Skessuhorn - 13.07.2016, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 20162
Íslandsmót yngri flokka í hestaíþróttum
hefst í Borgarnesi á morgun, fimmtudaginn
14. júlí klukkan 9:00. Rúmlega 530 skráðu
sig til leiks og hefjast leikar með forkeppni
í fjórgangi.
Á morgun verður austan og suðaustan 5
– 10 m/s og víða bjartviðri, en 10 – 15 og
dálítil rigning SV-lands um kvöldið. Hiti
10 – 17 stig og heitast á Norður- og Vest-
urlandi. Á föstudag; austan 8 – 15 m/s og
rigning. Hægari um kvöldið. Hitit breytist
lítið. Á laugardag verður fremur hæg aust-
læg eða breytileg átt. Skýjað að mestu og
skúrir víð og dreif. Hiti 10 – 19 stig. Á sunnu-
dag er útlit fyrir suðaustlæga átt. Dálítil
væta suðvestantil, en annars útkomulítið.
Hlýtt í veðri. Á mánudag má búast við suð-
lægri eða breytilegri átt, dálitlum skúrum
og fremur hlýtt.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns
„Stundar þú stangveiði á sumrin?“ Meiri-
hluti þeirra sem tóku þátt svöruðu „Nei,
aldrei“ eða heil 56%. Næst á eftir kom „Já,
en sjaldan“ með 30% og loks kom „Já, oft“
með 14%.
Í næstu viku er spurt:
Hvernig burstar þú tennurnar?
Hjördís Helga Ágústsdóttir er hundarækt-
andi og sú fyrsta á Íslandi til að rækta hvíta
Schafer hunda. Hjördís er Vestlendingur
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Strandveiðum
lokið í júlí
VESTURLAND: Strand-
veiðum júlímánðar lauk í gær,
þriðjudag, á svæði A, frá Eyja-
og Miklaholtshreppi til Súða-
víkur. Veiði á svæðinu hefur ver-
ið mjög góð og boltafiski verið
landað. Samkvæmt vef Fiski-
stofu hafði fyrir hádegi á mánu-
dag verið tilkynnt um löndun
á 634 tonnum af 1.023 tonna
júlíhámarki á A svæði. Stað-
an á öðrum svæðum er sú að á
svæði B, sem nær frá Ströndum
til Eyjafjarðar, hafði á mánudag
verið tilkynnt um 282 tonna
afla af 626 tonna hámarksafla.
Á svæði C, sem nær austur til
Hafnar, var búið að landa 194
tonnum af 661 tonna hámarki.
Veiðar á D svæði hafa þegar
verið stöðvaðar, en það er svæð-
ið sem nær frá Höfn og vestur
um til og með Borgarbyggð.
-mm/ Ljósm. af.
Kjördæmisþing
ákveður val á lista
Samfylkingar
NV-KJÖRD: Kjördæmis-
ráð Samfylkingarinnar í Norð-
vesturkjördæmi boðar til kjör-
dæmisþings fimmtudaginn 14.
júlí kl. 20 til að ákveða aðferð
við val á framboðslista. Fundað
verður á þremur stöðum, þ.e. í
Menntaskólanum í Borgarnesi,
Fræðslumiðstöð Vestfjarða á
Ísafirði og Samstöðusalnum á
Blönduósi í gegnum Skype til að
gera fólki kleift að sækja þingið
í sínu nærumhverfi. Stjórn kjör-
dæmisráðs í Norðvesturkjör-
dæmi hefur samþykkt tillögu
þess efnis að valið verði á fram-
boðslista með lokuðu flokksvali
í skuldbindandi reglum Sam-
fylkingarinnar um aðferðir við
val á framboðslista sem sam-
þykktar voru á flokksstjórnar-
fundi 2012. Kosning í fjögur
efstu sæti listans verði bindandi
og jafnræði kynja verði gætt
með paralista. Atkvæðagreiðsl-
an fer fram með rafrænni kosn-
ingu. „Stjórn kjördæmisráðs
hvetur alla félagsmenn til að
mæta á fundinn á sínu svæði og
taka þátt í undirbúningi og um-
ræðum vegna komandi alþing-
iskosninga,“ segir í tilkynningu.
