Skessuhorn - 14.09.2016, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 20162
inu nú á haustdögum. „Óraunhæf-
ar fjárúthlutanir til grunnskóla og
niðurskurður allt frá hruni leiða til
skerðingar á lögbundinni þjónustu
skólanna. Mörg sveitarfélög hafa
forgangsraðað í þágu nemenda við
gerð fjárhagsáætlana en önnur hafa
á síðustu árum skorið niður fjár-
magn til reksturs skólanna. Þetta
virðist einkum eiga við nokkur af
stærstu sveitarfélögunum,“ segir í
ályktun sem Skólastjórafélagið hef-
ur sent frá sér. „Má þar meðal ann-
ars nefna að í höfuðborginni er að
mati SÍ notað óraunhæft og úrelt
reiknilíkan til að deila út fjármun-
um til grunnskólanna. Þá hefur
launakostnaður vegna sérkennslu
og stuðnings við nemendur ekki
verið bættur að fullu. Jafnframt er
gerð krafa um að halli verði greidd-
ur upp á næstu tveimur árum. Á
þetta hafa skólastjórar ítrekað bent
án þess að gerðar hafi verið úrbætur
af hálfu borgarinnar. Mikilvægt er
að nemendur njóti grunnþjónustu
og að skólastjórum sé gert kleift að
sinna lögbundinni þjónustu með
raunhæfum fjárhagsáætlunum sem
lúta að því að efla faglegt skólastarf
með hagsmuni nemenda að leiðar-
ljósi.“ mm
Sumarið er senn á enda og tekur að
hausta. Það er því ekki eftir neinu að
bíða með að ganga frá ýmsum hlutum
sem tilheyra sumrinu, svo sem tram-
pólínum, léttum sumarhúsgögnum og
öðrum lausamunum. Vonandi verður
þó einhver bið á djúpu lægðunum og
hægt að grilla í þokkalegu veðri nokkr-
um sinnum í viðbót.
Á fimmtudag verður suðaustan og
austan 5-10 m/s en 8-13 við suðvestur-
ströndina. Skýjað verður með köflum
og lengst af þurrt norðan- og austan til
en rigning um landið suðvestanvert og
með austurströndinni um kvöldið. Hiti
verður á bilinu 5 til 12 stig, hlýjast norð-
an til. Á föstudag verður suðaustan 5-10
m/s en hægari vestlæg átt vestan til.
Skýjað og lítilsháttar rigning í flestum
landshlutum en lengst af þurrt á Norð-
urlandi. Hiti breytist lítið. Á laugardag er
útlit fyrir vestlæga átt, 3 - 10 m/s, hvasst
á annesjum fyrir norðan. Skýjað með
köflum og hiti 6 til 10 stig. Á sunnudag
spáir vaxandi norðaustanátt með rign-
ingu um landið austanvert en annars
bjartviðri. Hlýnar heldur í veðri. Á mánu-
dag er útlit fyrir áframhaldandi norða-
nátt en suðlægari syðst um kvöldið.
Víða dálítil rigning en úrkomulítið suð-
austanlands. Milt í veðri.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu-
horns: „Hvaða landshluti þykir þér fal-
legastur?“. Flestir svöruðu að Vesturland
væri fallegasti landshlutinn eða 47%
svarenda. Vestfirðir voru í öðru sæti með
22% og Norðurland í því þriðja með
10%. Austurland og Suðurland voru
í fjórða sæti með 7% hver. 4% völdu
miðhálendið en 2% svarenda gáfu höf-
uðborgarsvæðinu sitt atkvæði. Einungis
1% lesenda telja Reykjanes vera falleg-
asta landshlutann.
