Skessuhorn


Skessuhorn - 14.09.2016, Blaðsíða 26

Skessuhorn - 14.09.2016, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 201626 „Sterkur listi Sjálfstæðisflokksins í höf- uðborginni,“ segir Brynjar Níelsson. Hér er listinn: Ég skrifaði við nokkrar staðreyndir um frambjóðendurna. 1. Ólöf Norðdal á peninga í skatta- skjólum eins og Sigmundur Davíð. Maðurinn hennar er skrifaður fyrir þeim, en þau eru jú gift. 2. Guðlaugur Þór: Hringdi í FL group og Landsbankann og lét þá styrkja Sjálfstæðisflokkinn rétt áður en reglur tóku gildi sem bönnuðu þetta. Hann var í nefndinni sem gerði regl- urnar. Skömmu seinna gerði Flokk- urinn tilraun til að gefa Geysi green energy eignir borgarinnar í gegnum REI félag Orkuveitunnar. Eigend- ur Geysis green voru þeir sömu og styrktu Flokkinn rétt áður. 3. Brynjar Níelsson: Honum finn- ast hugmyndir Pírata um gjaldfrjálsa tannlæknis- og sálfræðiþjónustu vera plebbaskapur og populismi. 4. Áslaug Arna Sigurbjörnsdótt- ir: Sagði beinlínis nauðsynlegt að Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson stigi til hliðar sem forsætisráðherra vegna Wintris-málsins. En henni þótti gjörn- ingurinn sjálfur ekki skipta máli, held- ur frammistaða hans í sjónvarpsvið- talinu fræga. Hún gerði ekki athuga- semdir við það að íslenska elítan feli auð sinn á skattaskjólum. 5. Sigríður Andersen: Aðal talsmað- ur einkavæðingar í heilbrigðiskerf- inu og vill auka leynd um skattaupp- lýsingar. 6. Birgir Ármannsson: Var formað- ur allsherjarnefndar sem svæfði breyt- ingar á eftirlaunalögum í fjölda ára. Breytingarnar tóku til baka ömurlega sjálftöku á eftirlaunum til ráðherra sem Davíð Oddsson stóð fyrir á sín- um tíma. 7. Hildur Sverrisdóttir: Hún vill einkavæða heilbrigðiskerfið, sem hefur hvergi gengið upp. En er ekki, það að ég viti, beinlínis spillt, eða vilji stuðla að spillingu með óbeinum hætti. Hún lendir í baráttusætinu. Hinir eru öruggir inn. Það fylgir því ábyrgð að kjósa Fjórðungur kjósenda á höfuðborg- arsvæðinu ætlar að kjósa listann hér að ofan skv. skoðanakönnunum. Af hverju kjósa svo margir sömu stjórn- málamennina aftur og aftur, jafnvel þó það sé löngu komið í ljós að þeir eru ekki að vinna fyrir þjóðina? Ég er þeirrar skoðunar að kosningakerfið sé a.m.k. hluti af vandamálinu. Þjóð- félagið byggir á því að það séu gerðar kröfur til allra þjóðfélagshópa: Laun- þegar gera kröfu til vinnuveitenda og öfugt, kennarar til nemenda, foreldr- ar til kennara o.s.fv. Þetta virkar. En það er einn þjóðfélagshópur sem eng- inn gerir neinar kröfur til: Það eru kjósendur. Þeir geta hegðað sér ná- kvæmlega eins og þeim sýnist, og allir eru hvattir til að kjósa. Kjósendur standið ykkur! Það á ekki bara að hvetja menn til að kjósa. Það á að hvetja menn til að kynna sér málin og þá að kjósa. Og alls ekki að hvetja fólk sem ekki hef- ur áhuga á stjórnmálum til að kjósa. Ef við fengjum áhugasama kjósendur, þá myndu áhrif ýmissa styrktaraðila og þrýstihópa minnka. Stjórnmála- flokkarnir myndu ekki (a.m.k. síður) fara í rándýrar kynningar og mark- aðsherferðir, kostaðar af fyrirtækjum og hagsmunaaðilum sem síðan ætlast til að fá greiðann endurgoldinn með einum eða öðrum hætti. Svo kjósendur: Kynnið ykkur málin. Gerið eins og yfirmenn í vel reknum fyrirtækjum: Finnið starfsmenn sem gera það sem þið viljið að þeir geri í vinnunni *). Kveðja, Reynir Eyvindsson, Akranesi. Höfundur býður sig fram á lista VG í Norðvesturkjördæmi. *) www.althingi.is Krossgáta Skessuhorns Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Auk þess birtum við lausn á krossgátu síðustu viku. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/ in á netfangið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánudögum. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvupósti sendi lausnir á: „Skessuhorn - kross- gáta, Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á föstudegi). Dregið verður úr réttum innsendum lausnum og fær vinn- ingshafinn bókargjöf frá Skessuhorni; „Pétrísk íslensk orðabók með al- fræðiívafi,“ eftir sr. Pétur Þorsteinsson. Alls bárust 93 lausnir við krossgátunni í blaðinu í síðustu viku. Laus- nin var: „Dæradvöl.“ Vinningshafi er: Ingibjörg Jónsdóttir, Berugötu 5, 310 Borgarnesi. Hlaupa- vinna Sopi Japl Fífla- læti Áhald Sessur Brall Teymdi Bardagi Álíta Kúgun Frelsi For- faðir Basl Fyrir- höfn Bók Uppi- hald Neyttu Ras Röst Geispa Gæf 8 Rán Slóu 2 Á fæti Vaxa Læti 4 Ógn Leðja Kusk Viska Þoka Tvenna Lon Döfnuðu Aðeins Hermir Guma Skapa- lón Kona Reipi Hindra Tófan Flan Frá 7 Anga Æsir Auli Tvíhlj. Ekki Gengur Hæna Samtök Eðli Furðar Men Ungviði 5 Iðrast Hetja Kvað Titill Jötunn Temur Tálbiti Viðbót Gróður- ey Hryðja Öf.tvíhlj 3 Kletta- vík Korn Staura Rat- vísar Sam- hljóðar Vær Snefill Ernir Standa upp úr Á fiski Á reikn- ingi Tínir Alda Óf Vangá Röð Glætu Flýtir sér Samið Á - breiða Nær Klamp- ar 6 Fá- nýti Tónn Púkar Dark Virða 1 Ruslar Ófús Þaut 9 1 2 3 4 5 6 7 8 9 O K G R A N D V A R F A U K A O F F A R A R T Á L M I N N T O L L A R A G N U L L N T R I M M Ö G R A R S J Ó R T B Ö R N H A A Ð ö H I M I N N Ú R V A L Ó L M Æ I N N A I Ö S L L Ö M F A S D A M A E R T I T Á I L T Æ R Á R A B U R R A U L T Á R I N R Ó A R R Ó R Ó L A S K Ö R G L Ö G G A R L U N D X I Ó A R Á L I M Á Ö T U L Ð A T A Ó L M I G U L L U N S U S L I S N U Ð L A M A K I M Ó A N N N Á K S A S U M N I X L Á R F A N S R I S I Ð Ó L S Á D ´Æ G R A D V Ö LL A U S N Ú R S ÍÐ A S T A B L A Ð I Metum verk undirmanna okkar, þingmannanna Pennagrein Stjórnálaflokkurinn Alþýðufylking- in hefur gefið út kosningastefnuskrá fyrir Alþingiskosningar 2016. Hún ber titilinn Fjögurra ára áætlun Al- þýðufylkingarinnar. Hér er um viðamikið skjal að ræða, alls um 40 síður. Hefur hún að geyma stefnu flokksins í meginhagsmunamálum þjóðarinnar: Hvernig við vindum ofan af markaðsvæðingu og komum í staðinn á félagslegum rekstri í inn- viðum landsins, og þá ekki síst fjár- málakerfinu,“ segir í tilkynningu. Í forsvari fyrir Alþýðufylkinguna eru Þorvaldur Þorvaldsson, formað- ur, s. 895-0564, vivaldi@internet. is og Vésteinn Valgarðsson varafor- maður, s. 862-9067, vangaveltur@ yahoo.com mm Alþýðufylkingin gefur út stefnuskrá Samanburður verðkannana sem verðlagseftirlit ASÍ framkvæmdi 13. júní og nú aftur 5. september sýn- ir að mjólkurvörur hafa hækkað síð- astliðna þrjá mánuði um 3%. Litlar verðbreytingar eru á öðrum vörum á tímabilinu, nema þá á ávöxtum og grænmeti sem breytast mikið í verði eins og svo oft áður, segir í til- kynningu frá ASÍ. „Í öllum verslun- um hefur vöruflokkurinn ostur, við- bit og mjólkurvörur hækkað, en má sjá t.d. hækkun á ósöltuðu smjöri á bilinu 2-4%. MS osturinn Ljót- ur hefur hækkað um 3-6%, Skyr. is próteindrykkurinn m/jarðaberja- og bananabragði hækkað um allt að 7% og 500 g. af bláberjaskyri frá MS hefur hækkað um 3-4%. Könn- unin var gerð á sama tíma í eftir- töldum verslunum: Bónus, Krón- unni, Nettó, Fjarðarkaupum, Sam- kaupum Úrval, Hagkaupum, Víði og Iceland. Af þeim matvörum sem skoðað- ar voru eru flestar á sama, eða lægra verði miðað við seinustu mæl- ingu ASÍ. Í verslun Fjarðarkaupa er sama verð og í júní í um 60% til- vika en hjá Nettó, Samkaupum-Úr- val og Hagkaupum er sama verð í um helmingi tilvika af þeim vörum sem bornar eru saman. Hjá Bónus, Krónunni og Víði er sama verð í um þriðjungi tilvika. mm Mjólkurvörur, ávextir og grænmeti hækkuðu mest í sumar

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.