-mm
Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpi@stolpiehf.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Búslóðageymsla � Ártíðabundinn lager � Lager � Sumar-/vetrarvörur
Frystgeymsla � Kæligeymsla � Leiga til skemmri eða lengri tíma
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpiehf.is
HAFÐU
SAMBAND
Búið er að loka og læsa almenn-
ingssalerni sem er við bílastæðið að
Glanna og Paradísarlaut í Norð-
urárdal. Staðurinn er afar fjölfar-
Fá ekki rekstrarfé og loka því
almenningssalernum við Glanna
inn ferðamannastaður enda um
að ræða eina af fallegustu perlum
Borgarfjarðar sem auk þess er vel
kynnt í öllum helstu ferðatímarit-
um. Á skilti við salernishúsið stend-
ur: „Eigendur Hreðavatnsjarðar-
innar sjá sér ekki fært að hafa sal-
ernið opið fyrir ferðamenn og aðra
sem eiga leið um svæðið þar sem
ekki hefur náðst samkomulag við
sveitarfélagið Borgarbyggð um
reksturinn.“
Viðar Þorsteinsson er í stjórn
golfklúbbsins Glanna sem þarna er
rekinn í hrauninu ofan við fossinn.
Hann segir landeigendur nú komna
í þá stöðu að hafa ekki fé til að
reka almenningssalerni, enda geti
það vart talist í þeirra verkahring.
„Það kostar um 400 þúsund krón-
ur á ári að halda úti slíkri þjónustu
sem felst í að halda svona salernis-
húsi opnu. Við höfum rætt við for-
svarsmenn sveitarfélagsins en ekki
fengið ásættanleg viðbrögð. Með-
al annars er okkur sagt að sveitar-
félagið styrki ekki slíka starfsemi
nema á friðlýstum stöðum. Borgar-
byggð skipaði starfshóp til að ræða
þennan augljósa skort sem er á sal-
ernisaðstöðu á fjölförnum stöðum í
héraðinu en sá hópur er bara rétt
að hefja sína vinnu og mun því ekki
hafa mikil áhrif á þjónustuna þetta
sumarið. Við getum því ekki unað
við þetta ástand og ætlum ekki að
opna þessi almenningssalerni að
nýju fyrr en búið verður að tryggja
pening til reksturs þeirra,“ sagði
Viðar. Aðspurður segir hann að í
golfskálanum sé fólki leyft að fara
á salerni, en þurfi að greiða eina
evru. Afar misjafnt sé eftir þjóðern-
um gesta hvort þeir greiði eða ekki.
mm
Að Glanna og Paradísarlaut koma þúsundir ferðamanna á ári.Þetta skilti mætir gestum í spreng við bílastæðið að Glanna og Paradísarlaut.
Eins og Skessuhorn greindi frá í
lok júní er stefnt á að reisa 300 fer-
metra þjónustumiðstöð við Arn-
arstapa. Er það fyrirtækið Snjó-
fell ehf, sem á og rekur Arnarbæ á
Arnarstapa, sem stendur fyrir þess-
ari uppbyggingu á svæðinu. Sverr-
ir Hermannsson, eigandi og fram-
kvæmdarstjóri Snjófells, tók fyrstu
skóflustungan af þjónustumiðstöð-
inni á fimmtudaginn, 7. júlí. Áætlað
er að þjónustumiðstöðin verði tek-
in í notkun í apríl 2017 en þar verð-
ur einnig veitingasala og salernis-
aðstaða. arg
Fyrsta skóflustungan tekin að
þjónustumiðstöð við Arnarstapa
Sverrir Hermannsson tekur fyrstu skóflustunguna að 300 fermetra þjónustumiðstöð á Arnarstapa. Ljósm. ki.