Skessuhorn


Skessuhorn - 07.09.2016, Blaðsíða 19

Skessuhorn - 07.09.2016, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2016 19 Velferð - atvinnulíf - samgöngur Fólkið fyrst! www.xs.is Kemi ehf. kemi@kemi.is Tunguhálsi 10 110 Reykjavík Sími: 415 4000 www.kemi.is ER HESTHÚSIÐ KLÁRT FYRIR VETURINN? Krafthreinsir pH 14 - “ ” Nova X-Dry - “ ” Virkon S “ ” Fjölbrautaskóli Vesturlands fékk nýverið úthlutað 15 milljóna króna styrk til umhverfisverkefnis sem nefnist ,,Think, Act, Work Sus- tainable.“ Kemur styrkurinn úr menntahluta Erasmus+ mennta- og æskulýðsáætlun ESB. Samstarfs- skólar FVA í verkefninu eru frá Ít- alíu, Spáni, Þýskalandi og Frakk- landi. „Markmiðið með verkefninu er að auka umhverfisvitund nem- enda og hvetja til betri nýtingar hráefna og sjálfbærni á sem flestum sviðum. Bæði kennarar og nem- endur taka þátt í verkefninu,“ seg- ir í tilkynningu frá Rannís, sem út- hlutar styrkjum úr sjóðnum. Helena Valtýsdóttir verkefnis- stjóri hjá FVA segir að verkefni þetta snúist um sjálfbærni og er ætlað að fá þátttakendur til að verða með- vitaðri um umhverfi sitt og á hvern hátt þeir geta orðið sjálfbærari í daglegu lífi og í vinnu. „Við leggj- um að sjálfsögðu áherslu á endur- nýtanlega orku, endurvinnslu, end- urnotkun og að draga úr sóun. Síð- asta ár var skólinn í samstarfi við slóvaskan skóla þar sem fjallað var um sambærileg málefni og með- al annars var kenndur umhverfisá- fangi við skólann sem nemendur í því verkefni sóttu,“ segir Helena. mm FVA hlýtur veglegan styrk vegna umhverfisverkefnis Norræna skólahlaupið hófst á föstu- daginn. Það er árlegt verkefni sem grunnskólum á Norðurlöndunum býðst að taka þátt í en hér á landi er það í umsjón Íþrótta- og Ólympíu- sambands Íslands. Markmiðið með Norræna skólahlaupinu er að hvetja nemendur til að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Á síðasta ári tóku rúmlega 15.000 grunnskólanemendur frá 63 skólum á Íslandi þátt í hlaupinu og hlupu alls um 40 hringi í kringum landið, en hægt er að velja um þrjár vegalengdir 2,5, 5 og 10 kílómetra. mm Norræna skólahlaupið hafið Rannís hefur úthlutað 283 milljón- um króna til 14 fjölþjóðlegra sam- starfsverkefna úr menntahluta Eras- mus+ mennta- og æskulýðsáætlunar ESB. Hæsta styrkinn hlaut Land- búnaðarháskóli Íslands, rúmar 38 milljónir króna til verkefnisins Safe Climbing. Það er á sviði skógrækt- ar og fjarkennslu. Þróa á námsefni um umhirðu skóga með áherslu á öryggisatriði og tækni við trjáfell- ingar. Markhópurinn eru nemend- ur og skógræktarfólk sem starfar í greininni. Sérstök áhersla er lögð á aðgengilegt rafrænt námsefni sem að miklu leyti verður byggt upp á sjónrænu efni. Stefnt er að því að nemendur og kennarar fái evrópska vottun að námi loknu. mm Landbúnaðarháskólinn hlýtur styrk til skógræktar og fjarkennslu Forsvarsmenn verkefnisins Safe Climbing: Björn Þorsteinsson, rektor Land- búnaðarháskóla Íslands, Björgvin Eggertsson verkefnisstjóri, Ágústa Erlings- dóttir verkefnisstjóri, Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Landskrifstofu Erasmus+ á Íslandi, Guðríður Helgadóttir forstöðumaður og Hannes Snorrason frá Vinnueftirliti ríkisins.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.