyftara,“ segir hann. Til að safna fyrir lyftaranum tók Ragnar upp á því að selja buff á Facebook. „Við vorum eitthvað að spá í að það væri sniðugt að prófa að safna fyrir þessu og ákváðum að prófa buffin. Ég tók fyrst lítið af þessu og þetta gekk ágætlega, þannig að á endanum tók ég stóra pöntun,“ segir Ragnar. Buffin sem hann selur nú á sölusíðunum Ska- gaskvísur sölusíða og Brask og brall á Facebook eru meðal ann- ars með myndum af Hvolpasveit- inni, Hello Kitty, hauskúpum og á einni tegundinni stendur Raggi nagli. „Það bætast við fleiri teg- undir fljótlega, ég verð til dæmis með Spiderman og buff fyrir Írsku dagana á Akranesi. Það þarf frek- ar stóra pöntun fyrir hverja teg- und, það er ekkert hægt að panta eitt eða tíu buff heldur þarf ég að panta mörg hundruð. En ég er bara að prófa að safna fyrir lyft- aranum. Ef buffin seljast illa, þá skiptir það ekki máli. Það er eins og með Hvolpasveitarbuffin, það er nóg að vita að þau gleðja lítil hjörtu,“ segir Ragnar. Að endingu vill Ragnar koma á framfæri þökkum til allra sem hafa komið að því að aðstoða hann eftir slysið. „Bæði þeim sem hjálpuðu til á slysstað, öllu því starfsfólki sem hefur veitt mér aðstoð, fjölskyld- unni og öllum sem hafa hjálpað mér. Og auðvitað þeim sem kaupa buffin og styrkja mig.“ Þess má geta að þeir sem vilja styrkja Ragnar geta fundið aug- lýsinguna fyrir buffin á Facebook inni á sölusíðunum „Skagaskvís- ur“ og „Brask og brall“. Eins held- ur Ragnar úti styrktarsíðu á Face- book. Buffin kosta 1.500 krónur stykkið en séu keypt fleiri en fjög- ur fæst afsláttur. Þá eru mæðg- urnar Andrea Þ Björnsdóttir og Sandra Björk einnig að selja lakkr- ís- og hlauppoka til styrktar Ragn- ari á 1.000 krónur stykkið. Númerið á styrktarreikningi Ragnars er: 0186-26-012569. Kt: 110483-5119. grþ Ragnar safnar fyrir ferðalyftara með buffsölu Ragnar með systrabörnum sínum þeim Vigni Gauta og Dagnýju árið 2011. Ragnar Egilsson lamaðist fyrir neðan háls í alvarlegu bifhjólaslysi fyrir tæpum tveimur árum. Húsið Melur við Höfðagötu í Stykkishólmi var rifið á mánudag- inn. Þorbergur Bæringsson ætlar að byggja þar nýtt hús. Á sama tíma voru snör handtök viðhöfð við að raða upp einingum í stækkun bak- arísins, en sama verktakafyrirtækið; BB og synir, kemur einmitt að báð- um þessum verkefnum. sá Meðan eitt hús féll reis annað Einingar reistar við stækkun bakarísins í Stykkishólmi. Stuttan tíma tók að rífa húsið Mel.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.