Skessuhorn


Skessuhorn - 07.09.2016, Blaðsíða 31

Skessuhorn - 07.09.2016, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2016 31 Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins. Helena Ólafsdóttir hefur verið ráðin þjálfari meistaraflokks kvenna fyrir næsta tímabil hjá Knattspyrnufélagi ÍA og Aníta Lísa Svansdóttir verður henni til aðstoðar. Helena mun því taka við liðinu af þeim Kristni Guð- brandssyni og Steindóru Steins- dóttur sem eins og áður hefur ver- ið greint frá munu ljúka tímabilinu með liðið í Pepsi deild. Kristinn og Steindóra munu áfram vera í bak- landi meistaraflokks kvenna auk þess að sinna fleiri verkefnum hjá félaginu. Helena Ólafsdóttir hefur víð- tæka reynslu af kvennaknattspyrnu. Hún starfaði síðast sem þjálfari hjá FK Fortuna í Álasundi í Noregi. Þar áður þjálfaði hún meistaraflokk hjá FH, Selfoss, KR og Val. Helena þjálfaði einnig A-landslið kvenna 2003-2004. Helena var á sínum tíma sigursæll leikmaður og varð marg- faldur Íslandsmeistari með KR á ár- unum 1993-1999. Hún lék einnig með liði ÍA og varð m.a. bikarmeist- ari með liðinu árið 1992. Helena lék átta A-landsleiki fyrir Ísland. Í tilkynningu frá stjórn ÍA kemur einnig fram að gengið hafi verið frá ráðningu aðstoðarþjálfara liðsins, en Aníta Lísa Svansdóttir mun aðstoða Helenu við þjálfunina. Aníta Lísa er fyrrverandi leikmaður ÍA en hún hefur einnig spilað með FH, Val og Selfossi. Þá hefur Aníta Lísa starf- að sem þjálfari hjá Val, Stjörnunni og nú síðast hjá FK Fortuna/Aksla í Noregi. Hún mun jafnframt þjálfa 2.fl.kvenna. „Með ráðningum Helenu og Anítu er það undirstrikað að Knatt- spyrnufélga ÍA að félagið ætlar sér áfram að vera í fararbroddi á Íslandi í knattspyrnuþjálfun og fræðslu leikmanna hvort sem er í karla- eða kvennaflokkum. Markmið félags- ins er að byggja upp öflugt knatt- spyrnufólk og að vinna titla auk þess að vera mikilvægur hlekkur í upp- eldis- og æskulýðsstarfi á Akranesi,“ segir í tilkynningu. mm Helena tekur við meistara- flokki kvenna hjá ÍA Sævar Freyr Þráinsson, varaformaður KFÍA, Helena Ólafsdóttir, Magnús Guðmunds- son, formaður KFÍA og fyrir aftan standa núverandi þjálfarar, þau Steindóra Steinsdóttir og Kristinn Guðbrandsson. Ljósm. KFÍA. Úrslitakeppni 1. deildar kvenna í knattspyrnu hófst laugardaginn 3. september síðastliðinn. Víkingur Ó. hafnaði sem kunnugt er í þriðja sæti B riðils og mætti því liði Grindvík- inga, sem luku riðlakeppninni í efsta sæti B riðils. Leikið var á Ólafsvík- urvelli. Víkingskonur áttu á brattann að sækja stærstan hluta leiksins gegn sterku liði Grindvíkinga. Gestirnir komust yfir á 19. mínútu með marki frá Mirjani Hing-Glover og Sashana Carolyn Campbell bætti við öðru marki aðeins sex mínútum síðar. Á 39. mínútu skoraði Mirjani ann- að mark sitt og þriðja mark Grind- víkinga og róðurinn orðinn þungur fyrir leikmenn Víkings. Þeim tókst ekki að minnka mun- inn í síðari hálfleik heldur voru það Grindvíkingar sem bættu einu marki við. Það gerði Rakel Lind Ragnars- dóttir á 83. mínútu leiksins. Leiknum lauk með sigri Grind- víkinga með fjórum mörkum gegn engu og Víkingur í erfiðri stöðu fyr- ir seinni viðureign liðanna í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar. Liðin mætast í Grindavík miðvikudaginn 7. september. Ljóst er að erfitt verð- ur fyrir Víking að snúa taflinu við en allt er hægt í fótbolta. kgk Víkingur Ó. fékk skell í fyrsta leik úrslitakeppninnar Þrátt fyrir góða tilburði þurfti Birta Guðlaugsdóttir að hirða boltann fjórum sinnum úr netinu. Ljósm. af. ÍA mætti ÍBV í 14. umferð Pepsi deildar kvenna í knattspyrnu mið- vikudaginn 31. ágúst. Leikurinn var Skagakonum mikilvægur því með sigri gátu þær lyft sér upp úr fallsæti. Það átti hins vegar ekki fyrir þeim að liggja því Eyjakonur sigruðu með einu marki gegn engu í miklum bar- áttuleik. Skagakonur byrjuðu af krafti og sköpuðu sér nokkur ágæt marktæki- færi en tókst ekki að koma knettin- um í netið. ÍA var betra lið vallarins framan af fyrri hálfleik en gestirnir frá Vestmannaeyjum komust betur inn í leikinn eftir því sem leið á. Hart var barist og ljóst að hvorugt lið ætl- aði sér að gefa eftir. Litlu mátti muna að ÍBV kæmi boltanum í markið