Skessuhorn - 15.06.2016, Síða 10
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 201610
Líf Ragnars Egilssonar breyttist
svo um munaði 28. júní 2014. Síð-
degis á laugardegi lenti hann í al-
varlegu mótorhjólaslysi rétt fyrir
utan Akranes með þeim afleiðing-
um að hann hálsbrotnaði. Ragn-
ar er 33 ára Skagamaður sem í dag
er bundinn hjólastól, lamaður fyr-
ir neðan háls. „Ég er nýlega búinn
að taka fram úr olíuflutningabíl og
er að fjarlægjast hann. Ég hægi þá
á mér, fer aðeins út af og inn á aft-
ur. Þá lendi ég á einhverri mishæð
eða holu og tekst bara á flug,“ segir
Ragnar þegar hann lýsir tildrögum
slyssins. Hann er þakklátur fyrir að
hafa verið í góðum hlífðarfatnaði á
hjólinu. „Maður veit ekkert hvern-
ig hefði farið ef ég hefði ekki verið í
gallanum. Hann var það vel styrktur
að hann stóð sjálfur. Hvernig hefði
maður endað ef ég hefði ekki verið í
gallanum? Ég er líka feginn að hafa
verið með hjálminn en maður hefur
alveg velt því fyrir sér hvort ég hafi
fengið slink á hálsinn út af því að
hjálmurinn var svo þungur. Mað-
ur veit ekki. Maður veltir þessu al-
veg fyrir sér.“ Ragnar hafði átt hjól-
ið í rúmt ár og var ábyrgur öku-
maður, stundaði ekki hraðakstur.
Hann segir það algengt að fólk setji
samasemmerki milli hraðaksturs
og mótorhjóla. „Fólki finnst bara
hjólin fara svo hratt vegna þess hve
lítil þau eru og hversu hátt heyr-
ist í þeim. Þetta hjól var til dæmis
þannig að það fór bara að titra ef
ég fór of hratt. Ég hjólaði því frek-
ar hægt á því. Ég fór stundum inn
í Hvalfjörð að hjóla og þá var mað-
ur bara að skoða í kringum sig og
njóta umhverfisins. Oftar en ekki
var bara tekið fram úr mér, ég var
nú ekki á meiri ferð en það,“ út-
skýrir Ragnar.
Fékk sjö hjartaáföll
Ragnar man lítið eftir sér eft-
ir slysið, enda slasaðist hann mjög
illa og var haldið sofandi í lang-
an tíma. „Ég man eftir því að hafa
tekið fram úr þessum bíl en man
lítið annað. Ég rankaði ekki við
mér fyrr en átta mánuðum eftir
slysið.“ Ragnar var á gjörgæslu í
rúmar fjórar vikur eftir slysið þar
sem hvert bakslagið kom á fæt-
ur öðru. Hann fékk lungnabólgu,
sjö hjartaáföll og tvo stóra blóð-
tappa, í heilann og lungun. „Mið-
að við hvernig þetta leit út ætti ég
að vera í öndunarvél. Þeir segjast
aldrei hafa útskrifað neinn svona
snemma úr þessu ástandi. Ég fékk
þindarörvun, sem er smá straum-
ur í þindina til að láta hana anda.
En ég náði að blása mig úr henni
og það eru bara þrír einstakling-
ar í heiminum sem hafa gert það,“
segir Ragnar. Í dag andar Ragn-
ar án aðstoðar. Hann var fluttur á
sjúkrahúsið á Akranesi fyrir rúmu
ári og býr nú í íbúð á Akranesi.
Hann þarf sólarhrings umönnun
og er því með starfsfólk á vöktum.
Hann segir lífið oft á tíðum erf-
itt en þó komi góðir dagar inn á
milli. „Það er mikill munur að vera
kominn í íbúð. Ég get verið í tölv-
unni, horft á sjónvarpið og farið út
í göngu- rúllutúr,“ segir hann og
brosir. Ragnar er með búnað til að
geta verið í tölvunni, hann er með
höfuðbúnað sem stjórnar músinni.
Hann hreyfir músina með því að
hreyfa höfuðið og smellir með því
að blása.
