Skessuhorn - 15.06.2016, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2016 11
An
ok
m
ar
gm
iðl
un
eh
f -
A
NO
K-
ST
HB
-7
ÚTBOÐ
Stykkishólmsbær óskar eftir tilboðum
verktaka í byggingu bókasafns við
grunnskóla bæjarins.
Um er að ræða húsnæði fyrir Amtsbókasafn og skólabókasafn
við Grunnskólann Stykkishólmi. Viðbyggingin er um 550 m²
steinsteypt hús á einni hæð.
Útboð verksins nær til allra þátta þ.e. jarðvinnu, uppsteypu
og stálsmíði, tæknikerfa, frágangs innan- og utanhúss auk
lóðar. Laus búnaður er undanskilin.
Byggingunni skal skilað fullbúinni að utan sem innan
10. ágúst 2017.
Helstu magntölur jarðvinnu og burðarvirkja:
- uppúrtekt: 2.300 m³
- fyllingar: 1.900 m³
- mótafletir: 2.400 m²
- steypustyrktarstál: 28 tonn
- steinsteypa: 370 m³
- stálvirki: 9.800 kg
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum sem eru rafræn
og verða send þeim sem þess óska með skeyti á netfangið
gardar@arkitektastofan.is. Ósk um gögn skal fylgja nafn
bjóðanda og nafn, netfang og símanúmer tengiliðs.
Opnunartími tilboða er 5. júlí 2016 kl. 13:00 á skrifstofu
bæjarins að Hafnargötu 3 í Stykkishólmi, að viðstöddum þeim
bjóðendum sem þess óska.
ÍBÚAFUNDUR VEGNA
UNGLINGALANDSMÓTS UMFÍ
Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið í Borgarnesi verslunarmannahelgina 28.-31. júlí.
Búast má við mörg þúsund manns á mótið. Það mun hafa bæði mikil og jákvæð áhrif á
daglegt líf bæjarbúa. Í tengslum við mótið halda skipuleggjendur fund með íbúum Borgarbyggðar
þar sem þeir verða upplýstir um áhrifin á meðan móti stendur. Allir eru hvattir til að mæta!
Fundurinn verður haldinn í Hjálmakletti við Borgarbraut 56
fimmtudaginn 23. júní klukkan 20:00
Jakob Kristinsson prófessor og Sig-
urður Sigurðsson dýralæknir segja
í nýrri skýrslu, sem þeir unnu að
beiðni atvinnuvega- og nýsköpun-
arráðuneytisins, að endurtekin veik-
indi hrossa á bænum Kúludalsá í
Hvalfirði megi rekja til flúormeng-
unar fá álverinu á Grundartanga. Að
minnsta kosti helmingur hrossanna
á Kúludalsá hafa veikst og megi rekja
það til efnaskiptaröskunar sem kallar
equine metabolic syndrome (EMS).
„Engar rannsóknir hafa farið fram á
tíðni þeirrar efnaskiptaröskunar í ís-
lenskum hrossum. Veikindi af henn-
ar völdum virðast fátíð í erlendum
hrossastofnum,“ segja skýrsluhöf-
undar. Þá segja þeir einnig að eftir
að hafa fylgst með fóðrun hrossa á
Kúludalsá, hagagöngu, holdafari og
einkennum sjúkdómsins telja þeir
nánast útilokað að rekja megi veik-
indi þeirra til offóðrunar eða rangrar
meðferðar, en það eru taldir helstu
áhættuþættir EMS. „Þegar tek-
ið er mið af styrk flúoríðs í beinum
hrossa, sem felld hafa verið, er eng-
inn vafi á að flúormengun á bæn-
um er umtalsverð. Er styrkur hans í
beinum um fjórfalt hærri en á svæð-
um þar sem ekki gætir flúormengun-
ar af völdum eldvirkni eða iðjuvera.
