Skessuhorn - 07.09.2016, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 201622
Eitt af verkefnum björgunarsveitar-
innar Lífsbjargar og unglingadeildar-
innar Drekans í Snæfellsbæ er dósa-
söfnun. Farið er reglulega í dósasöfn-
un á Hellissandi og í Rifi og safnast
alltaf vel. Einnig hafa staðið gámar
við verslanir á svæðinu og tjaldsvæð-
in sem vel hefur safnast í. Um mikil-
væga fjáröflun sveitarinnar er að ræða
og er ágóðinn af dósasöfnunum nýtt-
ur í rekstur sveitarinnar og unglinga-
deildarinnar. Á dögunum var svo
komið saman í Björgunarmiðstöð-
inni Von í Rifi og einnota umbúðirn-
ar taldar svo hægt væri að skila þeim í
endurvinnslu og fá peninga fyrir. Það
var líf og fjör við talninguna og all-
ir hjálpuðust að. Að þessu sinni voru
taldar rúmlega 19 þúsund umbúðir
sem verða svo sendar í endurvinnslu.
Er þetta afrakstur sumarsins og tvær
safnanir þar sem gengið var í hús.
Björgunarsveitin Lífsbjörg og Drek-
inn vilja koma á framfæri þakklæti til
bæjarbúa og ferðalanga í Snæfellsbæ
fyrir framlag þeirra.
þa
Söfnuðu nítján þúsund
dósum og flöskum Víða fraus á landinu í síðustu viku í
tvær eða þrjár nætur, mest þó í inn-
sveitum. Mældist frostið mest 3,4
gráður í Húsafelli í Borgarfirði að-
fararnótt fimmtudags. Gróður föln-
ar við þetta hratt eftir gott sumar
og nú er útlit fyrir að aðalbláber og
bláber séu víða ónýt. Krækiber þola
sem fyrr smávegis frost.
Meðfylgjandi mynd tók Kristrún
Snorradóttir listakona á Laxeyri í
Hálsasveit síðastliðinn fimmtudag.
Lýsir myndin ágætlega stemning-
unni í morgunsárið þegar bíleig-
endur þurftu að skafa.
mm
Næturfrostin byrjuð
Verslunin Heimahornið í Stykk-
ishólmi hefur kvatt Hólmara og
aðra viðskiptavini en versluninni
var lokað síðastliðinn miðviku-
dag. Á föstudeginum opnuðu svo
nýir eigendur dyrnar undir nafn-
inu Mæðgur og Magazín. Mæðg-
urnar Linda Bergmann og Bryn-
hildur Inga Níelsdóttir standa nú
vaktina og heilsa viðskiptavinum
með brosi á vör. Verslunin verður
með svipuðu sniði og Heimahorn-
ið, segir Linda „Við viljum þjónusta
sem flesta, bjóðum áfram lágt vöru-
verð eins og verið hefur og gott úr-
varl með nýjum vindum og ferskum
blæ.“ Verslunun hefur fengið góðar
viðtökur og nóg að gera hjá mæðg-
unum þessa fyrstu daga.
jse
Mæðgur og Magazín er ný
verslun í Stykkishólmi
Linda Bergmann og Brynhildur Inga.
Í síðustu viku var gerð múrviðgerð
á Krossvíkurvita á Jaðarsbökkum á
Akranesi. Krossvíkurviti var reistur
1937 og er betur þekktur á Skagan-
um sem „Guli vitinn.“ Vitinn á því 80
ára afmæli á næsta ári en Akranesviti
á Breið á einnig stórafmæli sama ár
en þá verða 70 ár síðan hann var tek-
inn í notkun. Krossvíkurviti var lagð-
ur niður sem hafnarviti árið 1986 og
breytt í fremra leiðarljós sem markar
innsiglinguna inn í Akraneshöfn og
er leiðarljósið ofan á vitanum.
grþ / Ljósm. Hilmar Sigvaldason.
Gert við Krossvíkurvita
Í síðustu viku var hafnarsvæðið í Rifi
malbikað að hluta til. Einnig var
Engihlíð og planið við heilsugæsl-
una í Ólafsvík malbikað. Það var fyr-
irtækið Kraftfag sem sá um fram-
kvæmdirnar á vegum Snæfellsbæj-
ar. Meðfylgjandi ljósmynd var tekin
þegar malbikað var við hafnarsvæðið
í Rifi. grþ / Ljósm. Snæfellsbær.
Malbikað í Snæfellsbæ
Kjörstjórn Vinstri hreyfingarinn-
ar græns framboðs í Norðvest-
urkjördæmi ákvað í síðustu viku
að senda út ný kjörgögn til 1102
félagsmanna í kjördæminu vegna
forvals. Áður sendir kjörseðlar
eru því ógildir og verða þeir nýju
prentaðir með öðrum lit. Ástæðan
er sú að leiðbeiningar sem fylgdu
kjörgögnunum voru ekki nægjan-
lega ítarlegar og gátu valdið mis-
skilningi. Forvalið átti að hefj-
ast 31. ágúst og standa til 5. sept-
ember, en tímasetning nýs forvals
lá ekki fyrir í síðustu viku. Sam-
kvæmt heimildum Skessuhorns
stóð til að póstleggja ný kjörgögn í
þessari viku.
mm
Frestuðu forvali vegna upplýsingaskorts