Skessuhorn - 07.09.2016, Síða 18
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 201618
Skagakonan Eva Laufey Kjar-
an Hermannsdóttir hefur ver-
ið einn af vinsælustu matar-
bloggurum landsins um árabil.
Fyrir þremur árum gaf hún út
matreiðslubókina Matargleði
Evu og fylgdi bókinni eftir
með sjónvarpsþáttum á Stöð
2. Hún vinnur nú að útgáfu
annarrar bókar og mun stýra
nýjum þætti á Stöð 2 í vetur, í
samstarfi við Guðmund Bene-
diktsson sjónvarpsmann og
fyrrum fótboltakempu. Blaða-
maður Skessuhorns sett-
ist niður með Evu Laufeyju
og spjallaði við hana um líf
og störf matarbloggarans og
sjónvarpskokksins.
Byrjaði að
elda sem barn
Eva Laufey er fædd og uppalin á
Akranesi. Hún fékk snemma áhuga
á matreiðslu og var farin að elda á
unga aldri. „Mér þótti alltaf gott að
borða og fékk snemma áhuga á mat.
Mamma var líka dugleg að láta okkur
hjálpa sér í eldhúsinu og kenndi okk-
ur að smakka allt, þannig að ég lærði
fljótt af henni,“ segir Eva Laufey í
samtali við Skessuhorn. Eva Lauf-
ey hefur ekki lært matreiðslu en hef-
ur verið dugleg að prófa sig áfram í
eldhúsinu. Hún segist hafa lært mest
af móður sinni og ömmu. „Mamma
er matráður í eldhúsi og ég hef lært
mikið af henni.“ Af erlendum fyrir-
myndum nefnir hún sjónvarpskokk-
ana Jamie Oliver og Nigellu. „Af
þeim íslensku hefur Rikka vinkona
mín reynst mér hvað best. Hún leik-
stýrði mér í fyrstu þáttaröðinni minni
á Stöð 2. Ég er ekki viss um að allir
væru reiðubúnir að opna svona faðm
sinn og hjálpa eins og hún hefur gert.
Ég er henni ótrúlega þakklát,“ segir
Eva.
Viðburðaríkt ár
Eftir nokkur ár í höfuðborginni er
Eva nýflutt aftur á Skagann, ásamt
eiginmanninum Haraldi Haralds-
syni og tveggja ára dóttur þeirra,
Ingibjörg Rósu. Hjónin keyra bæði
til Reykjavíkur til að sækja vinnu en
þau eru ánægð með að vera kom-
in aftur heim. „Fólkið okkar er hér
og við viljum ala dóttur okkar upp í
þessu umhverfi,“ segir hún. Það má
segja að 2016 sé viðburðarríkt ár í lífi
Evu, bæði vinnulega séð og persónu-
lega. Ásamt því að hafa selt íbúð sína
í Reykjavík og keypt sér hús á Akra-
nesi, þá giftu þau sig 23. júlí síðast-
liðinn í Akraneskirkju. „Við ákváð-
um bara að gera þetta allt í einu,“
segir hún og brosir. Það ætti ekki að
koma neinum á óvart að brúðkaups-
tertuna bakaði Eva sjálf. „Súkkulaði-
kaka er í uppáhaldi hjá okkur báðum
og það lá því beinast við að hún yrði
fyrir valinu. Ég bakaði því dökka
og mjúka súkkulaðiköku, sem var
smurð með dökkri súkkulaðisósu.
Á milli var súkkulaðimús og svo var
hún þakin hvítu súkkulaði,“ útskýr-
ir Eva.
Eldar einfaldan mat
Aðspurð hvort hún sé hrifnari af mat-
argerð eða bakstri segir Eva að henni
þyki hvort tveggja skemmtilegt. „En
baksturinn trónir þó á toppnum,“
bætir hún við. Bókin sem Eva Lauf-
ey vinnur nú að er kökubók og kem-
ur hún út í október. „Þarna verða
allar uppáhalds uppskriftirnar mín-
ar komnar í eina bók.“ Eva er mikill
matgæðingur og sér einnig um elda-
mennskuna heima fyrir. „Ég elda
venjulega einfaldan mat. Mér finnst
alveg gaman að horfa á fólk sem fer
nýjar og flóknar leiðir í matreiðslu en
það er ekki fyrir mig. Ég legg frek-
ar áherslu á að aðrir geti haft tæki-
færi til að elda og baka það sem ég
geri.“ Sjálf segist hún vera hrifnust af
ítölskum mat og lambakjöti. „Ég er
mjög hrifin af öllum ítölskum mat.
Gott pasta og gott rauðvín er alveg
í sérflokki,“ segir hún. Þegar hún er
spurð að því hvort ekki sé erfitt að
fá hugmyndir að því hvað á að vera
í matinn, hvort sem það er heima
eða í þáttagerðinni, segir Eva: „Það
koma alveg dagar sem ég veit ekk-
ert hvað ég á að elda. En ég er dug-
leg að sækja mér innblástur. Það geri
ég með því að fara út að borða, sér-
staklega ef ég er erlendis. Ég skoða
líka mikið á netinu, bæði myndbönd
og uppskriftir.“
Klúðrar eins og aðrir
Þrátt fyrir að vera listakokkur og
góður bakari segir Eva að það ger-
ist margoft að eitthvað mistakist í
eldhúsinu. „Kökurnar falla stundum
eða bragðast ekki vel. Stundum líta
þær illa út en bragðast samt vel, það
er þó skárra. En það er verst ef eitt-
hvað svona gerist þegar maður á von
á gestum,“ segir hún brosandi. Mis-
tökin geta einnig átt sér stað í sjón-
varpinu. Þó að oftast líti allt vel út
á skjánum hefur stundum ýmislegt
gengið á við tökur. „Ég hef til dæmis
skorið mig við tökur og það blæddi
hressilega. Ég þurfti því að vera með
plástur það sem eftir var af degin-
um. Það kemur ýmislegt fyrir, ég er
enginn sérfræðingur og klúðra al-
veg eins og allir aðrir.“ Blaðamaður
Skessuhorns er einnig forvitinn að
vita hvað verður um matinn sem eld-
aður er í sjónvarpinu. „Við og töku-
mennirnir borðum yfirleitt matinn.
