Skessuhorn - 15.06.2016, Síða 12
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 201612
Þjóðskrá Íslands tilkynnir fasteigna-
eigendum í júní ár hvert um nýtt
fasteignamat. Nýtt mat tekur gildi
31. desember 2016 og gildir fyrir
árið 2017. Fasteignamatið er notað
sem grunnur við álagningu sveitar-
félaga á fasteignagjöldum, en þau
leggja eins og kunnugt er mismun-
andi háa álagningarprósentu ofan
á þann grunn. Heildarfasteigna-
mat á landinu hækkar nú um 7,8%
að jafnaði og hækkar mat tæplega
95% eigna í landinu en rúm 5%
eigna lækka í mati. Á Vesturlandi
hækkar fasteignamat um 6,9% að
meðaltali en misjafnlega mikið eft-
ir sveitarfélögum. Þannig hækkar
það mest í Dalabyggð um 9,3% og
í Stykkishólmi um 9,1%. Á Akranesi
er hækkunin 6,6%, í Borgarbyggð
5,3%, í Skorradalshreppi 5,8%, í
Grundarfirði 5,1%, í Helgafellssveit
2,4%, í Snæfellsbæ 3,1% og í Eyja-
og Miklaholtshreppi hækkar það
minnst, eða um 2,2%.
Á höfuðborgarsvæðinu hækk-
ar fasteignamat um 8,8%, á Suður-
nesjum 6,8%, á Vestfjörðum 6,9%,
á Norðurlandi eystra 5,7%, á Aust-
urlandi um 5,6%, Suðurlandi um
4,8% en á Norðurlandi vestra hækk-
ar það einungis um 0,2% að meðal-
tali. Fasteignamat utan höfuðborg-
arsvæðisins hækkar mest á Vopna-
firði um 12,1%, í Vesturbyggð um
12% en lækkar hins vegar mest í
Akrahreppi í Skagafirði um 4,8% og
á Blönduósi um 3,6%.
Fasteignaeigendur geta nálg-
ast matið á skra.is með því að slá
inn götuheiti eða haft samband við
Þjóðskrá Íslands og óskað eftir því
að fá tilkynningaseðilinn sendan
með bréfpósti. mm
Fasteignamat á Vesturlandi
hækkar mest í Dalabyggð
Vilhjálmur Egilsson rektor útskrif-
aði við hátíðlega athöfn rúmlega 120
nemendur úr öllum deildum Há-
skólans á Bifröst síðastliðinn laugar-
dag. Í ávarpi sínu til útskriftarnem-
enda vék Vilhjálmur að því að skiln-
ingur á lífinu og umhverfinu, að-
lögunarhæfni, samvinnugeta, kjark-
ur til að taka ákvarðanir og ábyrgð
væru aðalsmerki Bifrestinga. Þann-
ig hefðu þeir byggt upp með sér hið
innra hugrekki sem þurfi til að glíma
við hvert það viðfangsefni sem á vegi
þeirrra verður. „Háskólinn á Bifröst
er skóli með sál. Okkur; nemendum
og starfsfólki, er ekki sama um okk-
ur sjálf, fjölskyldur okkar, vini okk-
ar og samfélagið. Þess vegna tölum
við um ábyrgð sem gildi okkar. Við
erum óhrædd við að taka ábyrgð og
hræðumst ekki brekkurnar í lífinu.
Við vöxum af því að leysa vandasöm
viðfangsefni. Ég óska ykkur gæfu og
gengis í lífi og starfi. Framtíðin er
ykkar. Og hún er björt,“ sagði Vil-
hjálmur í lok ræðu sinnar til útskrift-
arnema.
Sérstök afmælisnefnd
skipuð
Í ræðu rektors kom fram að ýmislegt
hefur gengið háskólanum í hag upp
á síðkastið. Til að mynda er fjár-
hagsleg staða skólans betri en hún
hefur verið undanfarin ár og gæði
skólans voru staðfest af Gæðaráði ís-
lenskra háskóla fyrr á árinu. Þá voru
nemendur skólans heldur fleiri þetta
skólaár en árið áður og ekki þarf
nemendum að fjölga mikið til að
markmiði um fjölda nemenda verði
náð. Þá kom rektor einnig að því í
ræðu sinni að skólinn yrði hundrað
ára stofnun árið 2018 og hefur þeg-
ar verið skipuð sérstök afmælisnefnd
undir forystu Leifs Runólfssonar,
formanns stjórnar skólans, sem mun
undirbúa viðeigandi viðburði á af-
mælisárinu.
