Skessuhorn


Skessuhorn - 14.09.2016, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 14.09.2016, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 201620 Félags- og skólaþjónusta Snæfell- inga býður nemendum Fjölbrauta- skóla Snæfellinga í Grundarfirði upp á viðtöl við sálfræðing stofn- unarinnar. Óvenjulegt er að félags- þjónustan bjóði upp á slíka þjón- ustu og segist Emil Einarsson, sál- fræðingur stofnunarinnar, ekki vita til þess að sambærileg þjónusta sé í boði annars staðar á landinu. Þjón- ustan hefur verið í boði fyrir nem- endur skólans síðustu ár og hef- ur gefið góða raun. „Fyrir rúmum þremur árum var ákveðið að fara í svolítið tilraunaverkefni með þetta en við fundum fyrir þörf fyrir svona þjónustu hjá þessum aldurshópi. Við hjá Félags- og skólaþjónust- unni ákváðum þá að bjóða nemend- um upp á þessa þjónustu, að ég væri inni í fjölbrautaskólanum og byði upp á sálfræðiþjónustu,“ segir Emil í samtali við Skessuhorn. Nemend- um standa til boða stuðningsvið- töl en geta einnig nýtt sér viðtöl- in til þess að fá almenna ráðgjöf og upplýsingar um aðra sambærilega þjónustu. „Þetta var tilraun til að byrja með sem gekk mjög vel. Síð- an þá hef ég verið nemendum inn- an handar, þeir hafa haft greiðan að- gang að mér þannig og geta nýtt sér viðtöl við mig. Viðtölin eru hugsuð sem stuðningsviðtöl fyrir nemendur og hugmyndin er að stuðla að bættri líðan og að gefa þeim tækifæri á því að takast á við tilfinningalega erfið- leika,“ segir Emil. Hefur reynst vel Emil er staðsettur í Grundarfirði einn dag í viku og geta nemend- ur fengið viðtöl á þeim degi. Nem- endur geta fengið fleiri en eitt við- tal við Emil, ef þörf er á. Hann seg- ir þjónustuna einnig byggja að ein- hverju leyti á því að aðstoða krakk- ana til að leita lengra, sé vandinn mikill. „En yfirleitt er þetta mjög fjölbreytt og nemendur eru tiltölu- lega duglegir að nýta sér þetta. Þeir koma stundum einu sinni til tvisv- ar og fá almenna ráðgjöf og sumi eru jafnvel bara forvitnir, vilja sjá hvernig þeir geta nýtt sér þetta. Svo er þetta alveg upp í erfiðan tilfinn- ingavanda. Það er allur gangur á því, sem betur fer. En við viljum að þetta sé tiltölulega opið og að nemendur geti nýtt sér þjónustuna eins mik- ið og þeir geta.“ Hann segir reynsl- una hafa verið mjög góða og að við- brögðin hafi í raun verið meiri en búist hafði verið við. Það sé alltaf að færast í aukana að nemendur nýti sér þjónustuna. „Núna er ég orðinn hluti af skólanum og bæði foreldr- ar og nemendur vita af mér. Fólk er meðvitaðra um að þessi þjónusta er í boði. Það er gaman að fá að koma að þessum vettvangi sem sálfræð- ingur og að vera í samstarfi við skól- ann. Eitt árið var ég til dæmis með fræðslu fyrir nemendur í hóp, kom inn í lífsleikni og hef einnig ver- ið með fræðslu fyrir kennara. Þetta hefur því verið fjölbreytt og gengið mjög vel.