eftir mikinn atgang í teignum. Ásta Vigdís varði hins vegar tvisvar í markinu og vörnin komst fyrir þriðja skotið. Rétt fyrir leikhléið tóku Skagakonur síðan aukaspyrnu og boltinn barst á Grétu Stefánsdóttur sem var í ákjósanlegri stöðu en markvörður ÍBV varði vel. Staðan því markalaus í hálfleik. Leikmenn ÍBV fengu sannkall- aða óskabyrjun í síðari hálfleik og komust yfir strax á 46. mínútu þeg- ar Cloe Lacasse kom boltanum í net- ið. Aðeins þremur mínútum síðar fengu Skagakonur hins vegar gull- ið tækifæri til að jafna. Dómari leiks- ins dæmdi vítaspyrnu eftir samstuð í teignum. Catherine Dyngvold steig á punktinn en skot hennar small í stönginni og fór þaðan aftur fyrir endamörk. Óheppnin virtist það að- eins slá Skagakonur út af laginu og leikur þeirra var heldur kaflaskiptur fyrst á eftir. Eftir því sem leið á leik- inn færði ÍBV liðið sig aftar á völl- inn, þétti vörnina og beitti skyndi- sóknum. Þrátt fyrir ágæta baráttu allt til leiksloka tókst leikmönnum ÍA ekki að jafna metin né ÍBV að auka mun- inn og gestirnir höfðu því 1-0 sig- ur. Eftir leiki miðvikudagsins datt ÍA niður á botn deildarinnar með átta stig eftir 14 leiki. Þær eygja þó enn möguleika á því að lyfta sér upp úr fallsæti, því aðeins tvö stig eru í lið Selfyssinga í 8. sæti deildarinnar. Í gær tók ÍA á móti toppliði Stjörn- unnar á Akranesvelli. Sá leikur var hins vegar ekki hafinn þegar Skessu- horn fór í prentun. Lesendum er því bent á www.skessuhorn.is. kgk Skagakonur óheppnar að ná ekki stigi Catherine Dyngvold fékk tækifæri til að jafna metin þegar ÍA fékk vítaspyrnu snemma síðari hálfleiks. Skot hennar small hins vegar í stöng- inni og þaðan aftur fyrir endamörk. Ljósm. gbh. Skotgrund - Skotfélag Snæfells- ness hélt svokallað pæjumót mið- vikudaginn 31. ágúst síðastlið- inn eins og kom fram í síðasta blaði. Þátttaka á mótinu fór fram úr björtustu vonum og er ljóst að mikil gróska er í skotfimi kvenna. Mótið var haldið á svæði félags- ins í Kolgrafafirði og voru aðstæð- ur eins og best verður á kosið. Það var Dagný Rut Kjartansdóttir sem varð hlutskörpust á mótinu en hún var að taka þátt í sínu fyrsta móti. Það er ljóst að þetta mót verður aftur á dagskrá í framtíðinni enda þótti það vel heppnað. tfk Vel heppnað pæjumót í skotfimi Hérna eru verðlaunahafarnir frá vinstri: Mandy Nachbar sem hreppti annað sætið, Dagný Rut Kjartansdóttir sem varð í fyrsta sæti en hún var einnig nýliði mótsins og svo Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir sem varð í þriðja sæti. Á miðvikudagskvöldið í síðustu viku var boðið á konukvöld á æfinga- og keppnissvæði Skotfélags Akraness við rætur Akrafjalls. Þá var konum sérstaklega boðið að mæta og kynna sér skotíþróttina. Guðrún Hjalta- lín skipulagði kvöldið og segir hún tilganginn hafa verið að sýna fleir- um hversu skemmtileg íþrótt skot- fimi er. „Þetta er í fyrsta skipti sem við hóum konum sérstaklega sam- an,“ segir Guðrún. Hún kveðst hafa verið eina konan sem stundaði t.d. leirdúfuskotfimi reglulega á Akranesi og séð ástæðu til að reyna að fjölga í hópnum og jafna kynjahlutföllin. „Þetta tókst frábærlega hjá okkur á miðvikudaginn. Það mættu 16 kon- ur og þar af helmingurinn frá Akra- nesi. Nokkrar eru mjög áhugasamar um að hefja æfingar með skotfélag- inu. „Allar prófuðu að skjóta. Óvanar fóru í „trapvélina“ og sumar prófuðu að fara á „skeetvöllinn“, en á honum færir skyttan sig á milli átta skotpalla og skýtur á leirdúfur sem skotið er upp af misjafnlega löngu færi.“ Sjálf segist Guðrún hafa byrjað að skjóta árið 2009 og síðan 2011 hafi hún haft delluna fyrir alvöru og hefur verið virk í Skotfélagi Akraness síð- an þá. Hún segir þetta skemmtilegt sport og til marks um áhugann segist hún nú eiga tvo bleika riffla. Fram- undan hjá konum í Skotfélagi Akra- ness er þátttaka á kvennamóti sem nefnist Skyttan og fram fer í Þorláks- höfn 24. september nk. mm Skotfimi ekki síður fyrir konur en karla Hér má sjá tíu af þeim sextán konum sem mættu á kynningarkvöldið. Guðrún Hjaltalín er lengst til hægri í neðri röð. Spáð í spilin á skotæfingasvæðinu. Þar fengu gestir leiðsögn og fræðslu í skotfimi.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.