Að öllu samanlögðu telja skýrsluhöf-
undar líklegt að veikindi hrossanna á
Kúludalsá megi rekja til flúormeng-
unar. Þessar ályktanir eru dregnar af
niðurstöðum erlendra rannsókna og
þeim rannsóknum skýrsluhöfunda,
sem lauk fyrir 1. maí 2016.“
Telja að ekki verða
lengra komist með
rannsóknir
Í lokaorðum sínum segja þeir Jakob
og Sigurður ljóst að ekki verði lengra
komist með rannsóknum á hrossun-
um á Kúludalsá eingöngu. „Ef kom-
ast á nær hinu rétta er nauðsynlegt
að gerð verði rannsókn á afdrifum
flúoríðs í íslenskum hrossum. Ef til
vill yrði þá síðar hægt að gera vand-
aða rannsókn á langtímaáhrifum flú-
oríðs í hrossum. Slíkar rannsóknir
eru ekki á færi skýrsluhöfunda. Þar
þarf að koma til aðstaða, mannafli og
sérfræðingar á ýmsum sviðum dýra-
lækninga og eiturefnafræði.“
Matvælastofnun á
annarri skoðun
Í kjölfar útgáfu skýrslunnar sendi
Matvælastofnun frá sér tilkynningu
þar sem stofnunin andmælir niður-
stöðum skýrsluhöfunda um að veik-
indin megi rekja til flúormengun-
ar. Stofnunin telur helstu orsakir
EMS vera offóðrun og takmörkuð
hreyfing og sé sjúkdómurinn nokk-
uð algengur í hrossum sem hafa litlu
hlutverki að gegna. Matvælastofn-
un bendir á að sú efnaskiptaröskun
sem um ræðir í hrossunum á Kúlu-
dalsá sé í raun varanlegt ástand og
læknist ekki við breytingar á fóðrun
og meiri hreyfingu. „Matvælastofn-
un berast reglulega ábendingar um
vandamál af þessum toga og þeirra
verður vart við reglubundið eftir-
lit með hrossahjörðum og í slátur-
húsum. Út frá þeim óformlegu upp-
lýsingum sem liggja fyrir um út-
breiðslu sjúkdómsins er ekkert sem
bendir til annars en að hann komi
fyrir í öllum landshlutum og eng-
in vísbending er um að hann sé al-
gengari í Hvalfirði en annars stað-
ar,“ segir í yfirlýsingu Matvælastofn-
unar. Þá segir einnig: „Hafa ber í
huga að efnaskiptaröskun sú sem
hér um ræðir er í raun varanlegt
ástand og læknast því ekki við breyt-
ingar á fóðrun þó þannig sé hægt að
halda sjúkdómseinkennum niðri að
einhverju leyti. Mikil hætta er á að
aðgangur að auðleystum sykrum svo
sem í grasi eða heyi kalli einkenn-
in fram á ný þrátt fyrir að tekist hafi
að grenna hrossið og hreyfing hafi
verið aukin. Þetta skýrir misvísandi
ályktanir MAST og skýrsluhöfunda.
Árið 2011 leiddi skoðun Mast sann-
anlega í ljós að flest hrossanna voru
of feit, en skýrsluhöfundar mátu
sömu hross ekki mjög feit árið 2013.
Því fer fjarri að hægt sé að útiloka
offitu sem orsök veikinda hrossa á
Kúludalsá eins og skýrsluhöfund-
ar gera.“ Matvælastofnun andmæl-
ir því þeirri ályktun skýrsluhöfunda
að nánast útilokað sé að rekja megi
veikindi hrossanna á Kúludalsá til
offóðrunar eða rangrar meðferðar
og að orsök EMS/IR í hrossunum á
Kúludalsá megi líklega rekja til flú-
ormengunar.
Skýrsla Sigurðar og
Jakobs stendur
Ragnheiður Þorgrímsdóttir bóndi
á Kúludalsá fagnar útkomu skýrslu
þeirra Jakobs og Sigurðar. Jafn-
framt harmar hún ómálefnaleg
viðbrögð starfsmanna Matvæla-
stofnunar við niðurstöðum henn-
ar. „Fyrst afstaða Matvælastofn-
unar er þessi, að hrekja án nokk-
urra rannsókna niðurstöðu þeirra
Jakobs og Sigurðar, þá get ég ekki
Telja að veikindi í hrossum á Kúludalsá
megi rekja til flúormengunar
annað en skorað á Matvælastofnun
að láta fara fram rannsóknir þann-
ig að stofnunin geti hrakið niður-
stöðu skýrslunnar með málefnaleg-
um hætti. Þangað til Matvælastofn-
un lætur vinna slíkar rannsóknir þá
stendur að sjálfsögðu niðurstaða
Jakobs og Sigurðar,“ segir Ragn-
heiður í samtali við Skessuhorn.
Jafnframt hefur Ragnheiður ósk-
að eftir viðbrögðum sveitarstjórn-
ar Hvalfjarðarsveitar við þeim upp-
lýsingum sem komið hafa fram. Fer
hún fram á að sveitarstjórn beiti sér
fyrir því að þegar verði hafinn und-
irbúningur að hlutlausri umhverf-
isvöktun vegna Grundartanga-
svæðisins. Þá vill hún að sveitar-
stjórn beiti sér fyrir að gerð verði
viðamikil rannsókn á áhrifum flú-
ors á íslenskt búfé líkt og Sigurð-
ur og Jakob leggja til í áfangaskýrsl-
unni. Óskar hún eftir því að sveitar-
stjórn svari erindi sínu fyrir næstu
mánaðamót.
mm
Hross í haga á Kúludalsá. Ljósm. mm.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is