Skessuhorn - 15.06.2016, Page 26
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 201626
Um helgina fór fram Norðurálsmót-
ið í knattspyrnu. Þar tóku dreng-
ir á aldrinum sex til átta ára sín
fyrstu skref á knattspyrnuferlinum.
Á mótinu voru um 1500 keppend-
ur sem er um 50 fleiri en á mótinu í
fyrra. Félögin voru 33 sem tóku þátt
í ár og alls voru 176 lið. Meðal liða
var eitt frá knattspyrnufélaginu B67 í
Nuuk á Grænlandi sem jafnframt er
fyrsta erlenda félagið til þess að taka
þátt á mótinu. Mikill fjöldi gesta sótti
Akranes heim á meðan mótinu stóð
en áætlað er að þeir hafi verið um sex
til sjö þúsund.
Mótið var sett formlega í Akra-
neshöllinni í hádeginu á föstudag en
áður höfðu öll lið tekið þátt í skrúð-
göngu frá Stillholti í Akraneshöllina
eins og hefð er fyrir. Mótinu lauk svo
með pylsuveislu við Akranesvöll í há-
deginu á sunnudag.
Haraldur Ingólfsson, fram-
kvæmdastjóri Knattspyrnufélags ÍA,
segir að mótið hafi heppnast vel.
„Mótið gekk mjög vel og er því að
þakka öllum þeim sjálfboðaliðum og
öðrum sem komu að því með bein-
um eða óbeinum hætti. Skagamenn
eiga einnig hrós skilið fyrir að taka
svona vel á móti fólkinu sem sótti bæ-
inn heim. Veðrið slapp til; við feng-
um smá rigningu á föstudaginn en á
bæði laugardag og sunnudag var fín-
asta veður. Ég sá ekki betur en flestir
hafi farið af mótinu með brosi á vör,“
segir Haraldur.
bþb
Vel heppnað Norðurálsmót á Akranesi
Haldin var kvöldvaka fyrir drengina þar sem Pollapönk hélt uppi stuðinu. Ljósm. Facebook Knattspyrnufélags ÍA. Heimamenn halda til mótssetningar.
Frá skrúðgöngunni.
FH-ingur reyndir að komast fram hjá leikmanni Skallagríms.
Það var ekkert gefið eftir í leik FH og Skallagríms. Þessum bolta þurfti að koma frá markinu. Drengir að fara yfir málin með dómara leiksins.
Markmaðurinn ósáttur að sjá eftir boltanum í netið. Boltinn nálgast. Einbeitingin í hámarki. Mikil spenna ríkti í keppendum fyrir mótið.
Það rigndi svolítið á föstudeginum en veðrið var fínt hina dagana.
Ljósm. Facebook Knattspyrnufélags ÍA.
KR fagnar sigri. Markvörður ÍR ver meistaralega.