Skessuhorn


Skessuhorn - 14.09.2016, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 14.09.2016, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2016 9 Ertu öflugur Fjármálastjóri? Capacent — leiðir til árangurs Akraneskaupstaður er ört vaxandi bæjarfélag með sjö þúsund íbúa. Mikil áhersla er lögð á góða þjónustu við bæjarbúa og fagleg vinnubrögð í stjórnsýslunni. Einkunnarorð sveitarfélagsins eru jákvæðni, metnaður og víðsýni. Upplýsingar og umsókn capacent.is/s/���� Hæfniskröfur Háskólapróf í viðskiptafræði, framhaldsmenntun æskileg. Reynsla af reikningshaldi, áætlanagerð og fjármálastjórnun. Stjórnunarreynsla og þekking á opinberri stjórnsýslu æskileg. Góð samskipta- og leiðtogahæfni. Afar góð greiningarhæfni og færni í notkun upplýsingatækni. Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi. � � � � � � � � � � � � Umsóknarfrestur ��. september Starfssvið Ábyrgð á daglegri fjármálastjórn sveitarfélagsins. Undirbúningur, gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlana. Yfirumsjón með fjárreiðum, innkaupum og reikningshaldi. Yfirumsjón með framlagningu árshlutareikninga og ársreikninga. Greiningarvinna og miðlun upplýsinga til kjörinna fulltrúa og stjórnenda. Ýmis umbótaverkefni sem snúa m.a. að innleiðingu nýrra kerfa og gerð verkferla. Fjármálastjóri hefur yfirumsjón með áætlanagerð og uppgjöri sveitarfélagsins og samhæfingu verkefna á sviði fjármála. Næsti yfirmaður er sviðsstjóri stjórnsýslu-og fjármálasviðs og er fjármálastjóri staðgengill hans. Með vísan til laga um jafnan rétt kynjanna eru konur jafnt sem karlar hvattar til að sækja um starfið. Flísabúðin Gæði og glæsileik i endalaus t úrval af hágæða flísum Finndu okkur á facebook Slökkvilið Borgarbyggðar auglýsir eftir starfskröftum í störf hlutastarfandi slökkviliðsmanna á slökkvistöðinni í Borgarnesi Umsækjendur verða að uppfylla eftirfarandi skilyrði: Vera orðin fullra 20 ára. Búseta í Borgarnesi. Hreint 24 mánaða sakavottorð. Vera andlega og líkamlega hraust. Hafa góða sjón, heyrn og rétt litarskyn. Aukin ökuréttindi til að stjórna vörubifreið, mikill kostur þó ekki skilyrði. Vera ekki haldin lofthræðslu né innilokunarkennd. Iðnmenntun eða sambærilegt nám mikill kostur, þó ekki skilyrði. Samkvæmt jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru konur jafnt sem karlar hvattar til þess að sækja um laus störf hlutastarfandi slökkviliðsmanna hjá slökkviliði Borgarbyggðar. Öllum umsóknum verður svarað. Laun og launakjör eru samkvæmt samningi Landssambands Slökkviliðs-og Sjúkraflutningamanna og Launanefndar Sveitarfélaga. Allar nánari upplýsingar veitir Bjarni K Þorsteinsson, Slökkviliðsstjóri í síma 862-6222 eða bjarnikr@borgarbyggd.is. SK ES SU H O R N 2 01 6 Þorleifi Geirssyni ljósmyndara kom í hug gamall Hollies smell- ur; „He ain’t heavy, he’s my brot- her,“ þegar hann sá þessa tvo á Ol- ísplaninu í Borgarnesi síðasta föstu- dag. Einhver gæti líka brugðið fyrir sig gömlu máltæki sem segir; Ber er hver að baki nema sér bróður eigi. Reyndar eru þetta frændur, ekki bræður, þeir Volvo og Scania. mm/ Ljósm. þg Ber er hver að baki Um klukkan 14 síðastliðinn fimmtudag varð allharður árekstur tveggja bíla á þjóðveginum skammt frá Berserkseyri á Snæfellsnesi. At- vikaðist óhappið þannig að tveimur bílum var ekið í vesturátt. Ökumað- ur annars bílsins hugðist beygja til vinstri skammt frá brúnni yfir Ber- serkseyrará, en í sama mund reyndi ökumaður hins bílsins framúrakst- ur með fyrrgreindum afleiðingum. Loftpúðar sprungu út í báðum bíl- unum en hvorki ökumenn né far- þegar slösuðust og afþakkaði fólkið boð um bílferð til læknisskoðunar. mm Enginn slasaðist þrátt fyrir allharðan árekstur Jeppabifreið fór útaf veg- inum við Hraunsmúla í Staðarsveit á föstudag- inn og fór nokkrar velt- ur. Ein kona var í bíln- um og er mildi að hún slasaðist lítið miðað við hvað bíllinn er illa far- inn. Konan var flutt til læknisskoðunar á Heil- brigðisstofnun Vestur- lands á Snæfellsnesi. Kallaður var út tækjabíll frá Slökkviliði Snæfells- bæjar auk sjúkrabíls og lögreglu. Ekki kom til að beita þyrfti klippunum. af Bílvelta í Staðarsveitinni

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.