Skessuhorn - 31.08.2016, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 2016 27
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Auk
þess birtum við lausn á krossgátu síðustu viku.
Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausn-
arorð/in á netfangið: krossgata@skessuhorn.
is fyrir klukkan 15 á mánudögum. Athugið að
fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja með
lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu-
pósti sendi lausnir á: „Skessuhorn - krossgáta,
Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (póstleggja þarf
lausnir í síðasta lagi á föstudegi). Dregið verð-
ur úr réttum innsendum lausnum og fær vinn-
ingshafinn bókargjöf frá Skessuhorni; „Pétrísk
íslensk orðabók með alfræðiívafi,“ eftir sr. Pét-
ur Þorsteinsson.
Alls bárust 84 lausnir við krossgátunni í
blaðinu í síðustu viku. Lausnin var: „Orðagjálf-
ur.“ Vinningshafi er: Anna Hallgrímsdóttir,
Hamri, Þverárhlíð, 311 Borgarnesi.
Traust
Heiðin
Féll
Bjarg-
brún
2 Eins
Rögg-
semi
Fals
Freri
Finnur
leið
Húð
Lend
Kaðall
Mjöður
Píla
Elfur
Trýni
Hár
Kólfur
Atorka
Í hendi
Bardagi
Pípa
Andi
Kopar
2
Hempa
Gjöf
Viss
Digur
Kropp
Loka
Leikni
Ókunn
Neyttu
Hérað
Út
Erni
Rifa
Mælsk
4
Út-
vegaði
Kunni
Grjót
Kona
150
Erfiði
Spyr
Snúra
Gnauð
Kall
Þófinn
Kusk
Nefnd
Árás
Men
Ókyrrð
6 Rupl
Annars
Væta
Múli
Stök
Usli
Röð
Viðbót
Egndi
Hópur
Klerkur
Borð-
stokkur
Erfiði
Starf
Hress
ENN
Duft
Hús-
freyja
Logn-
alda
Armur
Tvíhlj.
Kl. 15
Hamast
Beljak-
ar
Sár
Hætta
1
Grikkur
Kæpa
Sífellt
Heilir
Nudda
Alda
3
7 Nisti
Samhlj.
3 Eins
Tvíhlj
Samtök
Eðli
Skrapa
saman
Leyfist
Deilur
Iðn
Tónn
Beisli
1001
5
Tal
Ótta
Standa
saman
Spil
Úrugt
Bók
Ryk-
korn
1 2 3 4 5 6 7
S
B A K S T U R B A N K A B
O F A N Ó N A R S J Ó Ð U R
Ð S Æ M D U Ú Ó L K R Á
O F T L J Ó Ð U R G O R T
R Á A D A M N E M A M Ó T
Ð R A N I N N S Í M A R
Ó T R Ú N A U T L Ó M A R
G A R V A N R A R I R Ú
V E R A K R I T A Ð S
R U K R Ú F L J Ó T
A N S H Á M U R Ö R L A R Ó
Á T A L Ó F A L A N A M
B Í L Í F I L L T Ó R Ó
R A L U R A T H U G U L L
O P U Á R A R Á L Á N A
T Í S T S L Á E L T I M
S N E R P A A T O R K A
F L E I R I R A U K B U R
O R Ð A G J Á L F U RL
A
U
S
N
Ú
R
S
ÍÐ
A
S
T
A
B
L
A
Ð
I
Mikið fjaðrafok varð í samfé-
laginu fyrir skömmu þegar vitnað-
ist að ókunnugir menn væru komn-
ir til Íslands með fulla vasa fjár og
vildu reisa sjúkrahús og hótel þar
sem starfað gætu um 1000 manns,
eitthvað með þátttöku reyndra ís-
lenskra fjárfesta. Allt var klappað og
klárt, staðsetning og samningar um
verk sem nemur um 40 milljörð-
um lá fyrir á einni viku og ímynd-
arsmiðir unnu sína vinnu með kurt
og pí. Málið þróaðist í umræðunni
í nokkra daga og það fóru að renna
á ýmsa tvær grímur. Hverjir voru
þessir aðilar? Hvaðan koma sjúk-
lingar? Hvert ætlar þessi risastofn-
un að sækja sér fagfólk? Ég tel að á
einmitt á því atriði hafi mjög brotið
hvað varðar almenningsálitið.
