Skessuhorn - 15.06.2016, Page 27
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2016 27
Krossgáta Skessuhorns
Máls-
háttur
Tóm
Öræfi
Glata
Ókunn
Ló
Ekran
Strengur
Matar-
poki
Afurðir
Rispa
Slugs
Iðinn
Gleðin
Sér-
hljóðar
Masa
Krafa
Bæta
Tregar
Temja
Málm-
doppur
Mylur
Tangi
Lykkja
Eins
um R
Tónn
Jarð-
eign
Fyrr
Þröng
Korn
Aldrað-
ur
Draum-
órar
Skussar
Röð
Stífla
2 8
Skordýr
Von
Heilar
6 Eink.st.
Hvílir
Mynni
Baðar
Hryssa
Blað
Niður
Hró
Þreyta
Upp-
hrópun
Gekk
4
Sjá
eftir
Einatt
10 Skortur
Hangir
Baktalar
Kropp
Orka
Féll
Bandið
Seigur
Hljómar
Borða
Púði
Urgar
Svik
Gjálfur
Rugl
Deigur
Form
Kopar
7 9 Faldi
Hirsla
Korn
Nirfill
Aðbúð
Sjó
Spor
Lall
Tiplar
Borðar
Rödd
Dvelja
Þófi
Spann
Afar
Tví-
hljóði
Rótar
Yfir-
hafnir
Kjáni
Óreiða
Sannur
Hróp
Vangá
1
Forboð
5 Eyða
Suddi
Fugl
Hlóðir
Keyrðu
Dunda
Fals
Fæði
Nakin
Laug
Grípa
Kvað
Ernina
Grind
Mögl
Púkar
3
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Þeir sem
vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfang-
ið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánu-
dögum. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að
fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að
tölvupósti sendi lausnir á: „Skessuhorn - krossgáta,
Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (athugið að póstleggja
þarf lausnir í síðasta lagi á föstudegi). Dregið verð-
ur úr réttum innsendum lausnum og fær vinnings-
hafinn bókargjöf frá Skessuhorni. Næstu vikur mun-
um við gefa bókina „Pétrísk íslensk orðabók með al-
fræðiívafi,“ eftir sr. Pétur Þorsteinsson.
Alls bárust 45 lausnir við krossgátunni í blaðinu í
síðustu viku. Lausnin var: „Nótnaskrif.“ Vinnings-
hafi er: Kolbrún Sveinsdóttir, Norðurreykjum, 311
Borgarnes.
Sumarlesari
vikunnar
Hinn árlegi sumarlestur er nú haf-
inn á Bókasafni Akraness fyrir 6-12
ára börn. Nýverið kom Gunnar
Helgason rithöfundur í heimsókn
og setti lesturinn formlega, en all-
ir krakkar eru velkomnir. Líkt og
fyrri ár er samstarf milli Skessu-
horn og bókasafnsins og munum
við birta viðtal við einn sumarles-
ara í viku, en áætlað er að sumar-
lesturinn standi til 5. ágúst. Fyrsti
sumarlesari vikunnar heitir Mikael
Daði og er átta ára gamall.
Hvaða bók varstu/ertu að lesa?
Bókin sem ég var að lesa heitir
Elsa-María og litlu pabbarnir.
Hvernig var/er hún?
Hún var skemmtileg og svolítið
öðruvísi.
Hvernig bækur finnst þér
skemmtilegastar?
Mér þykir skemmtilegast að skoða
myndasögur.
Hvar er best að vera þegar mað-
ur er að lesa?
Það er best að lesa bók þegar ég sit
í rúminu mínu.
Áttu þér uppáhalds bók eða
uppáhalds rithöfund?
Skúli skelfir er uppáhalds bókin
mín núna.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór?
Þegar ég verð stór þá ætla ég að
vera duglegur.
Tríó Danois heldur tvenna tónleika
á næstunni á Vesturlandi. Fyrri tón-
leikarnir verða í Ólafsvíkurkirkju
sunnudaginn 19. júní kl. 17.00 og
svo í Borgarneskirkju þriðjudag-
inn 21. júní kl. 20.00. Tríó Danois
var stofnað árið 2014 og hefur síð-
an komið fram á yfir tuttugu tón-
leikum í sjö löndum. Tríóið saman-
stendur af píanóleikurunum Mor-
ten Fagerli, Jónínu Ernu Arnar-
dóttur og hornleikaranum Pernille
Kaarslev. Tríóið spilar bæði klass-
íska tónlist eins og eftir E. Grieg og
Brennið þið vitar eftir Pál Ísólfsson,
en einnig nýja tónlist. Tríóið lofar
skemmtilegum tónleikum og eru
öll verkin kynnt munnlega. Áhuga-
samir geta kynnt sér meira um Tríó
Danois á fésbókarsíðu þeirra. Að-
gangseyrir er 2.000 kr. Enginn posi
á staðnum. -fréttatilkynning
Tríó Danois í
Ólafsvík og Borgarnesi
Frá tónleikum tríósins á síðasta ári í Riga. Ljósm. Uldis Muzikants.
Söngvaskáldin Úní og Jón Tryggvi
eru músíkalskt par búsett á Stokks-
eyri. Saman kalla þau sig UniJon.