Verðlaun og
útskriftarræður
Útskriftarverðlaun hlutu Ósk-
ar Jensson á viðskiptasviði, Guð-
munda Katrín Karlsdóttir á lög-
fræðisviði og Ingvar Leví Gunn-
arsson á félagsvísindasviði. Í meist-
aranámi hlutu útskriftarverð-
laun Sigríður Ólöf Kristjánsdótt-
ir á viðskiptasviði, Böðvar Sigur-
björnsson á lögfræðisviði og Hug-
rún Ósk Guðjónsdóttir á félagsvís-
indasviði. Að auki fengu eftirfarandi
þrír nemendur felld niður skóla-
gjöld á haustönn í tilefni af fram-
úrskarandi námsárangri: Svanberg
Halldórsson á viðskiptasviði, Hall-
grímur Tómasson á lögfræðisviði
og Ásta Sóllilja Karlsdóttir á félags-
vísindasviði. Berglind Sunna Braga-
dóttir var með hæstu meðaleinkunn
í háskólagátt og fær hún skólagjöld
fyrstu annar í grunnnámi við Há-
skólann á Bifröst felld niður.
Nemendur sem héldu útskriftar-
ræðu voru Óskar Jensson fyrir hönd
viðskiptasviðs, Kristjana Kjartans-
dóttir fyrir hönd lögfræðisviðs,
Gauti Skúlason fyrir hönd félags-
vísindasviðs, Hjörtur Ingi Hjart-
arson fyrir hönd meistaranema og
Stefán Freyr Benonýsson fyrir hönd
háskólagáttar.
Í ávörpum fulltrúa allra útskrift-
arhópa kom fram mikil ánægja með
að hafa valið Háskólann á Bifröst
og þakklæti bæði í garð starfsmanna
og samnemenda. Þá væri Háskól-
inn á Bifröst í alla staði góður skóli
til að öðlast framúrskarandi mennt-
un sem skilaði nemendum vel und-
irbúnum út í atvinnulífið. Karlakór-
inn Söngbræður sá um söngatriði
við útskriftina við undirleik Norð-
dælingsins Heimis Klemenzssonar.
mm/mó/
Ljósm. Háskólinn á Bifröst
Fjölmennur hópur brautskráðist
frá Háskólanum á Bifröst
Samkvæmt hagtölum sem Matvæla-
stofnun hefur tekið saman fyrir árið
2015 fjölgar svínum og nautgripum í
landinu frá fyrra ári. Svínum fjölgaði
úr 2.995 í 3.518 og heildarfjöldi naut-
gripa fór úr 74.444 í 78.776. Hins
vegar fækkaði sauðfé miðað við haust-
skýrslur bænda 2015, voru 487.001
árið 2014 en fækkaði í 472.461, eða
um 14.540.
Bústofn er gagnagrunnur Matvæla-
stofnunar sem inniheldur upplýsingar
um fjölda búfjár og forða sem bygg-
ist á skráningu búfjáreiganda. Mat-
vælastofnun vinnur að því að gera
skráningu alls búfjár skilvirkari m.a.
með því að bera saman upplýsingar
úr haustskýrslum í Bústofni og hjarð-
bókum sem eru hluti af skýrsluhalds-
gagnagrunnum búgreina. Ákveðin
óvissa er sögð fylgja skráningu á lif-
andi hrossum. Nú verður á ábyrgð
umráðamanns hrossa að skila inn
skýrsluhaldsupplýsingum frá og með
haustinu 2016. Í því felst að skrá af-
drif hrossa, fyljun og folaldaskrán-
ingu þeirra hrossa sem umráðamaður
hefur umsjón með. Jafnframt verð-
ur gert auðveldara að skila inn haust-
skýrslu til Matvælastofnunar í gegn-
um heimarétt WorldFengs, sem er á
ábyrgð umráðamanns. Nánari upp-
lýsingar veitir búnaðarmálaskrifstofa
Matvælastofnunnar. mm
Sauðfé fækkaði en svínum
og nautgripum fjölgaði