Þetta minnti okkur nefnilega
óþyrmilega á hvernig búið er að
starfsfólki í heilbrigðisþjónustu á Ís-
landi. Að öllum líkindum ættum við
ekki roð í harðsnúinn samkeppnis-
aðila á þessu sviði hér á heimavelli
eins og aðstæður eru í dag. Stað-
reyndin er auðvitað sú eins og allir
vita að við búum þegar við takmark-
aðan fjölda sérmenntaðra heilbrigð-
isstarfsmanna í heilbrigðisþjónust-
unni. Mín reynsla er sú að almennt
sé um mjög hæft fólk að ræða sem
á greiðan aðgang að spennandi og
góðum störfum í heilbrigðisþjón-
ustu víða um heim og það hefur
eðlilega freistað margra. Þau risa-
plön sem nú virðast runnin út í
sandinn um sinn eiga ekki að vera til
nokkurs annars en að vera tímabær
áminning um það að við þurfum að
hlúa betur að starfsfólki í heilbrigð-
isþjónustu á Íslandi. Það er liðin tíð
að menntað heilbrigðisstarfsfólk
líti á það sem sjáfgefið hlutskipti að
starfa í íslensku heilbrigðiskerfi um
aldur og ævi. Við erum í samkeppni
um hæfasta fólkið á heimsvísu. Í
umræðunni ber launamálin gjarnan
hæst og þau eru sérstakt umhugsun-
arefni, bæði almennt gagnvart heil-
bigðisstarfsfólki og svo hinsvegar
innbyrðis milli einstakra starfsstétta.
Þar ríkir talsvert misrétti, bæði með
tilliti til menntunar og ábyrgðar.
En það eru fleiri atriði sem við
þurfum að færa til betri vegar hvað
varðar starfsumhverfi heilbrigðis-
stétta. Vinnuaðstæður og búnað-
ur er víða algjörlega ófullnægjandi
með hliðsjón af
nágrannalönd-
um okkar. Þetta
atriði hefur ver-
ið til umræðu hér á landi um langa
hríð, einkum snúist um Landspít-
ala en víðast úti á landi hafa stofn-
anir verið algjörlega vanræktar sem
valdið hefur röskun og erfiðum
rekstri. Það eru auknar kröfur um
endur- og símenntun sem við þurf-
um líka að svara, námsleyfi og svig-
rúm til að kynna sér framfarir og
þróun í hverri sérgrein. Heilbrigð-
isþjónusta er síhvikult og lifandi
svið og það er mikið í húfi. Sérstakt
áhugaefni mitt er auðvitað starfs-
umhverfi þeirra sem búa og starfa á
landsbyggðinni. Starfseiningar eru
gjarnan litlar og mikil ábyrgð hvíl-
ir á fáum herðum. Þar eru mál oft
leyst með aðdáunarverðum hætti
við mjög þröngan kost. Staðreyndin
er nefnilega sú að á góðæristímabili
núverandi ríkisstjórnar hefur enn
fjarað undan heilbrigðisþjónustu á
landsbyggðinni. Það vantar nokkur
hundruð milljónir inn í rekstur heil-
brigðisstofnana og ákall, beiðnir og
greinargerðir til stjórnvalda frá öll-
um þessum stofnunum hafa engu
breytt. Yfirlýsingar stjórnvalda um
annað breyta þar engu. Til hvers
hefur þetta leitt? Svarið er einfalt,
fagfólk er færra, álagið hefur aukist,
þjónusta hefur dregist saman, van-
skil aukist og eru víða komin á al-
varlegt stig. Þetta er óviðunandi fyr-
ir íbúa á landsbyggðinni sem þó hafa
sýnt mikið langlundargeð, þeir eru
þó stöðugt uggandi. Heilbrigðis-
þjónusta er ein af meginstoðunum
í hverju samfélagi og óbreytt ástand
ýtir undir búferlaflutninga. Hug-
urinn hvarflar að hinu margtuggða
hugtaki landsbyggðarstefna stjórn-
valda. Eiga íbúar virkilega að sætta
sig við þessa birtingarmynd? Krafan
er vitanlega sú að þeirri þróun sem
við höfum upplifað síðustu ár verði
snúið við á raunverulegan hátt, að
því munu jafnaðarmenn vinna. Það
er enn hægt en við höfum takmark-
aðan tíma.
