Skessuhorn - 07.09.2016, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2016 13
Áramót í útgerðinni
Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Auglýst er eftir umsóknum um styrki til greiðslu
fasteignaskatts til aðila með starfsemi á sviði menningar-,
íþrótta-, æskulýðs-, tómstunda- eða mannúðarmála.
Sótt er um rafrænt á heimasíðu
Akraneskaupstaðar á þar til gerðu eyðublaði.
Umsóknarfrestur er til og með 18. september 2016.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.akranes.is
Styrkir til greiðslu fasteignaskatts 2016
Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Tjaldsvæði í Kalmansvík
Bæjarstjórn Akraness hefur samþykkt lýsingu aðalskipulagsbreytingar
fyrir tjaldsvæði í Kalmansvík skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Gert
er ráð fyrir að óbyggðu svæði í Kalmansvík verði breytt í opið svæði til
sérstakra nota þar sem starfrækt verður ferðaþjónustutengd starfsemi
s.s. tjaldsvæði og smáhýsi. Jafnframt verður unnið deiliskipulag fyrir
svæðið þar sem nánari grein verður gerð fyrir einstökum þáttum.
Lýsingin er á heimasíðu Akraneskaupstaðar www.akranes.is og einnig
er hægt að nálgast hana í þjónustuveri kaupstaðarins að Stillholti 16-18.
Ábendingar varðandi tillögugerðina eiga að vera skriflegar og
berast fyrir 22. september 2016 í þjónustuver Akraneskaupstaðar
Stillholti 16-18 eða á netfangið skipulag@akranes.is
Lýsing á breytingu á aðalskipulagi Akraness 2005-2017
Hausta tekur og við förum að huga
að því að geyma mat til vetrarins
Skyrmysa er tilvalin til að sýra
slátrið og ýmsan annan mat.
Fáanleg í 2,5, 5 og 10 ltr brúsum
Hægt að panta í Ljómalind í síma 437 1400 eða
á Erpsstöðum í síma 868 0357
Einnig er hægt að panta á netfanginu erpur@simnet.is
www.erpsstadir.is Rjómabúið á facebook.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
„Mér líst vel á komandi vertíð,“
segir Friðbjörn Ásbjörnsson fram-
kvæmdastjóri Fiskmarkaðs Snæfells-
bæjar í samtali við Skessuhorn. „Það
er gott ástand á fiskistofnunum hér
við land og aldrei hefur mælst eins
stór hrygningarstofn í þorski eins og
í síðustu mælingu Hafró. Sá stærsti
frá upphafi mælinga. En það voru
vonbrigði að auka ekki meiri kvóta
af þorski, ýsu og skarkola,“ segir
Friðbjörn. Hann segir það geta vald-
ið vandræðum hjá línubátum þeg-
ar líður á kvótaárið að löngukvótinn
hafi verið minnkaður um 43%. „Auk
þess er krónan búin að styrkjast mik-
ið undanfarið, sérstaklega gagnvart
pundinu. Það lítur því allt út fyr-
ir lækkun á fiskverði en ég átta mig
ekki alveg á hversu mikil hún getur
orðið.“ af
Bjartsýnn fyrir komandi vertíð
Friðbjörn Ásbjörnsson framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar er hér til
hægri, ásamt Bárði Guðmundssyni stjórnarmanni.
Strandveiðitímabili sumarsins lauk
um miðjan síðasta mánuð. Í sum-
ar veiddu strandveiðibátarnir 9.146
tonn og voru landanir 14.942. Alls
voru gefin út 670 leyfi til strandveiða,
22 leyfum fleiri en á síðasta ári. Þetta
kemur fram á vef Fiskistofu. Mest
var veitt af þorski eða rúmlega 8.500
tonn, sem jafngildir 93,3% af heild-
arafla sumarsins. Næstmest var veitt
af ufsa, eða 461 tonn. Afli í öðrum
tegundum var óverulegur. Frá því að
strandveiðar hófust vorið 2009 hef-
ur meðalafli í róðri aldrei verið meiri
en á nýliðinni vertíð. Var meðalafl-
inn 614 kg og jókst um 6,8% milli
vertíða. Aflahæsti bátur strandveiða
á þessari vertíð er Þorbjörg ÞH-25,
sem gerð var út frá Raufarhöfn, með
rúmlega 34,7 tonn. grþ/ Ljósm. af.
Meðalafli aldrei meiri en á
liðinni strandveiðivertíð
Páll Ingólfsson framkvæmdastjóri
Fiskmarkaðs Íslands segist vera
bjartsýnn á komandi vertíð. „En það
er erfitt að spá í verðþróun og það
setur að mér kvíða hvað það snert-
ir,“ segir Páll og bætir við að með
lækkun fiskverðs þá hafi það áhrif á
bæði sjómenn og útgerðarfyrirtækin.
Páll segir að Fiskmarkaður Íslands
hafi á síðasta kvótaári selt 36 þúsund
tonn af fiski og á hann von á svipuðu
magni á þessu kvótaári. „Það er góður
afli heima við en ég held að íslensk-
ur sjávarútvegur sé að fara í gegnum
þrengingar ef verðþróun á fiski mun
fylgja styrkingu krónunnar. Ég vona
auðvitað að svo verði ekki en ég held
að það verði raunin, að krónan haldi
áfram að styrkjast,“ segir Páll að lok-
um. af
Líst vel á vertíðina en hefur
áhyggjur af verðþróun
www.smaprent.is - s: 823-5827
Vinnupeysa
3.990
kr,-
Eiríkur