Þetta er samt ekkert alltaf spennandi,
stundum er maturinn orðinn kaldur
og búinn að standa lengi á borðinu.
En við reynum að nýta allt, ég þoli
ekki að henda mat - það er bara ekki
í boði,“ segir hún.
Sóttist eftir tækifærum
Eva Laufey byrjaði að blogga fyr-
ir fimm árum. Það var þá sem bolt-
inn fór að rúlla. „Ég byrjaði að
blogga um ekki neitt, þannig lag-
að. Ég fikraði mig áfram og setti inn
eina og eina matarmynd. Þetta vatt
svo bara upp á sig og þróaðist í þessa
átt. Þetta gerðist bara.“ Í framhald-
inu fékk Eva Laufey tækifæri til þess
að birta kökuuppskrift í Gestgjaf-
anum. „Þá fann ég að þetta var eitt-
hvað sem ég vildi gera meira af. En
í þessu verður maður að sækjast eftir
því sjálfur. Ég nýtti mér tengslanet-
ið mitt og var dugleg að senda pósta.
Sýndi því áhuga að fá að birta upp-
skrift í blöðum,“ útskýrir hún. Eft-
ir þetta fékk Eva Laufey tækifæri til
þess að vera lausapenni hjá Gest-
gjafanum. Það má segja að þar hafi
hún stigið sín fyrstu skref í fjölmiðl-
um. „Mér fannst þetta æðislegt. Svo
stækkar bloggið og ég var bara far-
in að vera alveg í þessu,“ segir hún.
Matreiðslubókin Matargleði Evu
kom út fyrir þremur árum. Í fram-
haldi af því fékk Eva sitt fyrsta tæki-
færi til að koma fram sem sjónvarps-
kokkur á Stöð 3. „Ég sóttist eftir
tækifærum og ákvað að prófa þetta. Í
kjölfarið fékk ég þætti á Stöð 2 og ég
er þarna enn, ásamt því að hafa verið
með innslög í Íslandi í dag, sem var
mjög skemmtilegt,“ segir hún. Sjö-
unda þáttaröðin af Matargleði Evu
fer í loftið núna í haust, að meðtal-
inni þeirri sem sýnd var á Stöð 3.
Nýr þáttur í haust
Eins og fyrr segir mun Eva Lauf-
ey einnig stýra nýjum þætti sem
fer í loftið í lok október. Sá þáttur
heitir Ísskápastríð og verður með
allt öðru sniði en Matargleði Evu.
„Ísskápastríð er matreiðsluþáttur
þar sem fólk keppir í matreiðslu.
Við Gummi Ben stýrum þættinum
og verðum liðsstjórar. Við fáum tvo
gesti í hverjum þætti og fáum ann-
an hvorn í okkar lið. Sex ísskápar
eru í boði, keppendur velja sér einn
þeirra og þurfa að elda forrétt, að-
alrétt og eftirrétt úr því sem er í ís-
skápnum. Svo eru alls konar tromp
í leiknum og ýmislegt skemmtilegt
sem kemur á óvart. Það er til dæmis
hægt að stela hráefni frá keppinaut
og banna keppinaut að nota heim-
ilistæki,“ útskýrir Eva. Hún segir
hugmyndina koma frá Loga Berg-
mann Eiðssyni. „Þetta er í raun
blanda af mörgum þáttum og verð-
ur léttur þáttur, spjall og gaman.“
Eva Laufey er spennt fyrir kom-
andi verkefnum. Tökur á þættinum
hefjast nú í september og í október
kemur nýja bókin út. „Það er ótrú-
lega gaman að hafa fundið það sem
mig langar til að gera. Ég hlakka
mikið til að fara í Ísskápastríð, það
er svona annað platform á því sem
ég hef verið að gera og ég er ótrú-
lega spennt.“
grþ
Allar uppáhalds kökurnar í einni bók
Fjölmiðlakonan Eva Laufey gefur út sína aðra bók í haust
Eva Laufey í eldhúsinu sínu á Akranesi.
Tökur á matarþætti. „Við og tökumennirnir borðum yfirleitt matinn. Þetta er samt
ekkert alltaf spennandi, stundum er maturinn orðinn kaldur og búinn að standa
lengi á borðinu. En við reynum að nýta allt, ég þoli ekki að henda mat - það er
bara ekki í boði,“ segir hún.
Brúðkaupið var í sumar. Hér eru Eva Laufey, Haraldur og dóttirin Ingibjörg Rósa.
Brúðartertuna gerði Eva Laufey sjálf. Súkkulaðiterta hjúpuð ljósu súkkulaði,
skreytt með blómum.