Í næstu viku er spurt
„Ferð þú í réttir?“
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir hefur óbil-
andi trú á skógrækt á Íslandi og hefur
gert hana að sínu lífsstarfi. Sigríður Júlía
er Vestlendingur vikunnar en viðtal við
hana má finna á miðopnu blaðsins.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Holræsabíll á
ferðinni
AKRANES: Holræsabíll frá
Gámaþjónustu Vesturlands
er á ferðinni alla þessa viku
á Akranesi og í nágrenni. Í
auglýsingum sem birtar voru
í síðustu viku um ferðir bíls-
ins var ranglega sagt að hann
yrði á ferðinni í ágúst en hið
rétta er að hægt er að fá þjón-
ustu hans nú í þessari viku. Í
auglýsingunum frá Gáma-
þjónustunni segir að bíllinn
sé sérútbúinn til að hreinsa
út frárennslislagnir, klóak-
og regnvatnslagnir og hægt
sé að fá útprentuð stafræn
gögn um ástand lagna. Þjón-
usta er meðal annars veitt
við frárennsliskerfi fráveitu-
lagna, niðurfalla, brunna,
fitugildra, olíuskilja, vegna
trjáróta í lögnum og fleira.
Hægt er að panta þjónustuna
hjá Gámaþjónustu Vestur-
lands í síma 435-0000.
-grþ
Átta óhöpp og
flest án meiðsla
VESTURLAND: Alls
urðu átta umferðaróhöpp
í umdæmi Lögreglunnar á
Vesturlandi vikuna 6.-13.
september. Hlutu nokkrir
minniháttar meiðsli en ör-
yggisbeltin og líknarbelg-
ir komu í veg fyrir alvar-
leg slys. Hörð aftanákeyrsla
varð á Vesturlandsvegi ofan
Borgarness þegar ekið var á
kyrrstæðan fólksbíl sem var
á leiðinni í vinstri beygju inn
á Sólbakkann og kastaðist
fólksbíllinn út af veginum.
Ökumaður og farþegar voru
í öryggisbeltum og sluppu
með minniháttar meiðsli.
Nokkrar aftanákeyrslur hafa
orðið á þessum gatnamótum
á liðnum árum og væri, að
sögn lögreglu, bót ef vegur-
inn væri breikkaður á þess-
um stað og gert svokallað
framhjáhlaup. Þá var nokk-
uð harður árekstur í Reyk-
holtsdal á mótum Borgar-
fjarðarbrautar og Hálsasveit-
arvegar á föstudaginn. Þar
var bíl ekið í veg fyrir ann-
an. Ökumaður annars bílsins
kvartaði yfir eymslum í hné
og var hann fluttur á sjúkra-
hús til skoðunar. Tvennt var
í hinum bílnum og sluppu án
meiðsla. Bílarnir voru flutt-
ir á brott með kranabíl. Er-
lendir ökumenn á bílaleigu-
bílum áttu hlut að máli í
flestum þessum óhöppum,
að sögn lögreglu. Einn öku-
maður var tekinn fyrir ölv-
un við akstur í vikunni. Loks
vill lögregla benda á að við
umferðaróhöpp, sérstaklega
á gatnamótum, verða oft
skemmdir á umferðarmerkj-
um. „Nauðsynlegt er að til-
kynna slíkt sem fyrst til lög-
reglu eða starfsmanna Vega-
gerðarinnar svo merkin séu
lagfærð,“ segir lögregla.
-mm
Náttúrufræðistofnun Íslands hefur
metið veiðiþol rjúpnastofnsins og
sent niðurstöðurnar til umhverf-
is- og auðlindaráðherra. Stofn-
unin leggur til að ráðlögð rjúpna-
veiði í haust verði 40 þúsund fugl-
ar, en hún var 54 þúsund fuglar á
síðasta ári. Stofnunin leggur mikla
áherslu á að hvergi verði slakað á í
þeirra viðleitni að draga sem mest
úr heildarafföllum rjúpunnar. „Við-
koma rjúpunnar var metin með
talningum í tveimur landshlutum
síðsumars. Hlutfall unga reynd-
ist vera 76% á Norðausturlandi
og 77% á Suðvesturlandi. Rjúpn-
astofninn er í lágmarki um vest-
anvert landið en í niðursveiflu um
landið austanvert. Reiknuð heildar-
stærð varpstofns rjúpu vorið 2016
var metin 132 þúsund fuglar, en
var 187 þúsund fuglar 2015. Fram-
reiknuð stærð veiðistofns 2016 er
453 þúsund fuglar miðað við 620
þúsund fugla 2015. Þessir útreikn-
ingar byggja á gögnum fyrir Norð-
austurland og ofmeta stærð stofns-
ins nær örugglega,“ segir í frétt
Náttúrufræðistofnunar.
