Skessuhorn - 14.09.2016, Síða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 37. tbl. 19. árg. 14. september 2016 - kr. 750 í lausasölu
Gjaldeyrir.is er
tímasparnaður fyrir alla
Viðskiptavinir allra banka geta gripið með sér
ferðagjaldeyrinn á Keflavíkurflugvelli
Fæst án lyfseðils
LYFIS
SÍMENNTUNARMIÐSTÖÐIN
Á VESTURLANDI
Fylgstu með okkur á Facebook
NÝR N
ÁMSV
ÍSIR
ER KO
MINN
ÚT
Frumsýning á Sögulofti
Landnámsseturs Íslands
Föstudaginn 23. september kl. 20
Upplýsingar um
fleiri sýningar á
www.landnam.is/vidburdir
Thors saga Jensen
Guðmundur Andri Thorsson flytur sögu langafa síns
LANDNÁMSSETur Íslands
Þessi fallega gimbur var að snæðingi í Hallmundarhrauni í Borgarfirði um liðna helgi ásamt móður og systur. Á matseðlinum
var birki og lyng ásamt kjarnmiklu grasi. Ekki er loku fyrir það skotið að þessi stólpagripur verði settur á til lífs og verði fram-
tíðar lambamóðir. Nú eða ekki. Ljósm. Guðbjörg Ólafsdóttir.
Gangnamaður á Arnarvatnsheiði
féll af hesti sínum síðastliðið föstu-
dagskvöld og féll á höfuðið. Þyrla
Landhelgisgæslunnar var kölluð á
staðinn um kvöldið og flutti mann-
inn til læknisskoðunar í Reykjavík.
Hann reyndist óbrótinn en marinn
og aumur eftir fallið.
Leitarmaðurinn sem í hlut á
heitir Hörður Guðmundsson og
býr á Grímsstöðum í Reykholts-
dal. Hann segir að hesturinn hafi
skyndilega fallið og hafi hann flog-
ið framfyrir hestinn og lent á höfð-
inu á grjótharðri jörðinni. Vafa-
lítið hefði ekki þurft að spyrja að
leikslokum ef hjálmsins hefði ekki
notið við. „Hjálmurinn brotn-
aði, slíkt var höggið. Líklega hefði
það sama gerst við höfuðið ef það
hefði lent óvarið í jörðinni,“ sagði
Hörður. Hann var fljótur að ná sér
eftir byltuna og var útskrifaður af
spítala daginn eftir. Náði meira
að segja að vera viðstaddur þeg-
ar félagar hans úr göngum á Arn-
arvatnsheiði ráku safnið í Fljót-
stungurétt skömmu fyrir myrkur á
laugardagskvöldið. mm
Gangnamenn komu til byggða undir
kvöld á laugardaginn. Nánast allir
voru með hjálm á höfði. Ljósm. mm
Reiðhjálmur
hlífði höfðinu
Hörður að morgni föstudags.
Góður höfuðbúnaður getur reynst
lífsnauðsynlegur. Hér heldur hann á
hjálminum sem brotnaði við fallið.
Ljósm. þá.
Síðastliðinn mánudag hófst kennsla
í lögreglufræði í fyrsta skipti við Há-
skólann á Akureyri. Nám þetta bar
brátt að því einungis fyrir tæpum
þremur vikum ákvað Illugi Gunnars-
son menntamálaráðherra að fela HA
að taka að sér lögreglufræði á háskóla-
stigi. Fjórir háskólar hér á landi keppt-
ust um hituna. Nú hefja liðlega 150
nemendur nám og koma þeir víða af
landinu. Meðal þeirra eru fjórir Vest-
lendingar, sem einmitt sitja hér sam-
an á mynd á fyrsta skóladegi síðastlið-
inn mánudag. Þetta eru þau Hafþór
Ingi Þorgrímsson, Björgvin Fjeldsted,
Guðrún Hildur Hauksdóttir og Ás-
geir Yngvi Ásgeirsson. Þeir þrír hafa
allir starfað hjá Lögreglunni á Vestur-
landi og mæta því hoknir af reynslu til
háskólanámsins norðan heiða.
Skessuhorn sló á þráðinn til Ás-
geirs Yngva Ásgeirssonar að kvöldi
fyrsta skóladags á Akureyri. Hann
kveðst ætla að taka námið af fullum
krafti, 30 einingar á önn og mun því
ef allt gengur eftir útskrifast eftir tvö
ár. Þau völdu öll að nálgast fræðin í
fjarnámi sem byggist á nokkrum stað-
lotum á Akureyri og síðan heimanámi
og verkefnaskilum á netinu. „Þetta
leggst alveg rosalega vel í mig að
byrja í námi. Maður er orðinn þrítug-
ur og þá lítur maður einhvern veginn
á nám af meiri alvöru en þegar maður
var yngri,“ segir Ásgeir Yngvi. Hann
er menntaður húsasmiður en rekur
ferðaþjónustu heima á Staðarhúsum í
Borgarhreppi.
„Þessi fyrsti dagur í skólanum var
mjög skemmtilegur og áhugaverð-
ur. Skólinn sjálfur er að máta sig inn í
hlutverk sitt að kenna lögreglufræði á
háskólastigi. „Við verðum núna í stað-
lotu í nokkra daga og mætum næst
í aðra slíka eftir mánuð. Ég reyndar
fer svo heim og í leitir á Holtavörðu-
heiðinni á fimmtudaginn [á morgun]
eins og ég er vanur. Maður sleppir
því nú ekki ef mögulegt er,“ segir Ás-
geir Yngvi hress í bragði. Sjálfur rek-
ur Ásgeir Yngvi ferðaþjónustu heima
á Staðarhúsum. Hann segir ferða-
þjónustuna hafa gengið vel í sumar og
oft hafi verið fullbókað í gistinguna
og stundum þurft að vísa fólki ann-
að. „Sumarið var mjög fínt og von-
andi verður eitthvað að gera áfram.
Nú ef ekki verður maður að finna
sér einhverja launaða vinnu samhliða
náminu, það kemur bara í ljós,“ sagði
Ásgeir Yngi háskólanemi í lögreglu-
fræði. mm
Hefja nám í lögreglufræði við HA
Á fremsta bekk á fyrsta kennsludegi í nýju lögreglunámi á Akureyri mátti sjá
kunnugleg vestlensk andlit. Frá vinstri er Hafþór Ingi Þorgrímsson sem rekur
dekkjaverkstæði í Stykkishólmi, þá Björgvin Fjeldsted frá Ferjukoti, unnusta
hans Guðrún Hildur Hauksdóttir úr Borgarnesi og Ásgeir Yngvi Ásgeirsson frá
Staðarhúsum. Ljósm. ha.is