Skessuhorn - 14.09.2016, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2016 21
Samkomulag hefur tekist um for-
sendur sem varða þjónustu og rekst-
ur hjúkrunarheimila sem rekin eru á
daggjöldum. Málið hefur velkst lengi
í kerfinu og hjúkrunarheimili lands-
ins barist við rekstrarhalla um ára-
bil. Ekki síst eru lífeyrisskuldbind-
ingar þungar fyrir sveitarfélögin sem
reka þau og daggjöld sem þeim er út-
hlutað hafa hvergi nærri dugað til að
mæta útgjöldum og skuldbindingum.
Fyrir um tveimur árum hvatti Ríkis-
endurskoðun stjórnvöld til að gera
þjónustusamninga við öll hjúkrun-
arheimili þar sem verð þjónustunnar
yrði skilgreint og skýrar kröfur gerð-
ar um magn hennar og gæði. Þá taldi
Ríkisendurskoðun að greina hafi
þurft betur hjúkrunar- og umönn-
unarþörf þeirra sem fá inni á heim-
ilunum.
Í tilkynningu frá velferðarráðu-
neytinu í síðustu viku kemur fram
að rammasamningur til þriggja ára
verður nú gerður og felur hann m.a.
í sér aukið fé til reksturs hjúkrunar-
heimila. Jafnframt liggur fyrir sam-
eiginleg bókun aðila um meðferð líf-
eyrisskuldbindinga. Að samkomu-
laginu nú standa Samtök fyrirtækja
í velferðarþjónustu, Samband ís-
lenskra sveitarfélaga og Sjúkratrygg-
ingar Íslands með aðkomu velferðar-
ráðuneytisins og fjármála- og efna-
hagsráðuneytisins. Kristján Þór Júlí-
usson heilbrigðisráðherra segir sam-
komulagið fela í sér tímamót: „Gangi
þetta eftir, eins og að er stefnt, verð-
ur höggvið á marga hnúta sem vald-
ið hafa erfiðleikum um árabil. Hjúkr-
unarheimilin fá traustari grunn að
standa á og samskiptum ríkis og
rekstraraðila þessara heimila verður
komið í uppbyggilegan farveg.“
Fjárframlög aukin
um 1,5 milljarð
„Drög að rammasamningi liggja fyr-
ir og eru fyrrgreindir aðilar sammála
um að ljúka gerð endanlegs samn-
ings fyrir 1. október næstkomandi.
Gangi þetta eftir verða fjármunir til
reksturs hlutaðeigandi heimila aukn-
ir um 1,5 milljarða króna á ársgrund-
velli á árunum 2016 - 2018. Þar af er
gert ráð fyrir einum milljarði króna
til að styrkja rekstrargrunn heimil-
anna, auknu fé til að koma til móts
við aukna hjúkrunarþyngd heimilis-
manna á hjúkrunarheimilum og fjár-
munum til að auka vægi húsnæðis-
gjalds og samræma greiðslur, hvort
sem um dvalar- eða hjúkrunarrými
er um að ræða,“ segir í frétt ráðu-
neytisins.
Samkomulag um
lífeyrisskuldbindingar
„Aðilar samkomulagsins eru sam-
mála um að bókun um lífeyrismál
liggi því til grundvallar en í henni
kemur fram að ríki og sveitarfélög
séu sammála um að ríkið yfirtaki líf-
eyrisskuldbindingar hjúkrunarheim-
ila sem rekin eru á ábyrgð sveitar-
félaga með sambærilegum hætti og
ríkið hefur yfirtekið skuldbinding-
ar annarra hjúkrunarheimila. Unn-
ið verður að samkomulagi um yfir-
töku ríkisins á skuldbindingunum og
er stefnt að því að það verði gert inn-
an ramma heildarsamkomulags um
uppgjör lífeyrisskuldbindinga milli
ríkis og sveitarfélaga.“
mm
Leggja drög að samningi um
rekstur hjúkrunarheimila
Kristján Þór Júlíusson, velferðarráð-
herra.
Jaðar í Ólafsvík.
Brákarhlíð í Borgarnesi.
Höfði á Akranesi.
Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16
Opið mán - fös 8:30 - 17:00
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is Veit á vandaða lausn
VINSÆLIR OG VANDAÐIR
RÁÐSTEFNUSTÓLAR
Á GÓÐU VERÐI
Hjá okkur fæst gott úrval af húsbúnaði fyrir ráðstefnur
og minni fundi. Tryggðu þér og gestum þínum gott sæti,
á vönduðum og þægilegum stólum á góðu verði.
DHEENSAY
fastus.is
ALLAR VÖRUR SENDAR FRÍTT
hvert á land sem er!
MEÐ ÍSLANDSPÓSTI
BLEK TÓNER
PRENTARAR
RITFÖNG PAPPÍR
w w w . p r e n t v o r u r . i s
ÖLL ALMENN VERKTAKASTARFSEMI
Eiríkur J. Ingólfsson ehf.
S
ke
ss
uh
or
n
20
13