Skessuhorn


Skessuhorn - 15.06.2016, Síða 2

Skessuhorn - 15.06.2016, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 20162 17. júní er næsta föstudag. Því fylgja mik- il hátíðarhöld og hefð er fyrir að fólk fari í skrúðgöngu. Það er því ekki seinna vænna að taka til þjóðbúninginn og læra Öxar við ána. Hæhó og jibbíjei! Á morgun og föstudag verður hæg suðlæg eða breytileg átt, skýjað með köflum og lík- ur á smáskúrum. Suðaustan 8-13 m/sek og rigning á föstudagskvöld. Hiti yfirleitt 10 til 15 stig. Á laugardag má búast við suðaust- an 8-13 m/sek og dálítilli rigningu, hiti 10 til 18 stig. Á sunnudag verður suðlæg átt og rigning eða skúrir. Hiti breytist lítið. Á mánu- dag er útlit fyrir milt veður með smáskúrum á víð og dreif. Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns „Hversu langt kemst Ísland á EM karla?“ Flestir svöruðu því að Ísland myndi falla úr leik í riðlakeppninni eða 41%. 35% þeirra sem kusu voru ögn jákvæðari og töldu að Ísland kæmist í 16 liða úrslit, 9% halda að Ís- land lyfti Evrópumeistaratitlinum, 7% að við komumst í 8 liða úrslit, 4% að við kom- ust í fjögurra liða úrslit, 2% að við lendum í öðru sæti og sömuleiðis 2% að við lendum í þriðja sæti. Í næstu viku er spurt: Ætlar þú að nýta kosningaréttinn 25. júní? Þeir fjölmörgu sjálfboðaliðar sem komu að Norðurálsmótinu á Akranesi eru Vestlend- ingar vikunnar. Sem vott um góða frammi- stöðu má nefna að strax um miðjan dag á sunnudaginn síðasta var ekki að sjá á Akra- nesi að þar hafi verið stórt knattspyrnumót haldið. Til fyrirmyndar hvernig búið var að taka til og ganga frá ýmsu sem að mótinu sneri. Til minnis Veðurhorfur Spurning vikunnar Vestlendingur vikunnar Víðtæk leit á jöklinum SNÆFELLSNES: Allar björg- unarsveitir Landsbjargar á Vest- urlandi voru síðdegis á mánu- daginn kallaðar út til leitar að bandarískum göngumanni á Snæfellsjökli. Sá hafði orðið viðskila við félaga sinn um há- degisbil. Auk göngufólks var kallað eftir aðstoð snjóbíla og vélsleða. Leit bar árangur rétt undir kvöld þegar maðurinn fannst heill á húfi. -mm Haraldur hættir hjá KFÍA AKRANES: Haraldur Ingólfs- son hefur gegnt stöðu fram- kvæmdastjóra Knattspyrnu- félags ÍA frá ágústmánuði 2013 þegar hann tók við af Þórði Guðjónssyni. Eftir þessi tæpu þrjú ár í starfi er nú komið að því að Haraldur láti af störfum og snúi sér að öðrum verkefnum. Samkvæmt heimildum Skessu- horns hefur hann verið ráðinn útibússtjóri Sjóvá á Akranesi. Staða framkvæmdastjóra KFÍ er auglýst laus til umsóknar, með- al annars í Skessuhorni í dag, og rennur umsóknarfrestur út 30. júní nk. -mm Skuggi heldur Íslandsmót yngri flokka BORGARNES: Hestamanna- félagið Skuggi mun halda Ís- landsmót yngri flokka í hesta- íþróttum 2016 dagana 14. – 17. júlí í sumar. Undirbúning- ur stendur nú yfir og er for- maður framkvæmdanefndar Stefán Logi Haraldsson for- maður Skugga. Framkvæmda- stjóri mótsins er Svanhild- ur Svansdóttir. „Það er ætlun hestamannafélagsins Skugga að í Borgarnesi, á félagssvæði Skugga við Vindás, verði haldið glæsilegt mót þar sem saman fari góð aðstaða og að gaman verði fyrir þátttakendur, aðstand- endur og aðra gesti að dvelja í Borgarnesi þessa daga. Skuggi væntir þess að þátttaka verði góð og verða drög að dagskrá kynnt fljótlega. Endanleg dag- skrá ræðst svo af fjölda skrán- inga en áætlað er að skráningu ljúki 5. júlí,“ segir í