“ Fyrir alla nemendur Emil segir þjónustuna standa til boða fyrir alla nemendur skólans og að hún sé þeim að kostnaðarlausu. „Ég hef verið kynntur af skólayfir- völdum, ýmist með bréfi eða á ný- nemakynningum. Einnig er sent bréf til allra foreldra og þeir látn- ir vita að þessi þjónusta er í boði,“ segir hann. Nemendur hafa góðan aðgang að sálfræðingnum og geta sótt um viðtalstíma í gegnum félags- þjónustuna eða starfsfólk skólans. „Námsráðgjafinn hefur verið minn helsti tengiliður en þau geta líka haft samband við mig af sjálfsdáð- um, með pósti eða hvernig sem er,“ útskýrir Emil. Hann segir að sótt sé um með því að fylla út umsókn- areyðublað og hann sjái um að for- eldrar séu upplýstir um að barn sé að leita til hans. „Það er allur gang- ur á því hvernig þetta gengur fyr- ir sig, oft er ég í góðu samstarfi við foreldrana og þeir tala við mig líka. Ég veiti ekki upplýsingar til for- eldra eftir hvert viðtal, nema eitt- hvað mjög sérstakt sé á ferðinni. Ef ég tel nemandann vera í hættu eða eitthvað slíkt, þá ræði ég auðvitað við foreldrana.“ Lenda á milli kerfa Emil veit ekki til þess að boðið sé upp á þjónustu af þessu tagi á veg- um sveitarfélaga annars staðar á landinu. „Allavega ekki með þess- um hætti að mér vitandi, þar sem félagsþjónustan stígur inn og býður upp á sálfræðiþjónustu fyrir fram- haldsskólanemendur. Að mínu mati er þetta rosalega flott skref. Það er mikilvægt að hlúa að þessum ald- urshópi, sem er sérstakur að mörgu leyti. Þau eru enn börn en samt sem áður missa þau þessa þjónustu þeg- ar þau byrja í framhaldsskóla, því það er boðið upp á sálfræðiþjónustu í grunnskólunum. Þannig að þessi þjónusta ætti að standa til boða, enda eru nemendurnir ekki alveg orðnir fullorðnir. Nýnemarnir eiga til dæmis tvö ár í að verða 18 ára og lenda einhvern veginn á milli kerfa, það er ekki mikil þjónusta í boði fyr- ir þau þannig séð.“ Þörfin er víðar Emil segir að eins og staðan sé í dag beri sveitarfélögum ekki skylda til þess að bjóða upp á sálfræðiþjónustu fyrir framhaldsskólanema, þó hún sé mikilvæg. „Þetta er ekki lögbund- ið hlutverk heldur er þetta ákvörð- un sem var tekin hér, með hag þessa hóps í huga. Okkur fannst að þessi hópur þyrfti að fá þessa þjón- ustu. Ég sem sálfræðingur er mjög ánægður með að sú ákvörðun skuli hafa verið tekin og ég held að það sé tiltölulega einstakt og fordæmisgef- andi að einhverju leyti.“ Hann bætir því við að framhaldsskólar hafi verið að bjóða upp á sálfræðiþjónustu fyr- ir nemendur í auknum mæli síðustu árin. „En það eru þá skólarnir sem ráða sálfræðing, það er ekki á veg- um sveitarfélaganna. Það að þetta sé gert víðar sýnir að þörfin fyrir þessa þjónustu er ekki bara eitthvað sem við upplifum, heldur er hún líka til staðar á fleiri stöðum. Sálfræðingar geta gert margt gott inn í framhalds- skólum að auki við stuðningsviðtöl. Má þar nefna tilfinningafræðslu og hagnýt ráð við erfiðum tilfinning- um. Hvort sem er hluti af lífsleikni- áföngum eða eitt og sér gæti það gagnast nemendum. Skynsamlegast væri að allir framhaldsskólar fengju fast fjármagn frá ríkinu til að bjóða upp á grunnsálfræðiþjónustu,“ seg- ir hann. Líkar vel í Hólminum Emil hefur sjálfur verið starfandi sem sálfræðingur hjá Skóla- og félags- þjónustu Snæfellinga frá árinu 2011. Hann er upprunalega frá Reykjavík en fluttist í Stykkishólm fyrir fimm árum, ásamt fjölskyldu sinni. „Við áttum ekki mikil tengsl hingað vest- ur þannig lagað en létum verða af því að flytja. Konan mín byrjaði að kenna í Grunnskólanum í Stykkis- hólmi nokkrum mánuðum áður en ég kom en ég var sjálfur að vinna á geðsviði Landspítalans. Svo var aug- lýst eftir sálfræðingi hér og ég sótti um þá stöðu,“ segir hann. Hjónun- um líkar vel í Hólminum eftir fimm ára búsetu. „Við eigum þrjú börn og erum búin að kaupa okkur hús og líkar mjög vel. Við stefnum allavega á áframhaldandi búsetu og erum ánægð. Hér er gott að vera með börn og við erum mjög sátt.