Guðjón S. Brjánsson
Höfundur er forstjóri Heilbrigðis-
stofnunar Vesturlands og frambjóðandi
í forvali Samfylkingarinnar í NV
kjördæmi.
Gerum betur í
heilbrigðismálum
Pennagrein
Pennagrein Pennagrein
Það var mik-
ið gleðiefni fyr-
ir sjálfstæðis-
menn í Norð-
vesturkjördæmi
þegar Haraldur
Benediktsson gaf kost á sér til þess
að leiða lista flokksins í kjördæminu.
Eftir umrót liðinna ára í stjórnmál-
um hafa margir reyndir stjórnmála-
menn horfið á braut og forystustörf
sem þessi í hugum margra ekki ýkja
eftirsóknarverð.
Ég hef um árabil fylgst náið með
störfum Haraldar. Hann er ekki
maður sviðsljóssins heldur vinnur
sín störf af festu og að vel athuguðu
máli. Hann hefur komið að mörg-
um stórum málum sem þingmaður
og alltof langt mál að telja þau öll
upp.
Ég get þó ekki stillt mig um að
nefna eitt dæmi. Framganga hans í
málum er tengjast úrbótum í fjar-
skiptum er stórvirki. Að hægt væri
að kippa stærstum
hluta hinna dreifðu
byggða inn í nú-
tímann með ljós-
leiðaravæðingu var
draumur sem fæstir
töldu að gæti ræst á
jafnstuttum tíma og
raunin er að verða.
Haraldur hefur
með störfum sín-
um sýnt að hann er
traustsins verður.
Sjálfstæðismenn
eiga því að treysta
honum og kjósa
hann til þess að
leiða lista flokks-
ins í Norðvestur-
kjördæmi.
Gunnar Sigurðsson
Höf. er fyrrverandi bæjarfulltrúi á
Akranesi.
Harald í fyrsta sæti
Sjálfstæðismenn í Norðvesturkjör-
dæmi velja á laugardaginn það fólk
sem leiða mun lista þeirra í alþing-
iskosningunum þann 29. októ-
ber nk. Ljóst er að mjög marg-
ir reynslumiklir þingmenn hverfa
af þingi að þessu sinni. Því er afar
mikilvægt að til setu á listanum
veljist fólk með góðan og traust-
an bakgrunn, fjölþætta reynslu og
geti með því endurspeglað þær
ólíku aðstæður sem ríkja í þessu
víðfema kjördæmi.
Haraldur Benediktsson var
kjörinn þingmaður kjördæmis-
ins í kosningunum 2013 og hafði
þá þegar mikla reynslu í forystu-
störfum innan sinnar stéttar. Með
miklu starfi sínu m.a. bæði í at-
vinnuveganefnd og fjárlaganefnd
hefur hann öðl-
ast traust þing-
manna bæði í
stjórn og stjórn-
arandstöðu og
er þegar orðinn með áhrifamestu
þingmönnum okkar. Hann hef-
ur því á skömmum tíma öðlast þá
reynslu sem nauðsynleg er þeim
sem taka vilja að sér forystustörf í
stjórnmálum.
Ég skora á sjálfstæðismenn í
Norðvesturkjördæmi að veita
Haraldi stuðning til þess að leiða
framboðslista flokksins í kjördæm-
inu. Hann er traustsins verður.
Kristinn Jónasson
Höf. er bæjarstjóri Snæfellsbæjar.
Með traustið að vopni