Skessuhorn - 15.06.2016, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 201618
Snæfellsnes virðist vera vinsælt
meðal eigenda svokallaðra ofur-
snekkja. Síðastliðinn laugardag lá
snekkjan Cloudbreak fyrir anker-
um utan við höfnina í Ólafsvík.
Snekkja þessi er ný, smíðuð á þessu
ári og sjósett í Þýskalandi í maí. Því
má gera ráð fyrir að hún sé í sinni
Jómfrúarferð. Snekkjan er 72,5
metrar að lengd og 12,4 metrar að
breidd og er 2.293 tonn að stærð.
Cloudbreak vakti að sjálfsögðu
mikla athygli bæjarbúa og var fjöl-
menni að mynda hana. Ekki spillti
fyrir að sjá stærðarinnar þyrlu taka
sig á loft af þaki snekkjunnar. Í
áhöfn eru 22 herbergi, en sjö eru
fyrir farþega auk einnar súpersvítu.
af
Ný lútsussnekkja maraði við Ólafsvík
Hafliði Elíasson hefur tekið við
rekstri Leifsbúðar í Búðardal sem
var opnað með nýjum áherslum í
vikunni sem leið. Opnunartími hef-
ur lengst og er nú opið frá klukk-
an 12 til 15 og 18 til 22. Áhersla
er lögð á fjölbreyttan mat samhliða
hefðbundnu kaffi og bakkelsi. Súpa
dagsins verður fastur liður ásamt
völdum sjávarréttum og hópar
geta pantað hlaðborð með fyrir-
vara. Áætlað er að bjóða upp á ýmsa
viðburði og sá fyrsti var síðastlið-
ið laugardagskvöld þegar Bjartmar
Guðlaugsson hélt tónleika í Leifs-
búð. Nánari upplýsingar má finna á
www.leifsbud.is
sm
Nýr rekstraraðili
Leifsbúðar í Búðardal
Hafliði Elíasson ásamt dóttur sinni
Elísu.
Hjónin Stefán Stefánsson og Þór-
halla Laufey Guðmundsdóttir
keyptu síðasta haust jörðina Fljóts-
tungu í Borgarfirði. Þau hjónin,
ásamt börnum sínum, hafa staðið í
miklum framkvæmdum þar undan-
farnar vikur, nánar tiltekið í hellin-
um Víðgelmi sem tilheyrir Fljóts-
tungu. Þau Stefán og Þórhalla eru
sjálf búsett á Akureyri en elsti son-
ur þeirra, Hörður Míó Ólafsson, er
staðarhaldari í Fljótstungu og sér
um starfsemina þar. Blaðamaður
settir niður með Herði í blíðskap-
arveðri í Hallmundarhrauni fyrir
skömmu og tók hann tali.
Hugmynd sem byrjaði á
kaffibolla
Hörður er menntaður leiðsögu-
maður frá Thompson Rivers Uni-
versity í Kanada og hefur starfað við
leiðsögn undanfarin ár. Ferðaþjón-
usta er honum því mjög kunnug-
leg. En hvað kom til að fjölskyldan
fór út í ferðaþjónustu í Fljótstungu?
„Þetta var bara eins og hver önn-
ur hugmynd sem byrjar á kaffibolla
og núna, ári síðar, sitjum við hér í
Hallmundarhrauni,“ segir Hörð-
ur og hlær. „Þegar ég var í Kanada
kynntist ég ólíkum hliðum ferða-
þjónustu og þá kviknaði draumur
hjá mér. Til þess að sá draumur gæti
orðið að veruleika þurfti svæði eða
jörð þar sem hægt væri að bjóða upp
á fjölbreytta afþreyingu. Sjálfur er
ég mjög virkur í starfi og leik og hef
gaman að því að vera úti, eða eins og
pabbi segir; er ég alltaf úti að leika
mér,“ segir Hörður. „Eins og glögg-
lega má sjá hefur straumur ferða-
manna til Íslands aukist mjög mikið.
Þunginn af ferðaþjónustunni hefur
verið á Suðurlandi en undanfarin ár
hefur hann dreifst mikið. Ég trúi því
að Vesturland sé næsti staðurinn og
fór því að horfa vestur.“
Samvinna
fjölskyldunnar
„Ég sá þessa jörð auglýsta einn
daginn og að hér væru allir þeir
möguleikar sem ég var að leita að.