Þau gáfu bæði út sólóplötur árið
2009, en hafa síðan samið og spil-
að sem dúett. Tónlist þeirra er á ró-
legu, þjóðlegu og rómantísku nót-
unum. UniJon hafa því verið róm-
uð fyrir ljúfsára og notalega stemn-
ingu, þar sem gestum gefst kostur á
að slaka á og sleppa tökum á amstri
hversdagsins. Dúettinn mun leika
sína eigin tónlist í bland við göm-
ul íslensk dægurlög. Tónleikarnir í
Pakkhúsinu í Englendingavík verða
fimmtudagskvöldið 16. júní og hefj-
ast klukkan 20:00. Aðgangseyrir er
2000 krónur. -fréttatilkynning
UniJon í Pakkhúsinu
Englendingavík
Hjónin Jón Jóel Einarsson og Þur-
íður Maggý Magnúsdóttir reka á
Arnarstapa ferðaþjónustufyrirtækið
Go West, eða „Út og vestur“ eins
og það kallast á íslensku. Undan-
farin ár hafa þau boðið upp á svo-
kallaða sólstöðugöngu í júní, þar
sem gengið er upp á Snæfellsjökul á
sumarsólstöðum og niður aftur. Að
sögn Jóns Jóels er það Þjóðgarður-
inn Snæfellsjökull sem stendur fyrir
göngunum en Go West heldur utan
um þær og hefur gert síðustu fjögur
ár, með góðum árangri. „Þetta eru
að jafnaði fjórir tímar upp og svo
tekur tvo til þrjá tíma að fara nið-
ur. Gangan hefst klukkan 20 þannig
að við erum komin niður um klukk-
an tvö til þrjú að nóttu. Við förum
18. júní ef veðurspáin verður ekki
þeim mun verri, annars frestum við
göngunni um einn dag. En það hef-
ur ekki klikkað góða veðrið síðan
við byrjuðum að leiða þetta, segir
Jón Jóel í samtali við Skessuhorn.
Hluti rennur til
björgunarsveitarinnar
Í ár verður sólstöðugangan gengin
í fimmta sinn og að sögn Jóns Jó-
els er þátttökugjaldinu stillt í hóf.
„Venjulega kosta ferðir á jökulinn
20 þúsund á mann en þessar ferð-
ir eru á 15 þúsund, sem er sérstakt
þjóðgarðsverð. Fimm prósent af
verðinu rennur til björgunarsveit-
arinnar Lífsbjargar í Snæfellsbæ,
það gerir það af öllum okkar göng-
um á jökulinn,“ útskýrir Jón Jóel.
Hann segir það misjafnt milli ára
hversu margir taki þátt í göngunni
og að mikilvægt sé að fólk skrái
sig tímanlega. „Við þurfum að fá
skráningu á vefinn, því við köllum
til leiðsögumenn eftir þörfum. Við
förum í línu og það þarf einn leið-
sögumann til að leiða átta manns í
línu. Við höfum verið allt frá fimm-
tán manns og upp í rúmlega fimm-
tíu þegar flest var.“
Vistvæn ferðaþjónusta
Hjónin eru nú á sínu áttunda ári í
ferðaþjónustunni og segir Jón Jóel
að það sé sígandi lukka í brans-
anum. „Við finnum fyrir vaxandi
áhuga. Við erum vistvæn ferðaþjón-
usta og leggjum mikið upp úr því
að fara um á vistvænum forsendum.
Það er liður í því að það renni eitt-
hvað af innkomunni til samfélags-
ins, eins og til björgunarsveitarinn-
ar af jöklaferðunum,“ segir hann.
Hann segir fyrirtækið bjóða upp á
ýmiskonar ferðir um Snæfellsnesið,
þá aðallega göngu- og hjólaferð-
ir. „Auk þess er ég með einn fal-
legasta bátinn á landinu sem ég er
að græja. Lítið víkingaskip þar sem
við bjóðum upp á ferðir frá Arnar-
stapa og Stykkishólmi. Þetta eru
stuttar ferðir, klukkutími eða tveir
þar sem siglt er með ströndinni og
hægt að virða fuglalífið fyrir sér frá
sjónum.“ Jón Jóel nefnir að einnig
sé boðið upp á nýjar tveggja daga
hjólaferðir. „Við erum að vinna í
því að koma þeim á kortið og þær
eru á mjög góðu verði. Þá hjólum
við á tveimur dögum kringum jök-
ulinn og innifalin er leiksýning,
matur og gisting hjá Kára í Frysti-
klefanum. Í þessum ferðum kynnist
fólk náttúrunni hérna á Snæfells-
nesi og hvernig samfélögin hafa lif-
að í þessu umhverfi í gegnum ald-
irnar. Lágmarksfjöldi er tíu í svona
ferð en nú eru sex skráðir þann
27. júní.“ Jón Jóel segir meirihluta
þeirra sem fari í ferðir á vegum fyr-
irtækisins séu erlendir ferðamenn.
„Ætli það séu ekki milli 90 til 100
prósent sem eru útlendingar. En
það er ekki þar fyrir, við viljum al-
veg endilega fá til okkar Íslendinga
líka.“ grþ
Jón Jóel í fyrstu miðnæturgöngu sumarsins ásamt þýsku pari.
Ganga á Snæfellsjökul
á sumarsólstöðum