Skessuhorn - 14.09.2016, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2016 19
Eftir fréttir af prófkjörum síðustu
daga hefur læðst að okkur sú til-
finning að jafnréttissjónarmiðum
hafi verið sturtað niður um kló-
settið. Fréttir af sumum listum eru
æpandi skilaboð um að konur eigi
að halda sig heimavið, það sé engin
þörf fyrir þeirra sjónarmið í stjórn-
málum. En er það ekki bara allt í
lagi? Eru konur svona mikið verri í
pólitík? Svona eins og þær eru betri
í að skúra? Stjórnmálaheimurinn
er afar karllægur heimur. Eiginlega
eitt stórt pulsupartý þar sem gugg-
unum er ekkert boðið.
Íslenskt samfélag þarf bráðnauð-
synlega á fleiri konum að halda í
pólitík og ekki síst inn á þing. Þar
þarf virkilega á nýjum vinnubrögð-
um að halda. Það getur ekki ann-
að en hallað á annað kynið ef hitt
kynið setur alla strauma og stefn-
ur og meitlar þær í stein. Þar sem
margar pulsur koma saman, þar er
lítið pláss fyrir feminisma. Tökum
dæmi af byggðastefnu. Hingað til
hefur hún verið stórkarlaleg, sam-
in af körlum, fyrir karla. Áhersla
hefur verið lögð á mjög svo hefð-
bundnar atvinnugreinar; einhæf-
an landbúnað, sjávarútveg og stór-
iðju. Þessar áherslur hafa haft þau
áhrif að karlastörfum hefur fjölgað
en kvennastörf orðið útundan. Þar
er reiknað með að konur fái þjón-
ustustörf, afleidd frá karlastörfun-
um. Þetta hefur orðið til þess að
konur í dreifbýli búa við einhæft
atvinnuframboð og gjarnan hafa
eggin verið öll í sömu körfunni.
Það er kominn tími til að mýkja
byggðastefnuna og leggja áherslu á
fjölbreyttara atvinnulíf sem hentar
fleirum. Leggja meiri áherslu á ný-
sköpun og þekkingariðnað, stuðn-
ing við sprotafyrirtæki og minni
fyrirtæki, efla vinnumiðstöðvar fyr-
ir fjölbreytta listsköpun o.s.frv. Það
þarf að skoða allar stefnur út frá
umhverfissjónarmiðum og mann-
réttindum og sérhagsmunir og ein-
hæfni þurfa að víkja.
Björt framtíð er flokkur sem
leggur mikla áherslu á fjölbreytni
og jafnrétti, er lausnamiðaður og
réttlátur og treystir bæði körlum
og konum til þess að sinna því mik-
ilvæga þjónustustarfi sem starf al-
þingismanna er.
Ást og friður.
Ásthildur Ósk Ragnarsdóttir
Höf. skipar 3. sæti á lista Bjartrar
framtíðar í Norðvesturkjördæmi
Kristín Sigurgeirsdóttir
Höf. skipar 2. sæti á lista Bjartrar
framtíðar í Norðvesturkjördæmi.
Vegna aukinna verkefna leitum
við að starfsfólki í ræstingar
Upplýsingar veitir Kristmundur í síma 824-2877
og á netfangi kristmundur@snokur.com
ATVINNA
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
NORÐURÁLSVÖLLUR
Allir á völlinn
ÍA - KR
Fimmtudaginn 15. september kl. 17:00
Aðalstyrktaraðili leiksins er Bílaumboðið Askja - KIA:
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
6
PEPSI DEILD KARLA:
Mætum öll gul og glöð
Heiðursgestir - leikmenn
meistaraliða ÍA 1986 og 1996
Hleypið okkur úr
þessu pulsupartýi!
Pennagrein
Myndlistarnámskeið verður haldið
fyrir áhugasöm börn á Akranesi nú
í haust. Það er Anna Leif Elídóttir
myndlistarkennari og listmálari sem
stendur fyrir námskeiðinu og kennir.
Er þetta fyrsta myndlistarnámskeiðið
sem haldið er fyrir börn á Akranesi í
langan tíma. „Ég er bara að bregðast
við fyrirspurn sem kom inn á íbúa-
síðu fyrir Skagamenn á Facebook.
Þar var ég merkt í pósti þar sem
var verið að spyrja um myndlistar-
námskeið fyrir börn og ég ákvað að
bregðast við og halda námskeið,“ seg-
ir Anna Leif í samtali við Skessuhorn.
Námskeiðið verður kennt í Kaffihúsi
Kaju við Kirkjubraut 54 annan hvern
laugardag kl. 12:30 - 14:00. Um er að
ræða þrjú skipti og hefst námskeiðið
næstkomandi laugardag. Anna Leif
segir þátttöku ekki vera afmarkaða
fyrir neinn ákveðinn aldur eins og
er. „En mér sýnist að þessi hópur sé
á víðu aldursbili. Það er samt örugg-
lega þörf á þessu fyrir eldri hóp líka
og ef þetta gengur upp, þá gæti vel
verið að ég fyndi eitthvað út úr því.“
Ætlar að hafa þetta
skemmtilegt
Anna Leif segist ekki alveg vera með
fullmótaðar hugmyndir um hvað hún
ætli að kenna krökkunum á nám-
skeiðinu. „Það er ekki alveg kom-
ið á hreint, ég er enn að ákveða það.
Hugsunin er aðallega að hafa þetta
skemmtilegt. En það er hellingur
sem þau geta lært, svo sem litanotkun
og að fá að kynnast myndlistarum-
hverfi fyrir utan skólann. Þetta eru
áhugasamir krakkar sem vilja fá eitt-
hvað aðeins umfram það sem kennt
er í skólanum. Ég þekki börnin ekki
öll og kannski þarf ég að endurskoða
eftir fyrsta skiptið hvað ég kenni.
En þetta er kennt á kaffihúsi og það
verður að henta því svæði,“ útskýrir
hún. Þátttaka kostar 6.800 krónur og
er efniskostnaður innifalinn í verð-
inu. „Þau þurfa ekkert að koma með
sér, aðalatriðið er að mæta í fötum
sem má slettast á - ekki koma í spari-
fötunum,“ segir Anna Leif. Takmark-
aður sætafjöldi er á námskeiðinu en
enn eru nokkur sæti laus. Áhugasamir
geta því enn skráð börnin sín á nám-
skeiðið með því að senda tölvupóst á
netfangið annaleif@gmail.com.
grþ / Ljósm. Ásgeir Kristinsson.
Heldur myndlistarnámskeið fyrir börn
Anna Leif Elídóttir myndlistarkennari og listmálari stendur fyrir myndlistarnám-
skeiði fyrir áhugasöm börn á Akranesi á næstu vikum.