“ grþ Boðið upp á sálfræðiþjónustu fyrir framhaldsskólanema Emil Einarsson, sálfræðingur hjá Skóla- og félagsþjónustu Snæfellinga. Nemendum í FSN stendur til boða að fá viðtöl hjá sálfræðingi sér að kostnaðarlausu. Nemendur á öðru ári í búfræði- deild Landbhúnaðarháskóla Ís- lands á Hvanneyri taka að sér ýmis verkefni til fjáröflunar fyr- ir útskriftarferð sína á komandi ári. Nefna þeir sem dæmi aðstoð við mjaltir, afleysingar, mokst- ur, fjárrag, hænsnatínslu, þrif og bón á bílum og vélum, smöl- un, slátrun og framvegis. „Við erum með reynslubolta í flestum verkum,“ segja búfræðingar sem gefa nánari upplýsingar í símum 894-1011 (Harpa) og 771-3341 (Sigríður Linda). mm Frískir búfræðinemar taka að sér ólík verkefni Til dæmis mjaltir, afleysingar, mokstur, fjárrag, hænsnatínslu, þrif og bón á bílum og vélum, smölun, slátrun og svo mætti lengi telja. Nemendur á öðru ári í búfræðideild Landbúnaðarháskóla Íslands taka nú að sér hverskyns verkefni til fjáröflunnar útskriftarferðar sinnar á komandi ári. Erum með reynslubolta í flestum verkum. Ítarlegri upplýsingar veita Harpa Björk: 894-1011 Sigríður Linda: 771-3341 bufraedi@gmail.com Er ekki hugsanlegt að þig vanti aðstoð við hin ýmsu verk? Geymið auglýsinguna því við verðum til taks í allan vetur. SK ES SU H O R N 2 01 6 Fátt á betur við á þeim árstíma sem í hönd fer en ilmandi íslensk kjötsúpa. Best er að laga rífleg- an skammt í hvert sinn því yfir- leitt bragðast kjötsúpan best dag- inn eftir að hún er soðin. Þó ber að hafa í huga að sumt grænmeti, eins og hvítkál, grænkál og sperg- ilkál, er best að halda aðskildu ef geyma á súpuna til næsta dags/ daga. Hér fylgir uppskrift að kjöt- súpu þar sem höfundurinn not- ar fjölbreytt nýtt hráefni. Í versl- unum má á þessum árstíma kaupa fjölbreytt íslenskt grænmeti. Um að gera að prófa nýjar tegundir og súpan þarf alls ekki alltaf að vera krydduð með sama grænmetinu eða kryddjurtunum. Fjölbreyti- leikinn, framboðið og hugarflug- ið á að ráða. Kjötið með beinum er fyrst soðið í hálftíma ásamt kryddjurt- um. Flestir nota verðminni hluta af dilknum, en sumir nota læri sérstaklega ef þeir vilja minni fitu og vilja úrbeina kjötið og skera í smærri bita í súpuna. Sem drydd er t.d. gott að nota ferskt sell- erí, steinselju og lauk. Sérstak- lega mælum við með að nota einn- ig skessujurt (Lovage, Liebstöckel), en það er fjölær kryddjurt sem gef- ur skemmtilegan keim sem minn- ir helst á karrý. Skessujurt er einnig kölluð Maggí-súpujurtin, því hún er uppistaða í kryddi samnefnds súpu- framleiðanda. Eftir suðu í hálftíma er kjötið brytjað smátt og bætt við kartöflum, gulrótum, gulrófum og papriku. Soðið saman í þrjú kort- er. Þá er grænkáli og hvítkáli bætt við og soðið í korter til viðbót- ar. Síðast er bætt við spergilkáli en það er einungis soðið í síðustu fimm mínúturnar áður en súp- an er borin fram. Með súpunni er gott að bera fram brauð. mm Íslensk kjötsúpa með nýju grænmeti Freisting vikunnar Kjötsúpa beint frá býli.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.