„Miðað við niðurstöður rjúpna-
talninga í Hrísey og á Kvískerj-
um, sem ná allt aftur til ársins
1963, er árið 2016 á bilinu tuttug-
asta til þrítugasta lakasta miðað við
100 ár. Rjúpnafjöldinn á þessu ári
er vel undir meðallagi miðað við
síðustu 50 ár. Umhverfis- og auð-
lindaráðherra ákvað haustið 2013
að rjúpnaveiðitíminn yrði 12 dag-
ar næstu þrjú ár, nema eitthvað
óvænt kæmi upp á. Niðurstöður
Náttúrufræðistofnunar sýna í sjálfu
sér ekkert óvænt en stofninn er lít-
ill. Stofnunin leggur til að fyrir-
komulag veiða verði með óbreytt-
um hætti á þessu ári. Útreikningar
Náttúrufræðistofnunar á ráðlagðri
veiði upp á 40 þúsund fugla miðast
við að áhrif veiða séu ekki önnur en
þau að veiðiafföll bætast að fullu við
náttúruleg afföll.“
mm
Mælir með að veiða megi 40 þúsund rjúpur
Stjórn og formenn svæðafélaga
Skólastjórafélags Íslands lýsa yfir
þungum áhyggjum af fjárhags-
stöðu margra grunnskóla í land-
Lýsa þungum áhyggjum af fjárhagsstöðu grunnskóla
„Ég vil að forusta Framsókn-
arflokksins fái umboð með
afgerandi hætti á flokks-
þingi sem haldið verður 1.
og 2. október næstkomandi
í Reykjavík. Þess vegna tók
ég þá ákvörðun að bjóða mig
fram til formanns Framsókn-
arflokksins og tryggja að í það
minnsta fari fram kosning um
forustuna,“ segir Sveinbjörn
Eyjólfsson á Hvanneyri, for-
stöðumaður Nautastöðvar BÍ
á Hesti. Hann dregur ekki dul
á að framboð hans sé öðrum
þræði táknrænt. Ef Sigurð-
ur Ingi Jóhannsson forsætis-
ráðherra gefi kost á sér til for-
mennsku í Framsóknarflokkn-
um muni hann draga fram-
boð sitt til baka. Á fundi mið-
stjórnar flokksins á Akureyri
um helgina gerði Sveinbjörn
þessa ákvörðun sína opinbera.
„Eiginlega var ég strax í vor að
hugsa um að gera eitthvað þessu
líkt því mér hefur fundist að þessi
gamli flokkur minn ætti skilið að fá
forustu sem allir gætu sætt sig við.“
Sveinbjörn segir að traust og trún-
aður á Sigmundi Davíð Gunnlaugs-
syni formanni sé laskað. „Þetta er
flokkur sem á að hafa prýðilega
málefnastöðu, en á sama tíma eru
menn uppteknir í vonlausri bar-
áttu að verja geymslu fjármuna á
Tortóla. Flokkurinn nýtur af þess-
um sökum ekki trausts og verður að
vinna sig út úr því. Ég
hef sagt á okkar fund-
um að sagnfræðingar
framtíðarinnar munu
setja Sigmund á stall
og þau verk sem hann
hefur áorkað. En kjós-
endur nútímans eru
ekki að heillast og við
þurfum að vinna þeirra
traust á nýjan leik. Ég
tel að við gerum það
ekki með Sigmund
Davíð í fararbroddi
nema að hann fái veru-
lega afgerandi umboð
til þess að gegna áfram
formennsku.“ Svein-
björn segist treysta
Sigurði Inga Jóhanns-
syni til að leiða flokk-
inn og ef hann býður
sig fram gegn sitjandi
formanni muni hann
styðja að forsætisráðherrann verði
jafnframt formaður Framsóknar-
flokksins. „Það er nauðsynlegt að
forustan fái sterkt umboð á flokks-
þingi og menn gangi sameinaðir til
kosninga.“
mm
Sveinbjörn býður sig fram til
formennsku í Framsóknarflokknum