Skessuhorn


Skessuhorn - 07.09.2016, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 07.09.2016, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 20162 framar að endurbyggja. Búið er að mála að mestu og næst á dag- skrá er að setja upp þakið og inn- rétta. Við erum byrjaðir að fram- leiða aftur í hluta húsnæðisins. Það er stutt í að full starfsemi geti haf- ist aftur, vonandi svo snemma sem í næstu viku,“ segir Birgir ánægð- ur. Hann segir ekki hafa komið til greina annað en að endurbyggja og hefja fulla starfsemi að nýju. „Menn voru búnir að bíða nógu lengi eftir vörunum sínum þannig að það kom ekki annað til greina en að spýta í og halda áfram af meiri krafti en nokkru sinni fyrr. Það var allt of mikið að gera þeg- ar það brann. Svona lagað gerist náttúrulega alltaf á versta tíma en það var sérstaklega mikið að gera hjá okkur um þetta leyti,“ segir hann. „Við höfum með herkjum náð að sinna þeim verkefnum sem við erum með á svæðinu. Til dæm- is höfum við haldið áfram með verkefni tengd vélum til vinnslu á Sæbjúgum. Ég finn fyrir mikl- um áhuga um það verkefni eins og staðan er núna vegna þess hve langt við höfum náð að þróa þær vél- ar. Við erum tveir að fara til Nor- egs á næstu dögum að hitta fjár- festa varðandi sölu á hönnun véla til vinnslu á sæbjúgum og hreinsi- búnaði. Einnig höfum við fundið fyrir miklum áhuga á þessum vél- um frá fyrirtækjum í Færeyjum og Kanada,“ segir Birgir. Segir stuðninginn ómetanlegan Hann segir tjón af völdum brun- ans vera töluvert. „Beint fjár- hagslegt tjón hleypur á milljón- um, bæði sem fyrirtækið varð fyr- ir og líka ég persónulega,“ segir Birgir, en hann átti sjálfur bílinn sem kviknaði í og var nýbúinn að setja í hann nýja vél. Hann kveðst ekki vongóður um að fá sitt pers- ónulega tjón bætt en hvað varðar tjón fyrirtækisins segir hann þau mál inni á borði tryggingafélags- ins. „Tryggingamálin eru bara í skoðun og vinnslu. Ég hef bara mætt velvild, skilningi og hlýju hjá tryggingafélaginu. Það hefur gert daginn bjartari,“ segir Birgir sem viðurkennir að bruninn hafi ver- ið mikið áfall. Þrátt fyrir að end- urbyggingin gangi vel og hann sé bjartsýnn á komandi tíð segir hann fyrstu dagana eftir brunann hafa verið mjög erfiða. „Fyrstu dagana á eftir var maður eiginlega kominn á það að gefast upp og hætta. En svo er það þannig að blóðið fer að renna í manni aftur og maður ger- ir það ekki,“ segir Birgir og þakk- ar það ekki síst þeim stuðningi sem honum var sýndur í kjölfar brun- ans. „Stuðningurinn sem ég fékk frá konunni minni, sem var klett- urinn minn í þessu öllu saman, fjölskyldunni, og öðrum atvinnu- rekendum og fleira fólki á svæðinu er ómetanlegur. Sævar Jónsson hjá Blikksmiðju Guðmundar, Eym- ar Einarsson sem á veiðarfæra- geymslu við hliðina á Jötunstáli, Gísli Jónsson, Eyþór Frímannsson hjá Topp Útliti, Matthías Harðar- son hjá Felix-fiski, strákarnir mínir hjá Jötunstáli og fleiri hafa stappað í mann stálinu þegar maður var al- veg að bugast. Ég þakka þeim kær- lega fyrir alla þeirra aðstoð og vel- vilja. Ég gæti ekki verið lánssamari með hvað það er búið að ganga vel að púsla þessu saman. Maður nær ekki að komast svona áfram nema hafa gott fólk í kringum sig. Ég hef fundið að á Akranesi standa menn saman þegar eitthvað kemur upp á,“ segir hann. kgk Ökumenn ættu að hafa það í huga að sauðfé getur leynst víða við vegi á þess- um árstíma þegar fé kemur af afréttum. Því er um að gera að haga ökuhraða sín- um samkvæmt því og skerpa á athygl- inni. Annars er líflegur tími framund- an hjá bændum og búaliði. Um næstu helgi verða fyrstu fjárréttir í landshlut- anum og því líklegt að margir Vestlend- ingar bregði sér í réttir. Á fimmtudag verður austan 5-13 m/s og síðar norðaustan 8-15. Rigning með köflum, talsverð úrkoma fyrir norðan og austan síðdegis. Hiti 7 til 13 stig. Á föstu- dag verður sunnan 5-13 m/s og skúrir, en bjart með köflum norðanlands. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast fyrir norðan. Á laugar- dag er útlit fyrir norðaustanátt og rign- ingu, einkum austan til á landinu. Hiti 7 til 13 stig, mildast á Suður- og Vestur- landi. Á sunnudag og mánudag er von á breytilegri átt og rigningu með köflum. Í síðustu viku var spurt á vef Skessu- horns: „Hvað er best við haustið“. Flestir lesendur sögðu „litirnir“, eða 30% þeirra sem svöruðu. „Rökkrið“ segja 22% vera best við haustið. 