Selur alls kyns buff
Ragnar er nú að safna sér fyrir ferða-
lyftara, sem er búnaður sem getur
fært hann í og úr stólnum. „Ég er
hálf kyrrsettur hérna heima. Ég
get fengið leigðan bíl sem hægt er
að notast við en það myndi muna
miklu að hafa ferðalyftara líka. Ég
er með annan búnað í svefnher-
berginu heima en með ferðalyft-
ara gæti ég fengið mér Lazy boy
stól sem passar fyrir mig, sófa eða
hvað sem er. Ég get nefnilega not-
að þetta hérna heima líka. Og ef ég
ætla að fara á hótel einhvers stað-
ar úti á landi þarf ég að eiga svona
lyftara,“ segir hann.
Til að safna fyrir lyftaranum tók
Ragnar upp á því að selja buff á
Facebook. „Við vorum eitthvað að
spá í að það væri sniðugt að prófa
að safna fyrir þessu og ákváðum
að prófa buffin. Ég tók fyrst lítið
af þessu og þetta gekk ágætlega,
þannig að á endanum tók ég stóra
pöntun,“ segir Ragnar. Buffin sem
hann selur nú á sölusíðunum Ska-
gaskvísur sölusíða og Brask og
brall á Facebook eru meðal ann-
ars með myndum af Hvolpasveit-
inni, Hello Kitty, hauskúpum og
á einni tegundinni stendur Raggi
nagli. „Það bætast við fleiri teg-
undir fljótlega, ég verð til dæmis
með Spiderman og buff fyrir Írsku
dagana á Akranesi. Það þarf frek-
ar stóra pöntun fyrir hverja teg-
und, það er ekkert hægt að panta
eitt eða tíu buff heldur þarf ég að
panta mörg hundruð. En ég er
bara að prófa að safna fyrir lyft-
aranum. Ef buffin seljast illa, þá
skiptir það ekki máli. Það er eins
og með Hvolpasveitarbuffin, það
er nóg að vita að þau gleðja lítil
hjörtu,“ segir Ragnar.
Að endingu vill Ragnar koma á
framfæri þökkum til allra sem hafa
komið að því að aðstoða hann eftir
slysið. „Bæði þeim sem hjálpuðu til
á slysstað, öllu því starfsfólki sem
hefur veitt mér aðstoð, fjölskyld-
unni og öllum sem hafa hjálpað
mér. Og auðvitað þeim sem kaupa
buffin og styrkja mig.“
Þess má geta að þeir sem vilja
styrkja Ragnar geta fundið aug-
lýsinguna fyrir buffin á Facebook
inni á sölusíðunum „Skagaskvís-
ur“ og „Brask og brall“. Eins held-
ur Ragnar úti styrktarsíðu á Face-
book. Buffin kosta 1.500 krónur
stykkið en séu keypt fleiri en fjög-
ur fæst afsláttur. Þá eru mæðg-
urnar Andrea Þ Björnsdóttir og
Sandra Björk einnig að selja lakkr-
ís- og hlauppoka til styrktar Ragn-
ari á 1.000 krónur stykkið.
Númerið á styrktarreikningi
Ragnars er: 0186-26-012569.
Kt: 110483-5119.
grþ
Ragnar safnar fyrir ferðalyftara með buffsölu
Ragnar með systrabörnum sínum þeim Vigni Gauta og Dagnýju árið 2011.
Ragnar Egilsson lamaðist fyrir neðan háls í alvarlegu bifhjólaslysi fyrir tæpum tveimur árum.
Húsið Melur við Höfðagötu í
Stykkishólmi var rifið á mánudag-
inn. Þorbergur Bæringsson ætlar
að byggja þar nýtt hús. Á sama tíma
voru snör handtök viðhöfð við að
raða upp einingum í stækkun bak-
arísins, en sama verktakafyrirtækið;
BB og synir, kemur einmitt að báð-
um þessum verkefnum.
sá
Meðan eitt hús
féll reis annað
Einingar reistar við stækkun bakarísins í Stykkishólmi.
Stuttan tíma tók að rífa húsið Mel.