Skessuhorn


Skessuhorn - 07.09.2016, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 07.09.2016, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 20168 Fengu enn meiri stuðning STYKKISH: Sagt var frá gengi framkvæmda við nýja reiðskemmu Hesteigendafélags Stykkishólms í Skessuhorni um miðjan síðasta mánuð. Þar var greint frá því að bæjaryfirvöld hefðu styrkt hest- eigendafélagið um 5,7 milljón- ir vegna gatnagerðar- og bygg- ingarleyfisgjalda vegna bygging- ar reiðskemmunnar. Þar með var hins vegar ekki öll sagan sögð. Sveitarfélagið veitti hesteigenda- félaginu beinan fjárstyrk að verð- mæti 12 milljónir króna vegna byggingar reiðskemmunnar, auk tæplega 5,7 milljóna styrks vegna gatnagerðar- og byggingarleyfis- gjalda eins og áður segir. -kgk Ræða útgáfu frístundakorta BORGARBYGGÐ: Minnis- blað sviðsstjóra fjölskyldusviðs Borgarbyggðar, Önnu Magn- eu Hreinsdóttur, var lagt fram á fundi byggðarráðs fimmtudag- inn 1. september. Anna mætti til fundarins og gerði grein fyrir til- lögum sínum að reglum um frí- stundakort fyrir börn og ung- menni á aldrinum 6 til 18 ára. Með útgáfu frístundakorta myndi Borgarbyggð styrkja frístunda- iðkun barna og ungmenna með framlagi að upphæð 20 þúsund krónur á ári. Greitt yrði tvisvar á ári, í desember fyrir haustönn og maí fyrir vorönn, tíu þúsund krónur í hvort skipti. Markmið- ið er að hvetja börn og ungmenni til að taka þátt í frístundastarfi í Borgarbyggð. Hægt væri að nýta kortið í allt skipulagt frístund- astarf í sveitarfélaginu sem stund- að er undir leiðsögn þjálfara eða leiðbeinanda samfellt í minnst tíu vikur. Á það t.d. við um allt íþróttastarf stundað á vegum við- urkenndra íþróttafélaga, nám í tónlistar- eða dansskóla, skáta- starf og fleira. Einnig væri hægt að nýta kortið til að kaupa á nám- skeiði í líkamsræktarstöð og ár- skorti fyrir ungmenni eldri en 16 ára. Í minnisblaði Önnu kemur fram að 653 börn og ungmenni hafi verið búsett í Borgarbyggð í janúar síðastliðnum. Myndu þau öll nýta sér frístundakortið yrði kostnaður sveitarfélagsins vegna útgáfu þess árið 2017 rétt rúmar 13 milljónir króna sem gera þyrfti ráð fyrir í fjárhagsáætlun. „Nýt- ing frístundakorta helst í hendur við hversu þröngar skorður þeim eru settar. Ef reglur Borgar- byggðar verða eins og meðfylgj- andi tillaga, þá má reikna með góðri nýtingu á kortinu,“ seg- ir í minnisblaðinu. Byggðarráð samþykkti að vísa tillögu um frí- stundakort til fræðslunefndar en lagði áherslu á að öll umsýsla um frístundakortin yrði rafræn. -kgk Grunnskóla- kennarar felldu að nýju LANDIÐ: Meirihluti félags- manna í Félagi grunnskóla- kennara felldi nýjan kjarasamn- ing við Samband íslenskra sveit- arfélaga í atkvæðagreiðslu sem stóð dagana 31. ágúst til 5. sept- ember. Niðurstaða atkvæða- greiðslunnar var sú að 39,67% vildu samþykkja samninginn en 57,46% voru á móti. Tæp 3% atkvæðaseðla voru auðir. Á kjörskrá voru 4513 en 3028 greiddu atkvæði, eða 67,1% félagsmanna. -mm Lög gegn ofur-bónus- greiðslum ALÞINGI: Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga sem takmarkar bónus- greiðslur eignarhaldsfélaga gömlu bankanna. Lagt er til að umrædd félög falli undir ákvæði laga um fjármálafyrir- tæki en samkvæmt lögunum eru fjárhæðir bónusgreiðslna takmarkaðar við 25% af árs- launum starfsmanna. „Eng- in rök standa til þess að und- anskilja umrædd félög þeim reglum sem gilda um banka og eigendur þeirra. Greiðslur hárra bónusa í fjármálakerf- inu fyrir hrun leiddu til mik- ils tjóns fyrir almenning og því ekki að ástæðulausu sem lögum var breytt til að tak- marka slíka bónusa. Fyrir- ætlanir um greiðslur hárra bónusa til fámenns hóps starfsmanna eignarhalds- félaga gömlu bankanna nú, eru tímaskekkja,“ segir Helgi Hjörvar þingsflokksformaður Samfylkingarinnar. -mm Aflatölur fyrir Vesturland 27. ágúst - 2. september Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes 4 bátar. Heildarlöndun: 12.767 kg. Mestur afli: Ebbi AK: 11.726 kg í tveimur róðrum. Arnarstapi 2 bátar. Heildarlöndun: 2.837 kg. Mestur afli: Bárður SH: 2.032 kg í einni löndun. Grundarfjörður 6 bátar. Heildarlöndun: 449.733 kg. Mestur afli: Nordvåg (OZ2137) FO: 210.976 kg í einni löndun. Ólafsvík 25 bátar. Heildarlöndun: 233.850 kg. Mestur afli: Álfur SH: 51.220 kg í sex löndunum. Rif 12 bátar. Heildarlöndun: 448.825 kg. Mestur afli: Örvar SH: 74.513 kg í einni löndun. Stykkishólmur 3 bátar. Heildarlöndun: 23.295 kg. Mestur afli: Blíða SH: 11.836 kg í sjö löndunum. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Nordvåg (OZ2137) FO - GRU: 210.976 kg. 29. ágúst. 2. Örvar SH - RIF: 74.513 kg. 30. ágúst. 3. Hringur SH - GRU: 66.883 kg. 31. ágúst. 4. Steinunn SF- GRU: 63.350 kg. 28. ágúst. 5. Kristín GK - GRU: 62.129 kg. 29. ágúst. -grþ Flatey á Breiðafirði skartaði sýnu fergursta í blíðunni um helgina. Þegar rökkva tók nutu íbúar fegurðar norðurljósanna sem þarna kallast á við ljósin í einu eða tveimur húsum í eyjunni. Þessa hauststemningu fangaði Sumarliði Ásgeirsson á mynd. mm Kallast á við norðurljósin Endurtektarkosning fyrir röðun á framboðslista Pírata í Norðvest- urkjördæmi hófst á miðnætti síð- astliðið sunnudagskvöld og stend- ur þar til á hádegi í dag, miðviku- dag. Ellefu frambjóðendur gefa áfram kost á sér en bæði Þórður Guðsteinn Pétursson, sem kos- inn var efstur á lista í prófkjörinu, og Halldóra Sigrún Ásgeirsdótt- ir, kapteinn Pírata á Vestfjörðum, hafa ákveðið að gefa ekki kost á sér í endurkosningunni. Listi Pírata í NV-kjördæmi var sem kunnugt er kærður til úr- skurðarnefndar flokksins, þar sem skera átti úr um hvort Þórð- ur Guðsteinn hefði smalað fólki til að kjósa sig. Þórður viðurkenndi að hafa smalað 25-35 manns til að kjósa sig en niðurstaða úrskurð- arnefndar var að hann hefði ekki brotið reglur Pírata því smölun- in hafi átt sér stað áður en regl- ur flokksins um bann við smölun tóku gildi. Framboðslistanum var hins veg- ar hafnað í staðfestingarkosningu Pírata á landsvísu með 153 af 272 greiddum atkvæðum. Því verð- ur að kjósa á ný í prófkjöri og þar geta allir Píratar á landinu tek- ið þátt. Prófkjörið hófst sem fyrr segir á miðnætti og stendur til há- degis á miðvikudag. kgk Þórður Guðsteinn Pétursson er ekki lengur í framboði fyrir Pírata, en flokksmenn höfnuðu lista þar sem hann var í efsta sæti í NV kjördæmi. Píratar felldu listann og kjósa aftur Eins og greint var frá í maí síð- astliðnum náðu Landsvirkjun og Norðurál samkomulagi um endur- nýjun raforkusamnings fyrirtækj- anna sem upphaflega var gerður árið 1997, á kjörum sem tengt verð- ur markaðsverði í Norður-Evrópu. Var samningurinn sendur til for- skoðunar hjá ESA, eftirlitsstofnun EFTA, en undirritun beið þess að forskoðun lyki. Henni er nú lokið með jákvæðri niðurstöðu ESA og hafa samningsaðilar því undirritað fyrirliggjandi samning. Hann verð- ur nú stendur til ESA til formlegrar og endanlegrar umfjöllunar, en bú- ist er við afgreiðslu stofnunarinnar fyrir áramót. Hinn framlengdi samningur nær til fjögurra ára og hljóðar upp á 161 MW, sem er um nær þriðjung- ur af orkuþörf álvers Norðuráls á Grundartanga. Samningurinn tek- ur gildi í nóvember 2019 og gildir til loka árs 2023. Núverandi samn- ingur verður því áfram í gildi til októberloka 2019. Endurnýjaður samningur verður tengdur mark- aðsvirði raforku á Nord Pool raf- orkumarkaðnum. Kemur það í stað álverðstengingar í gildandi samn- ingi. kgk Norðurál og Landsvirkjun undirrita raforkusamning Breiðafjarðarferjan Baldur og skemmtiferðaskipið Ocean Di- mond voru bæði í höfn í Stykkis- hólmi um helgina. Þegar tvö svo stór skip eru í höfninni í einu skilja þau ekki mikið pláss eftir. Hér má sjá þegar farþegabátnum Særúnu er siglt milli skipanna með farþega á laugardaginn. Veðrið var ein- staklega kyrrt og fallegt og þess nutu farþegar Særúnar í siglingu um eyjarnar. sá Skipafans í Stykkishólmshöfn

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.