tilkynningu frá framkvæmdanefnd Íslands- móts yngri flokka 2016. -mm Um nónbil síðastliðinn miðvikudag var götusóp ekið í gegnum grind- verk og að húsgafli Vegagerðarinn- ar við Vesturbraut í Búðardal. Sam- kvæmt heimildum Skessuhorns má rekja óhapp þetta til veikinda öku- manns. Ekki urðu slys á fólki. mm/ Ljósm. sm. Óhapp í Búðardal Slökkvilið Borgarbyggðar var kall- að út á föstudaginn vegna elds í dúnhreinsun við Skúlagötu 7a í Borgarnesi. Hreinsunin er í skúr við íbúðarhúsið. Að sögn Jök- uls Fannars Björnssonar aðstoð- arslökkviliðsstjóra skiptu miklu máli hárrétt viðbrögð eiganda dúnhreinsunarinnar þegar hann varð eldsins vart. Hann hafi lok- að gluggum, komið sér út og kall- að út slökkvilið. Reykkafarar fóru inn í húsnæðið, komu einhverju af dúni út og slökktu í glæðun- um. Slökkvistarfi lauk á skömm- um tíma og gekk vel, að sögn Jök- uls Fannars. bþb Slökktu eld í dúnhreinsun Segja má að hestamennska á Snæ- fellsnesi hafi tekið stórt stökk inn í framtíðina um síðustu helgi þeg- ar skrifað var undir kaupsamn- inga vegna byggingar þriggja nýrra reiðskemma. Aðdragand- inn er sá að fyrir nokkrum mán- uðum tóku þrír aðilar á Snæfells- nesi sig saman og óskuðu eftir til- boðum í reiðskemmubyggingar. Þetta voru fulltrúar Hesteigenda- félags Stykkishólms, Hestaeig- endafélagið Hringur í Ólafsvík og ferðaþjónustubændurnir Agnar og Jóhanna á Lýsuhóli í Staðarsveit. Leitað var eftir tilboðum frá fjöl- mörgum fyrirtækjum og eftir ýtar- lega skoðun á tilboðum, skoðun- arferðir og vangaveltur var ákveð- ið að ganga til samningaviðræðna við Límtré Vírnet. Í lok sameigin- legs úrtökumóts vestlensku hesta- mannafélaganna Skugga í Borg- arnesi, Faxa í Borgarfirði, Dreyra á Akranesi, Glaðs í Dalabyggð og Snæfellings á Snæfellsnesi, sem haldið var í Borgarnesi vegna Landsmóts hestamanna á Hól- um, var gengið til undirritunar á samningum um byggingarnar. Húsin sem byggð verða í Ólafsvík og Stykkishólmi eru nánast sams- konar reiðhús að stærðinni 18 x 38 metrar. Húsið sem reist verður á Lýsuhóli verður nokkuð stærra, eða 20 m x 45 m. Við athöfnina í Borgarnesi um helgina þökkuðu kaupendur forsvarsmönnum Lím- trés Vírnets fyrir frábæra þjónustu og bentu á að gleðilegt væri að það væri íslenskt famleiðslufyrirtæki sem hefði verið með hagstæðustu tilboðin. „Það er ljóst að bygging þessara húsa mun styrkja hesta- mennskuna á Snæfellsnesi veru- lega og auka lífsgæði þeirra fjöl- mörgu sem á þessu svæði búa og hafa hestamennsku sem áhugamál. Mjög mikið líf hefur verið í hesta- mennskunni á Vesturlandi þetta ár og mun það örugglega verða áfram,“ segir í tilkynningu frá félögunum. mm Samið um byggingu þriggja reiðskemma á Snæfellsnesi Frá undirritun samninganna. Frá vinstri Stefán Logi Haraldsson forstjóri Límtrés Vírnets, Stefán Smári Kristófersson í Ólafsvík, Agnar Gestsson og Jóhanna Ás- geirsdóttir á Lýsuhóli, Nadine E. Walter Stykkishólmi og Sigurður Guðjónsson frá Límtré Vírneti. Í Ráðhúsi Borgar- byggðar við Borg- arbraut 14 í Borg- arnesi er nú til sýn- is líkan af miðbæ Borgarness, svæð- inu í kringum Borg- arbraut 57 og 59 þar sem bygging tveggja stórhýsa er hafin. Á vef sveit- arfélagsins eru íbú- ar hvattir til að kíkja við á opnunartíma og skoða líkanið, sem sjá má á með- fylgjandi mynd. mm Líkan af húsum í miðbæ Borgarness haft til sýnis

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.