Skessuhorn - 07.09.2016, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2016 9
Slátur tíð
Egilsholti 1
Verslun, sími: 430 5500
Opið virka daga 8-18
Laugardaga 10-14
www.kb.is, verslun@kb.is
Gervivambir, bjúgnaplast,
pylsuplast
Sláturgarn og sláturnælur
Kjötnet og kjötkrókar
Gott úrval hnífa
Vakúmpökkunarvélar og
vakúmpokar
Kjötfarsblanda, rúllupylsu-
krydd og nítrítsalt
Pinnabyssur og skot í pinnabyssur
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Til dæmis mjaltir, afleysingar, mokstur, fjárrag, hænsnatínslu, þrif og
bón á bílum og vélum, smölun, slátrun og svo mætti lengi telja.
Nemendur á öðru ári í búfræðideild Landbúnaðarháskóla Íslands
taka nú að sér hverskyns verkefni til fjáröflunnar útskriftarferðar
sinnar á komandi ári. Erum með reynslubolta í flestum verkum.
Ítarlegri upplýsingar veita
Harpa Björk: 894-1011
Sigríður Linda: 771-3341
bufraedi@gmail.com
Er ekki hugsanlegt að þig vanti
aðstoð við hin ýmsu verk?
Geymið auglýsinguna því við
verðum til taks í allan vetur.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
www.skessuhorn.is
Um miðjan síðasta mánuð greindi
Skessuhorn frá stöðu mála varð-
andi lagningu heimtauga ljósleið-
ara í Hörðudal og Skógarströnd í
Dölum. Þá lá fyrir að 28 fasteigna-
eigendur, þar af 17 lögbýli, hefðu
undirritað umsókn um að fá heim-
taugar. Byggðarráð Dalabyggðar
samþykkti í kjölfarið tveggja millj-
óna króna framlag sveitarfélags-
ins til verkefnisins að því gefnu að
önnur fjármögnun yrði tryggð og
unnu stjórnendur sveitarfélagsins
að því að fá fjármagn til verkefn-
isins.
Byggðarráð ræddi ljósleiðara-
mál aftur á fundi sínum 30. ágúst
síðastliðinn. Þar greindi sveitar-
stjóri frá stöðu mála og fundi sem
hann átti með forstjóra Orkufjar-
skipta. Staða málsins er þannig að
stjórnendum sveitarfélagsins þykir
ekki líklegt að hægt verði að leggja
heimtaugarnar nema Dalabyggð
verði framkvæmdaaðilinn. Byggð-
arráð samþykkti því á síðasta fundi
að sveitarfélagið sjái um lagningu
heimtauga ljósleiðara í Hörðudal
og á Skógarströnd, með tveim-
ur skilyrðum þó: „Að því gefnu að
næg þátttaka verði meðal fasteigna-
eigenda til að verkefnið gangi upp
og að vilyrði fáist fyrir því að fjar-
skiptafyrirtæki kaupi heimtauga-
kerfið að lokinni framkvæmd,“
eins og segir í fundargerð byggð-
arráðs. Þá var sveitarstjóra falið að
leita samninga við fjarskiptafyrir-
tæki sem og að óska aðstoðar Fjar-
skiptasjóðs til að fjármagna heim-
taugar til þeirra tveggja lögheimila
sem lengst eru frá stofnlögninni.
„Að fjarskiptafyrirtæki vilji
kaupa heimtaugarnar að fram-
kvæmdum loknum er þó algjör
forsenda þess að sveitarfélagið fari
af stað með þetta verkefni. Stað-
an er sú að þetta gerist væntanlega
ekki nema Dalabyggð verði fram-
kvæmdaraðilinn en sveitarfélagið
ætlar sér ekki að eiga og reka kerf-
ið, það hefur legið fyrir frá upp-
hafi,“ segir Sveinn Pálsson sveit-
arstjóri í samtali við Skessuhorn.
Hann segir að næstu skref í ljós-
leiðaravæðingu Dalabyggðar séu
að taka þátt í útboði Fjarskipta-
sjóðs. „Næst er að taka þátt í næsta
útboði Fjarskiptasjóðs sem von-
andi heldur áfram ljósleiðaravæð-
ingu landsins, þar sem við náð-
um ekki úthlutun síðast. Við erum
að reyna að ljúka þessu verkefni
af því það tengist þessum stofn-
streng sem þarna er,“ segir hann.
„Ég held að allir sjái það núna að
það voru ákveðin mistök að Fjar-
skiptasjóður skyldi ekki leggja upp
með það í upphafi að menn legðu
stofnstreng og heimtaugar í einu
verki,“ segir Sveinn en bætir því
við að menn þurfi stundum að reka
sig á. Það sé vilji stjórnenda Dala-
byggðar að ljúka verkinu.
kgk
Dalabyggð mun sjá um
lagningu heimtauga
Horft inn Hörðudal í Dölum. Ljósm. Mats Wibe Lund.