13% lesenda finnst ekkert gott við haustið en 11% þykir rútínan best. 8% svöruðu „ný tækifæri“ og 7% „tími mataraðfanga“. Einungis 3% segja eitthvað annað vera best við haustið. Í næstu viku er spurt? „Hvaða landshluti þykir þér fallegastur“ Vestlendingar vikunnar eru allir gangnamenn sem þessa dagana halda til fjalla til smölunar en fyrstu fjárréttir eru framundan. Til minnis Veðurhorfur Spurning vikunnar Vestlendingur vikunnar Leiðréttur myndatexti HVALFJSV: Í myndasyrpu frá Hvalfjarðardögum sem birt var í Skessuhorni í síðustu viku var birt mynd frá myndlistar- sýningu að Heynesi 2. Und- ir myndinni stóð að þar væru hún væri frá sýningu Elínborg- ar Halldórsdóttur, en hið rétta er að hún var frá sýningu Nínu Stefánsdóttur í skemmunni. Myndlistarsýning Elínborg- ar var hins vegar í hesthúsinu. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum og mynd Nínu birt aftur hér að ofan. -kgk Nýr verkefnis- stjóri umhverfis- vottunar S T Y K K I S H : N á t t ú r u s t o f a Vesturlands hef- ur ráðið nýjan starfsmann til að sinna Earth- Check umhverf- isvottunarverk- efni sveitarfélag- anna fimm á Snæfellsnesi. Það er líffræðingurinn Birna Heide Reynisdóttir, sem undanfarið hefur unnið sem sérfræðingur í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli og er í meistaranámi í umhverfis- stjórnun meðfram starfi. Hún flyst til Stykkishólms og mun hefja störf á Náttúrustofunni 1. október nk. Valið stóð á milli ellefu vel menntaðra umsækj- enda og varð þetta niðurstað- an eftir ítarlegt ráðningarferli, segir í tilkynningu frá Náttúru- stofu Vesturlands. -mm Flokksval Samfylk- ingar framundan NV-KJÖRD: Fimmtudaginn 8. september hefst flokks- val Samfylk- ingarinnar í Norðvestur- kjördæmi vegna alþingiskosn- inganna 29. október nk. Kos- ið verður um tvö efstu sæti listans. Þrír eru í kjöri og gefa allir kost á sér í efsta sæti. Guð- jón S Brjánsson forstjóri HVE og Ólína Kjerúlf Þorvarðar- dóttir alþingismaður gefa ein- ungis kost á sér í 1. sæti listans, en Inga Björk Bjarnadóttir há- skólanemi gefur kost á sér í 1.-2. sæti. Kosið verður raf- rænni kosningu með Íslykli og rafrænum skilríkjum. Sam- kvæmt upplýsingum frá kjör- stjórn eru einungis skráðir félagsmenn í Samfylkinguna (fyrir 3. september sl.) sem geta tekið þátt í kosningunni. Eldri borgarar, 67 ára og eldri, eiga að hafa fengið kjörgögn í pósti. Kjörseðlum þarf að vera búið að skila á talningarstað í síð- asta lagi klukkan 17:00 á laug- ardaginn 10. september. Kosn- ingu lýkur á sama tíma. At- kvæða verða talin á Hallveigar- stíg í Reykjavík og fyrstu tölur birtar klukkan 18:00 sama dag. -mm Nú styttist í að starfsemi hefjist af fullum krafti í vélsmiðju Jöt- unstáls á Akranesi eftir brunann í byrjun síðasta mánaðar. Hreins- unarstarf hófst nokkrum dögum eftir brunann og þessa dagana er unnið hörðum höndum við end- urbyggingu vélsmiðjunnar. Birgir Snæland, eigandi og framkvæmda- stjóri, sagði í samtali við Skessu- horn fyrir helgi að sú vinna gengi vel. „Það hefur gengið vonum Húsnæði Jötunstáls við Hafnarbraut 16 á Akranesi fyrir helgi. Birgir Snæland, eigandi og framkvæmdastjóri Jötunstáls. Ljósm. úr safni. Endurbygging Jötunstáls gengur vonum framar Ýmsar framkvæmdir hafa að und- anförnu staðið yfir í Stykkishólmi á vegum einkaaðila, fyrirtækja eða bæjarfélagsins. Stærsta einstaka verkið er bygging við grunnskól- ann þar sem Amtsbókasafnið og skólabókasafnið er sameinað undir einu þaki. Með þeirri framkvæmd mun aðstaða grunnskólans verða bætt verulega í anda Skólastefnu Stykkishólmsbæjar sem nýlega var samþykkt. Þá er m.a. búið að mal- bika Víkurgötuna og gatnamót við Aðalgötu og Borgarbraut lagfærð og gangstéttar endurnýjaðar. Í síð- asta blaði sögðum við frá fram- kvæmdum við Olís þar sem verið er að skipta út olíutönkum. Loks var nú í vikunni unnið við reis- ingu á parhúsum sem Þórsnes og Sæfell kaupa en verktaki er Ásgeir J Ásgeirsson. Sumarliði Ásgeirs- son ljósmyndari tók meðfylgjandi myndir fyrir Skessuhorn. Veðr- ið lék við framkvæmdamenn enda gengu þessi verk hratt og vel. mm/ Ljósm. sá. Framkvæmdagleði í Stykkishólmi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.