Ég bendi svo pabba á þetta, meira
í gríni en alvöru. Hann tók því af
meiri alvöru svo hér erum við,“
segir Hörður. „Foreldrar mínir
hafa víðtæka viðskipta- og stjórn-
unarþekkingu. Ég hef svo þekk-
inguna á þessari þjónustu og sam-
an erum við því mjög gott lið. Svo
eru líka systkini mín Stefán Baldvin
Stefánsson og Una Magnea Stef-
ánsdóttir, að vinna að þessu með
okkur. Stefán hefur t.d. mikið unn-
ið í framkvæmdunum niðri í helli,“
segir hann.
Leggja upp úr því að
varðveita hellinn
Fjölskyldan hefur staðið í ströngu
síðustu vikur en miklar breyting-
ar hafa verið gerðar á aðstöðunni í
Víðgelmi. Áður voru það eingöngu
mjög fótvissir einstaklingar sem
gátu skoðað hann því þar inni er
bæði stórgrýtt og sleipt. „Núna ætti
í raun hver sem er að geta kom-
ið og skoðað þennan fallega helli
allt árið um kring. Það væri jafn-
vel hægt að koma fólki í hjólastól
inn í hann, það þyrfti mannskap
en það er mögulegt,“ segir Hörð-
ur en aðgengi í hellinn hefur ver-
ið bætt verulega síðustu vikur. Nú
hefur verið smíðaður pallur sem
liggur inn í hellinn. Pallurinn sjálf-
ur er um 200 metrar að lengd en
hann er ekki allur í einum hluta svo
hann nær um 360 metra inn í hell-
inn. Með tilkomu pallsins er hægt
að ferðast um 700 metra inn í hell-
inn á nánast flötu gólfi. „Svanur
Þór Brandsson byggingafræðingur
og smiður er heilinn á bak við pall-
inn og hefur séð um að smíða hann,
en þetta eru engin venjuleg smíði.
Það eru engar teikningar sem far-
ið var eftir, það er ekki hægt í svona
verkefni, heldur þurftum við bara
að byrja og vinna okkur áfram.
Heildar smíði á svæðinu tók um níu
vikur, þar af var pallasmíðin um sjö
vikur,“ segir Hörður og bætir því
við að mikið hafi verið lagt upp úr
því að ummerki sætust ekki í hellin-
um eftir framkvæmdirnar. „Í svona
helli er niðurbrot afar hægt, rusl og
annað sem skilið er eftir hér fer því
ekkert. Þess vegna höfum við pass-
að mikið upp á að skilja ekkert eft-
ir okkur, ekki einu sinni sag eftir
smíðina. Allt sem ekki var forsagað
var sagað ofan í kassa og það sem
fer út fyrir er ryksugað upp. Pall-
urinn sjálfur er svo hvergi boltað-
ur niður heldur stífaður fastur og ef
hann væri tekinn ættu ekki að vera
nein ummerki um að hann hafi ver-
ið hér,“ segir Hörður.
Ganga vel um náttúruna
„Við höfum líka sett mjög látlausa
og náttúrulega lýsingu inn í hell-
inn. Við viljum ekki að lýsingin
skemmi upplifun fólks að koma inn
í hellinn og því er hún í algjöru lág-
marki og mjög náttúruleg. Engu að
síður þarf að vera næg lýsing til að
sýna þessa undraveröld sem Víð-
gelmir er,“ segir Hörður. Einnig
hefur verið sett upp hús með mót-
töku og salernisaðstöðu fyrir utan
hellinn og göngustígur lagður að
honum frá húsinu. „Við viljum hafa
afmarkað svæði sem fólk gengur á í
hrauninu svo við lögðum stíg. Það
er eins hér úti og inni í hellinum,
við viljum ekki skilja of mikil um-
merki eftir okkur í náttúrunni. Við
verðum að gæta þess að skilja vel
við okkur fyrir komandi kynslóðir,“
segir Hörður Míó að lokum.
arg
Víðgelmir aðgengilegur öllum
Hörður Míó Ólafsson er nýr staðarhaldari í Fljótstungu í Hvítársíðu. Þarna er
Hörður fyrir utan nýtt móttökuhús sem hefur verið sett upp við hellinn Víðgelmi.
Þarna má sjá hluta af palli sem hefur verið smíðaður inni í Víðgelmi. Með tilkomu þessa palls ætti hver sem er að geta farið
inn í hellinn og skoðað þá miklu fegurð sem þar er.
Þarna má sjá hversu stórgrýtt er í
hellinum.
Yfir vetrartímann drýpur vatn úr lofti
hellisins og frýs á gólfinu, þá myndast
þessar fallegu íssúlur.
Þarna má sjá afmarkaða gönguleið sem hefur verið sett á
milli móttökuhússins og hellisins.
Nýtt hús hefur verið sett upp til að taka á móti gestum sem
koma að skoða Víðgelmi.